Vonast enn til að selja vörumerkið WOW air

Skipta­stjórar WOW air segja að við­ræður um að selja vöru­merki, lén og bók­un­ar­vél félags­ins gangi ágæt­lega.

Í skýrslu skipta­stjóra WOW air kemur fram að þrotabú félags­ins sé enn í við­ræðum við nokkra aðila um sölu á vöru­merk­inu WOW air, lénum félags­ins, bók­un­ar­vél og ýmsu lausafé sem teng­ist rekstri félags­ins. „Þær við­ræður ganga ágæt­lega og von­ast skipta­stjórar til þess að ljúka samn­ingum um sölu þeirra eigna.“

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skipta­stjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal ann­ars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjald­þrot í lok mars. Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um nið­ur­stöðu hennar hér.

Eini áhuga­sami kaup­and­inn sem greint hefur verið frá opin­ber­lega er banda­ríska athafna­konan Michelle Ballarin. Hún gerði kaup­samn­ing um valdar eignir úr þrota­búi WOW air í júlí en honum var síðan rift. Hún kom svo í við­tal við Við­skipta­Mogg­ann skömmu síðar og þar full­yrti hún að búið væri að tryggja millj­arða króna til rekst­urs nýs flug­fé­lags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin.

[adspot]Í lok júlí var kaup­unum hins vegar rift vegna þess að síend­ur­tekið hafði dreg­ist að borga fyrstu greiðslu sam­kvæmt kaup­samn­ingi sem gerður var milli félags Ballarin og þrota­bús­ins. Heild­ar­um­fang við­skipt­anna átti að vera ríf­lega 180 millj­ónir króna og sú greiðsla að greið­ast í þremur nokkuð jöfnum áföng­um.

Ballarin var svo stödd hér á landi á ný um miðjan ágúst. Frétta­vef­ur­inn Túristi.is, sem sér­hæfir sig í ferða­þjón­ustu­tengdum frétt­u­m, greindi þá frá því að erindi hennar væri að að reyna aftur við stofnun nýs flug­fé­lags á grunni WOW air. Hér­lendis voru full­trúar hennar sagðir almanna­teng­ill­inn Gunnar Steinn Páls­son og lög­mað­ur­inn Páll Ágúst Ólafs­son.

Sveinn Andri Sveins­son, annar skipta­stjóra þrota­bús WOW air, sagði á þeim tíma, í sam­tali við Kjarn­ann, að Ballarin hefði ekki sett sig í sam­band við þrota­búið á ný.

Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skipta­stjóra WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár