Hvað þarf að gerast til að WOW air lifi af?

Mjög mis­vísandi frá­sagnir eru af því hvort og þá hvernig WOW air geti lifað af þær hremm­ingar sem fyr­ir­tækið er í sem stendur. Hér er það sem við vitum í raun um stöð­una.

Vond staða sem þarf að vinda ofan af

WOW air stendur fjár­hags­lega afar illa. Skulda­bréfa­út­boð upp á 50 millj­ónir dala (um sex millj­arða króna á gengi dags­ins í dag) sem fyr­ir­tækið fór í í sept­em­ber 2018 dugði ekki til að laga stöðu WOW air. Síðan þá hefur verið reynt að selja fyr­ir­tækið til Icelandair (tvisvar) og Indigo Partners. Þau áform hafa ekki gengið eftir. Síðasta til­raun með Icelandair, sem stóð yfir um liðna helgi, fór fram á þeim for­sendum að WOW Air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Til að slíkar for­sendur haldi, en þær heim­ila til dæmis að sam­keppn­is­legum áhrifum sam­runa er vikið til hliðar, þá þarf að liggja fyrir að eng­inn raun­hæfur mögu­leiki sé á því að aðrir kaup­endur séu til staðar.

Mikið tap og háar skuldir

Morg­un­blaðið greindi frá því á mánu­dag að WOW air hefði tapað 22 millj­örðum krónum í fyrra, að eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins sé nei­kvætt um 13 millj­arða króna og að lausa­fjár­staðan sé nei­kvæð upp á 1,4 millj­arða króna. Frétta­blaðið greindi frá því sama dag að heild­ar­skuldir WOW air væru um 24 millj­arðar króna.

[adspot]

Það sem þarf að gera: skref 1

Til þess að lifa af þarf WOW air að skrifa niður allt núver­andi hlutafé (í eigu Skúla Mogensen), að semja um að breyta skuldum í nýtt hlutafé og fá inn nýtt fjár­magn til að vera rekstr­ar­hæft.

  • Kröfu­hafar WOW air eru ýmiss konar. Þeir kröfu­hafar sem eru lík­leg­astir til að breyta kröfum í hlutafé eru ann­ars vegar þeir sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW air í fyrra­haust. Þar er meðal ann­ars um að ræða banda­ríska fjár­fest­inga­sjóð­inn Eaton Vance, Skúla Mogensen sjálfan (sem keypti fyrir 770 millj­ónir króna og veð­setti meðal ann­ars húsið sitt), Sigþór Kristinn Skúlason, for­stjóra Airport Associates (stærsta þjón­ustu­að­ila WOW air á Kefla­vík­ur­flug­velli) og fjár­fest­inga­sjóðir í stýr­ingu hjá GAMMA. Alls tóku nokkrir tugir aðila þátt í að lána WOW air pen­inga í útboð­inu.
  • Hins vegar þarf WOW air að semja við Arion banka, helsta við­skipta­banka sinn, sem hefur lánað fyr­ir­tæk­inu umtals­verða fjár­muni í vand­ræðum þess síð­ustu miss­eri. Ef það er rétt sem haft er eftir Sigþóri Kristni, for­stjóra Airport Associates, á vef RÚV um að það standi til að breyta um 15 millj­örðum króna af skuldum í hlutafé þá er aug­ljóst að allir ofan­greindir eru með í því.

Það sem þarf að gera: skref 2

Aðrar skuldir WOW air eru rekstr­ar­skuldir við t.d. leigu­sala sem eiga vél­arnar sem fyr­ir­tækið notað og Isavia sem WOW air skuldar umtals­verðar fjár­hæðir, tæpa tvo millj­arða króna, vegna van­gold­inna lend­ing­ar­gjalda. Þá skuldar WOW air einnig líf­eyr­is­sjóðum vegna iðgjalda starfs­manna og ýmsum öðrum þjón­ustu­að­ilum eins og elds­neyt­is­sölum. Stærsti elds­neyt­is­sali WOW air eru Festar, skráð félag í Kauphöll Íslands sem áður hét N1. Afar ólík­legt er að ein­hver þess­arra muni breyta kröfum í hlutafé og því þarf að semja við þá um greiðslur eða nið­ur­fell­ingar.

Það sem þarf að gera: skref 3

Takist þetta allt saman þá þarf að finna aðila sem er til­bú­inn að koma með að minnsta kosti fimm millj­arða króna í nýtt hlutafé inn í WOW. Sá aðili, sem Arctica Finance hefur umsjón með að finna, myndi þá eign­ast meiri­hluta í WOW air fyrir það fé sem hann legði á borðið. Minni­hlut­inn, 49 pró­sent, yrði í eigu þeirra kröfu­hafa sem breyta kröfum sínum í nýtt hlutafé. Það verður tölu­vert erf­ið­ari brekka að finna þann aðila en að fá kröfu­hafa, sem horfa hvort eða er á að tapa ann­ars öllum sínum kröfum, til að breyta kröfum í nýtt hlutafé.

Það sem þarf að gera: skref 4

Yfir öllu saman vaka síðan Sam­göngu­stofa, sem veitir WOW air flug­rekstr­ar­leyfi og getur þar af leið­andi aft­ur­kallað það, og stjórn­völd.Það þarf líka að sann­færa þá aðila um að áætlun um end­ur­reisn WOW air sé trú­verðug og að fyr­ir­tækið verði ekki bara komið í sömu vand­ræði innan nokk­urra vikna eða mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár