Félag sem heitir WOW air Ltd., og er skráð í Englandi, var lengi vel í persónulegri eigu Skúla Mogensen. Félagið hét áður Mogensen Limited en nafni þess var breytt fyrir nokkrum árum. Starfsemi félagsins fólst aðallega í að leigja íbúð í London. Skúli Mogensen og kærasta hans bjuggu í umræddri íbúð en þau héldu heimili á Íslandi og í London.
[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu skiptastjóra WOW air sem kynnt var fyrir kröfuhöfum félagsins fyrir rúmri viku. Skýrslan byggir meðal annars á athugun Deloitte á því sem átti sér stað innan WOW air áður en félagið fór í gjaldþrot í lok mars. Hægt er að lesa ítarlega skýringu um niðurstöðu hennar hér.
Í skýrslu skiptastjóranna segir að flugfélagið hafi greitt 37 milljónir króna í leigu vegna íbúðarinnar á tveggja ára tímabili, frá 28. mars 2017 og þangað til að WOW air fór í þrot. Það þýðir að meðaltalsmánaðarleiga hefur verið rúmlega 1,5 milljón króna á mánuði.
WOW air Ltd. var framselt til WOW air í september 2018, sama mánuði og skuldabréfaútboð félagsins fór fram. Skiptastjórarnir segja að enginn samningur hafi veirð í gildi milli WOW air og WOW air Ltd. „vegna þessarar íbúðar og þá voru greiðslur WOW vegna hennar ekki samþykktar í stjórn félagsins.“
[adspot]Leigugreiðslurnar hafi einfaldlega verið vegna greiðslu á persónulegum kostnaði hluthafa WOW air, Skúla Mogensen. Í skýrslunni segir enn fremur að Deloitte telji, að lokinni athugun sinni, að „greiðslur WOW vegna reksturs og leigu fyrrgreindrar íbúðar hafi ekki verið reistar á viðskiptalegum forsendum enda engar vísbendingar um að íbúðin hafi verið nýtt í þágu starfsmanna WOW, hvorki flugfólks né annarra almennra starfsmanna. Skiptastjórar skoða nú að krefjast endurgreiðslu þess fjár sem WOW greiddi vegna fyrrgreindrar íbúðar.“
Skúli Mogensen sagði í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla síðastliðinn mánudag að þegar WOW air hafi farið að leigja íbúðina, í byrjun árs 2017, hafi flugfélagið verið að undirbúa opnun á nýrri starfsstöð í London eða Dublin og jafnframt verið að skoða mögulega skráningu á markaði í London. „Hvort tveggja kallaði á verulega viðveru forstjóra í London. WOW air skilaði yfir 4 milljörðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðlilegt skref í áframhaldandi uppbyggingu WOW air á þeim tíma og ekkert óeðlilegt við það að félagið skyldi leigja húsnæði fyrir forstjóra félagsins í þeim tilgangi að sinna þeim verkefnum.“
Þessi frétt er hluti af stærri umfjöllun um skýrslu skiptastjóra WOW air.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir