WOW air átti þrjár milljónir á reikningnum þegar það fór í þrot

Undir eitt pró­sent af 151 millj­arða kröfum í bú WOW air munu fást greiddar miðað við eign­ar­stöðu. Rift­un­ar­mál hafa verið höfðuð og verið er að skoða hvort lög­legt hafi verið að WOW air greiddi húsa­leigu fyrir Skúla Mogensen í London fyrir 37 millj­ónir.

WOW air var orðið ógjald­fært um mitt síð­asta ár, áður en skulda­bréfa­út­boð félags­ins sem átti að rétta við rekstur þess hófst. Áætlanir félags­ins voru auk þess ófull­nægj­andi og gáfu ekki raunsanna mynd af rekstri né efna­hagi WOW air. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Deloitte sem unnin var á mál­efnum WOW air fyrir skipta­stjóra þrota­bús félags­ins, en inni­hald hennar var kynnt á skipta­fundi sem hófst klukkan 13 í dag. Við­skipta­blaðið greinir frá.

Í frétt blaðs­ins segir einnig að þátt­taka Skúla Mogensen í skulda­bréfa­út­boð­inu haustið 2018 virð­ist hafa verið fjár­mögnuð með láni frá Arion banka. Ekki sé víst að öðrum þátt­tak­endum í útboð­inu hafi verið kunn­ugt um það.

Við­skipta­blaðið greinir frá því að 1,1 millj­arður króna sé til í búinu en heild­ar­kröfur í það eru 151 millj­arður króna. Engar líkur eru á því að nokkuð fáist upp í 138 millj­arða króna almennar kröfur. Þrjár millj­ónir króna voru til á reikn­ingi WOW air þegar félagið fór í þrot.

Þegar er búið að höfða rift­un­ar­mál á hendur Títan, fjár­fest­inga­fé­lagi Skúla Mogensen, upp á 108 millj­ónir króna og skipta­stjórar eru að skoða hvort hægt sé að rifta greiðslu á 37 millj­ónum króna sem WOW air stóð undir vegna húsa­leigu íbúðar Skúla Mogensen í London.

Flaug hátt en brot­lenti með látum

Eftir mik­inn upp­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið WOW air í veru­legum vand­ræð­um í fyrra. Skulda­bréfa­út­­­boð upp á 50 millj­­ónir dala (um sex millj­­arða króna á gengi dags­ins í dag) sem félagið fór í í sept­­em­ber 2018 dugði ekki til að laga stöð­una.

Í kjöl­farið var reynt að selja WOW air til Icelandair (tvisvar) og Indigo Partners. Þau áform gengu ekki eft­­ir. Síð­­asta til­­raun með Icelanda­ir, sem stóð yfir seint í mars 2019, fór fram á þeim for­­sendum að WOW Air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæt­i.

Til að slíkar for­­sendur haldi, en þær heim­ila til dæmis að sam­keppn­is­­legum áhrifum sam­runa er vikið til hlið­­ar, þá þarf að liggja fyrir að eng­inn raun­hæfur mög­u­­leiki sé á því að aðrir kaup­endur séu til stað­­ar.

Íslenska ríkið taldi sig ekki hafa neinar for­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air. Og að morgni 28. mars 2019 fór félagið í þrot.

Afdrifdaríkt skuldabréfaútboð

Skulda­bréfa­út­boðið í sept­em­ber á eftir að reyn­ast örlaga­ríkt. Skúli keypti sjálfur skulda­bréf fyrir 5,5 millj­­ónir evra í út­­boð­in­u. Aðrir sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu voru inn­lend fjár­mála­fyr­ir­tæki og erlendir fjár­festar og sjóð­ir. Þá keyptu tveir sjóð­ir í stýr­ing­u GAMMA keyptu sam­an­lagt skulda­bréf fyrir tvær millj­ónir evra, annar þó stærri hlut­ann eða fyrir 1,8 millj­ónir evra. Kvika banki lagði svo eina milljón evra í útboð­ið.

Banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lag­ið Eaton Vance var stærsti ein­staki kaup­and­inn í skulda­bréfa­út­boð­inu og keyptu þrír vog­un­ar­sjóðir félags­ins sam­tals skulda­bréf fyrir 10 millj­ónir evra og nam fjár­fest­ing Eaton Vance því um 20 pró­sent af heild­ar­um­fangi útboðs­ins. Ýmsir evr­ópskir fjár­fest­ing­ar­sjóð­ir, alls 20 tals­ins, keyptu svo skulda­bréf fyrir sam­an­lagt 11,4 millj­ónir evra. Norski líf­eyr­is­sjóð­ur­inn MP Pen­sjon lagði þeirra mest til, eða 2 millj­ónir evra. Sjóður sænska bank­ans Swed­bank, sem stýrt er frá­ Lúx­em­borg, lagði svo til 1,5 millj­ónir evra og sænska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­ið Peak AM lagði til sömu fjár­hæð. Aðrir evr­ópskir fjár­festar lögðu minna til, eða á bil­inu 0,1-1 milljón evra.

Frá þessu var meðal ann­ars greint í Í bók Stef­áns Ein­ars Stef­áns­sonar, við­skipta­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, sem ber nafnið WOW – Ris og fall flug­fé­lags og kom út í maí. Þar kom einnig fram að félag í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar, Reliquum, hefði keypt fyrir um þrjár millj­ónir evra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár