Skúli segist ekki hafa fengið milljarða greiðslur út úr WOW air

Skúli Mogensen seg­ist aldrei fall­ast á að hann og hans fólk hafi ekki unnið að heil­indum við upp­bygg­ingu WOW air og neitar því að hafa fengið háar greiðslur út úr félag­inu en sjálfur hafi hann tapað átta millj­örðum.

„Það er ekki rétt að ég hafi fengið millj­arða greiðslur út úr WOW air.“ Þetta er meðal þess sem Skúli Mogensen segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla í morgun vegna umfjöll­unar um mál­efni WOW air síð­ustu daga. Þar neitar hann því einnig stað­fast­lega að WOW air hafi verið ógjald­fært um mitt ár 2018. 

Hann seg­ist aldrei hafa skor­ast undan sinni ábyrgð í hvernig fór fyrir WOW air og muni þurfa að búa við það alla tíð. „Ég mun hins vegar aldrei fall­ast á það að ég og mitt fólk höfum ekki unnið af heil­indum við upp­bygg­ingu WOW air allt fram á síð­asta dag.“

Á skipta­fundi kröfu­hafa WOW air sem fram fór síð­ast­lið­inn föstu­dag kom meðal ann­ars fram að WOW air var orðið ógjald­fært um mitt síð­asta ár, áður en skulda­bréfa­út­boð félags­ins sem átti að rétta við rekstur þess hófst. Áætl­anir félags­ins voru auk þess ófull­nægj­andi og gáfu ekki raunsanna mynd af rekstri né efna­hagi WOW air.

[adspot]Þá kom einnig fram að þátt­taka Skúla Mog­en­sen í skulda­bréfa­út­boð­inu haustið 2018 virð­ist hafa verið fjár­mögnuð með láni frá Arion banka. Ekki sé víst að öðrum þátt­tak­endum í útboð­inu hafi verið kunn­ugt um það.

Mótmælir riftun

Þegar er búið að höfða rift­un­ar­mál á hendur Tít­an, fjár­fest­inga­fé­lagi Skúla Mog­en­sen, upp á 108 millj­ónir króna vegna greiðslu frá Cargo Express, dótt­ur­fé­lagi WOW air til Títan, og skipta­stjórar eru að skoða hvort hægt sé að rifta greiðslu á 37 millj­ónum króna sem WOW air stóð undir vegna húsa­leigu íbúðar Skúla Mog­en­sen í London.

Skúli segir það ekki rétt að hann hafi fengið millj­arða greiðslur út úr WOW air. „Þar hefur sér­stak­lega verið nefnd sala Títan til WOW air á kaup­rétti á fjórum flug­vélum fyrir 1 millj­arð og sagt að Títan hafi fengið umræddan kaup­rétt ókeypis. Þetta er frá­leitt enda ekk­ert frítt í heimi flug­véla. Hið rétta er að Títan fékk umræddan kaup­rétt gegn því að ábyrgj­ast allar greiðslur WOW air í tíu ár upp á tugi millj­arða vegna umræddra kaupa. Þetta var skil­yrði af hálfu flug­véla leig­and­ans. Það skal líka tekið fram að Títan fékk ekki umræddan millj­arð í reiðufé heldur að mestu leyti í formi fleiri hluta­bréfa í WOW air. WOW air seldi umræddar flug­vélar til Air Canada gegn greiðslu í reiðufé og því aug­ljós­lega rangt að tala um að engin verð­mæti hafi skap­ast eða átt sér stað.“

Varðandi riftun skipta­stjóra á greiðslu Cargo Express til Títan segir Skúli að þeirri riftun hafi verið mót­mælt harð­lega „enda teljum við alveg skýrt að WOW air öðl­að­ist aldrei eign­ar­rétt til arð­greiðsl­unnar frá Cargo Express. Arð­greiðslan var alltaf skil­greind eign Títan þegar Cargo Express var selt WOW air og átti þar af leið­andi alltaf að renna til Títan en ekki WOW air.“

Varðandi hús­næðið í London sem WOW air greiddi 37 millj­ónir króna í leigu fyrir segir Skúli að þetta hafi verið liður í opnun á nýrri starfs­stöð/Hub í London eða Dublin og jafn­framt hafi WOW air verið að skoða mögu­lega skrán­ingu á mark­aði í London. „Hvort tveggja kall­aði á veru­lega við­veru for­stjóra í London. WOW air skil­aði yfir 4 millj­örðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðli­legt skref í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu WOW air á þeim tíma og ekk­ert óeðli­legt við það að félagið skyldi leigja hús­næði fyrir for­stjóra félags­ins í þeim til­gangi að sinna þeim verk­efnum.“

Neitar því að WOW air hafi verið ógjaldfært um mitt síðasta ár

Skúli fjallar einnig um frægt skulda­bréfa­út­boð WOW air, sem lauk í sept­em­ber í fyrra, í yfir­lýs­ing­unni. Skúli keypti sjálfur skulda­bréf fyrir 5,5 millj­­­ónir evra í út­­­boð­in­u. Aðrir sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­­­boð­inu voru inn­­­lend fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki og erlendir fjár­­­festar og sjóð­­ir. Þá keyptu tveir sjóð­ir í stýr­ing­u GAMMA keyptu sam­an­lagt skulda­bréf fyrir tvær millj­­ónir evra, annar þó stærri hlut­ann eða fyrir 1,8 millj­­ónir evra. Kvika banki lagði svo eina milljón evra í útboð­ið. Skipta­stjórar WOW air telja að Arion banki hafi fjár­magnað þátt­töku Skúla.

[adspot]Í yfir­lýs­ing­unni segir Skúli að það sé ekki „rétt að tala um að WOW air hafi verið ógjald­fært á fyrri hluta árs­ins 2018“ eða að stjórn­endur félags­ins hafi ekki unnið af heil­indum í skulda­bréfa­út­boði félags­ins í sept­em­ber 2018. „Hjá félag­inu störf­uðu ótal sér­fræð­ingar sem og ytri ráð­gjafar sem fóru vand­lega yfir öll gögn og upp­gjör félags­ins. Það sést einnig best á því að ég fjár­festi sjálfur fyrir 700 m. kr. í umræddu útboði og lagði hús mitt og fleiri eignir að veði. Aug­ljós­lega hefði ég aldrei lagt allt undir nema ég hefði verið sann­færður um það að umrædd upp­hæð myndi duga til að tryggja áfram­hald­andi rekstur WOW air. Ytri aðstæður breytt­ust hins vegar mjög hratt til hins verra skömmu eftir skulda­bréfa­út­boðið og því miður tókst okkur ekki að tryggja frek­ari fjár­mögnun félags­ins í tæka tíð.“

Velgengnin tafði skráningu

Í nið­ur­lagi yfir­lýs­ingar sinnar segir Skúli að það sé ljóst að eng­inn stofni flug­fé­lag og leggi því til marga millj­arða króna nema að við­kom­andi sé bjart­sýnn og hafi trú á verk­efn­inu. „Þegar við fórum af stað með WOW air höfðu fáir trú á því að okkur myndi takast ætl­un­ar­verkið, að byggja hér upp flug­fé­lag og vöru­merki sem vakti heims­at­hygli og myndi flytja millj­ónir ferða­manna til og frá Íslandi. WOW air skil­aði hagn­aði mun fyrr en nokkurn óraði fyrir og var afkoman jákvæð um rúma fjóra millj­arða árið 2016. Þessum mikla og góða árangri fyrstu árin er ekki síst þeim frá­bærum hópi starfs­fólks að þakka sem lagði nótt við dag að byggja WOW air upp. Ég er óheyri­lega stoltur af þessum hóp og því sem við áork­uðum þvert á allar spár. Það má til sanns færa að þessi mikla vel­gengni sem WOW air naut á fyrstu árum sínum og þá sér­stak­lega 2015 og 2016 með ört stækk­andi flota, þar með talið breið­þot­unum sem gengu mjög vel fyrsta árið hafi átt sinn þátt í að það fór sem fór. Þessi mikla vel­gengni gerði það nefni­lega að verkum að ég dró það að skrá félagið og/eða sækja nýtt hlutafé.

Eftir á hefði það klár­lega verið skyn­sam­legra að fá inn fleiri hlut­hafa og styrkja þannig félagið og draga úr því hversu háð WOW air var mér og mínum félögum. En það er nauð­syn­legt að hafa þessa vel­gengni líka í huga þegar ákvarð­anir sem teknar voru í aðdrag­anda falls WOW air eru skoð­aðar. Við höfðum áður lent í ólgu sjó en ávallt tek­ist að kom­ast í gegnum þær raunir og orðið sterk­ari fyrir vikið. Það var því aldrei nokkur vafi í mínum huga að við myndum klára þetta verk­efni og kom­ast aftur í gegnum þær erf­iðu ytri aðstæður sem við lentum í síð­ast­lið­inn vetur.

Ég hef aldrei skor­ast undan minni ábyrgð í hvernig fór og mun þurfa að búa við það alla tíð. Ég mun hins vegar aldrei fall­ast á það að ég og mitt fólk höfum ekki unnið af heil­indum við upp­bygg­ingu WOW air allt fram á síð­asta dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár