Bandarískt fyrirtæki kaupir eignir af þrotabúi WOW air

USAerospace Associates LLC ætlar að greina frá kaupum á eignum úr þrota­búi WOW air á Grillinu á Hótel Sögu síðar í dag.

Mun WOW air taka á loft að nýju?
Mun WOW air taka á loft að nýju? Mynd: EPA

Banda­ríska fyr­ir­tækið USAerospace Associates LLC hefur boðað til blaða­manna­fundar í dag klukkan 13:30 á Grillinu á Hótel Sögu þar sem það mun til­kynna um kaup sín á eignum af skipta­stjórum þrota­bús WOW Air. Michele Roosevelt Edwards, stjórn­ar­for­maður USAerospace Associates LLC, boðar til blaða­manna­fund­ar­ins. 

[links]Sveinn Andri Sveins­son, annar skipta­stjóra WOW air, vildi ekk­ert tjá sig um málið í sam­tali við Kjarnann.

Í skýrslu skipta­stjóra WOW air, sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins í ágúst, kemur fram að þrotabú félags­ins væri enn í við­ræðum við nokkra aðila um sölu á vöru­merk­inu WOW air, lénum félags­ins, bók­un­ar­vél og ýmsu lausafé sem teng­ist rekstri félags­ins. „Þær við­ræður ganga ágæt­lega og von­ast skipta­stjórar til þess að ljúka samn­ingum um sölu þeirra eigna,“ sagði í skýrsl­unni. 

Eini áhuga­sami kaup­and­inn sem greint hafði verið frá opin­ber­lega á þeim tíma var banda­ríska athafna­konan Michelle Ball­ar­in. Hún gengur einnig undir nafn­inu Michele Roosevelt Edwards og er sú sem heldur fund­inn á eftir en Michelle tók upp Ballarin nafnið þegar hún gift­ist fyrri eig­in­manni sínum.

Hún gerði kaup­samn­ing um valdar eignir úr þrota­búi WOW air í júlí. Hún kom svo í við­­tal við Við­­skipta­Mogg­ann skömmu síðar og þar full­yrti hún að búið væri að tryggja millj­­arða króna til rekst­­urs nýs flug­­­fé­lags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin. 

[adspot]Í lok júlí var kaup­unum hins vegar rift vegna þess að síend­­ur­­tekið hafði dreg­ist að borga fyrstu greiðslu sam­­kvæmt kaup­­samn­ingi sem gerður var milli félags Ball­arin og þrota­­bús­ins. Heild­­ar­um­­fang við­­skipt­anna átti að vera ríf­­lega 180 millj­­ónir króna og sú greiðsla að greið­­ast í þremur nokkuð jöfnum áföng­­um.

Ball­arin var svo stödd hér á landi á ný um miðjan ágúst. Frétta­vef­ur­inn Túrist­i.is, sem sér­­hæfir sig í ferða­­þjón­ust­u­tengdum frétt­u­m, greindi þá frá því að erindi hennar væri að að reyna aftur við stofnun nýs flug­fé­lags á grunni WOW air. Hér­­­lendis voru full­­trúar hennar sagðir almanna­teng­ill­inn Gunnar Steinn Páls­­son og lög­­­mað­­ur­inn Páll Ágúst Ólafs­­son.

Sveinn Andri sagði á þeim tíma, í sam­tali við Kjarn­ann, að Ball­arin hefði ekki sett sig í sam­­band við þrota­­búið á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár