Seldu losunarheimildir til að borga laun fyrir marsmánuð

Skipta­stjórar WOW air eru meðal ann­ars búnir að selja skrif­stofu­búnað og reið­hjóla­leigu WOW air til að auka end­ur­heimtir í búið. Félagið hafði selt margar verð­mætar eignir, t.d. afgreiðslu­tíma á flug­velli og los­un­ar­heim­ildir, fyrir gjald­þrot.

WOW átti ekki mikið af eignum þegar félagið fór í þrot. Félagið átti til að mynda enga fast­eign en leigði fjöl­margar slíkar. Fast­eignir í eigu félags­ins höfðu verið seldar í dauða­stríð­inu til að tryggja WOW air laust fé.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skipta­stjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal ann­ars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjald­þrot í lok mars. Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um nið­ur­stöðu hennar hér.

Skömmu fyrir gjald­þrot WOW air seldi félagið los­un­ar­heim­ildir kolefnis fyrir um 450 millj­ónir króna. Upp­hæð­ina átti að nota til að borga laun fyrir mars­mánuð. WOW air hafði fengið umræddar los­un­ar­heim­ildir úthlutað án end­ur­gjalds og virði þeirra hafði hækkað umtals­vert á starfs­tíma félags­ins.

Vandséð er hvernig stjórn­endur WOW air ætl­uðu að starfa áfram án los­un­ar­heim­ilda, en flug­rek­endur þurfa að afla sér slíkra til að mega fljúga.

Í skýrslu skipta­stjór­anna kemur fram að fjár­hæðin sem los­un­ar­heim­ild­irnar voru seldar fyrir hafí ekki verið greidd við þrot WOW air, en að hún hafi nú skilað sér „eftir nokkra eft­ir­gangs­muni“.

[adspot]WOW air seldi líka alla afgreiðslu­tíma sína á Gatwick flug­velli seint á síð­asta ári, en slíkir afgreiðslu­tímar, eða „slott“, eru afar eft­ir­sóttir. Þegar greint var frá söl­unni, sem var líkt og annað á þeim tíma fram­kvæmt til að verða sér úti um fljót­legt reiðufé til rekstrar WOW air, var verðið ekki gefið upp og sgt trún­að­ar­mál.

Í skýrslu skipta­stjór­anna kemur hins vegar fram að enn hafi verið um 200 millj­ónir króna af kaup­verð­inu ógreiddar á þeim tíma sem félagið fór til gjald­þrot. Þær 200 millj­ónir króna skyldu þó aðeins greið­ast ef WOW air yrði úthlutað afgreiðslu­tímum á Gatwick flug­velli vet­ur­inn 2019-2020. Úthlutun þeirra tíma fór fram í maí 2019, nokkru eftir að WOW air var farið í þrot. í skýrsl­unni segir að þrota­bú­inu hafi tek­ist „að fá afgreiðslu­tímum úthlut­uðum til sín þrátt fyrir gjald­þrot og gat því efnt samn­inga við kaup­endur. Það útheimti mikla vinnu skipta­stjóra sem og inn­lendra og erlendra sér­fræð­inga að tryggja þá úthlutun afgreiðslu­tíma til þrota­bús­ins og greiðslu eft­ir­stöðva kaup­verðs.“

Fleira hefur verið selt. Til að mynda vara­hluta- og verk­færa­lager WOW air, bílar, skrif­stofu­hús­gögn, skrif­stofu­bún­aður, lager, reið­hjóla­leiga auk þess sem end­ur­heimst hafa 111 millj­ónir króna vegna fjár­muna sem settir höfðu verið til trygg­inga á ýmsum við­skiptum.

Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skipta­stjóra WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár