„Engin hætta á ferðum en stórslys sett á svið“

Þing­maður Við­reisnar furðar sig á við­brögðum stjórn­valda við frétta­flutn­ingi af meintu útflutn­ings­banni ESB á bólu­efni til Íslands. Hún segir stjórn­völd hafa „manað upp“ storm í vatns­glasi og flutt æfðar ræður um hættu sem aldrei var til staðar.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar furð­aði sig á við­brögðum íslenskra stjórn­valda við fréttum af nýrri reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um mögu­legar útflutn­ings­hömlur á bólu­efnum á þingi í morgun.

Hún kall­aði málið storm í vatns­glasi sem „íslensk stjórn­völd mön­uðu upp vegna heima­til­bú­ins mis­skiln­ings um að Evr­ópu­sam­bandið ætl­aði að skilja okkur eftir.“

„Fréttir um að Evr­ópu­sam­bandið myndi ekki flytja bólu­efni til Íslands – „fréttir“ í gæsa­löppum – voru strax bornar til baka og engin hætta á ferðum. En eftir að mis­skiln­ing­ur­inn var leið­réttur komu íslensk stjórn­völd fram, grjót­hörð, og töl­uðu um að það skyldi nú eng­inn svína á okkur, allra síst ljóta Evr­ópu­sam­bandið. Það bros­lega er kannski að þessi við­brögð kom fram eftir stað­fest­ingu frá for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­band­ins – það stóð aldrei til að hindra bólu­efna­send­ingar til Íslands.“

Hanna Katrín sagði von­andi að þessi nýja reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins myndi skila árangri við að auka fjölda bólu­efna­skammta sem Evr­ópu­sam­bandið fengi – vegna þess að Ísland myndi njóta góðs af því til jafns við ríki ESB.[links]

For­sæt­is­ráðu­neytið og utan­rík­is­ráðu­neytið sendu frá sér til­kynn­ingu á mið­viku­dags­kvöld vegna frétta­flutn­ings um reglu­gerð­ina þar sem allur vafi var tek­inn af um að reglu­gerðin hefði ekki áhrif á flutn­ing bólu­efna til Íslands. Þó kom einnig fram að útflutn­ings­hömlur af því tagi sem ESB boð­aði til Íslands gengju í ber­högg við EES-samn­ing­inn og þeim skila­boðum hefði verið komið „skýrt á fram­færi“ við fram­kvæmda­stjórn ESB.

Hanna Katrín sagði að þessi við­brögð hefðu verið „svo­lítið eins og æfð almanna­varna­æf­ing,“ engin hætta hefði verið á ferðum en „stór­slys sett á svið“.

„Stjórn­völd flytja svo æfða ræðu um hættu sem aldrei var til staðar. Ein­hvern­veg­inn læð­ist að manni, áhorf­and­anum, að sú ræða hafi verið ætluð ein­hverjum aft­ur­sæt­is­bíl­stjórum sem verið var að vinna gagn frekar en íslenskri þjóð,“ sagði Hanna Katrín.

Umdeild reglugerð

Reglu­gerðin hefur verið umdeild innan Evr­ópu­sam­bands­ins og meðal ann­ars verið gagn­rýnd harð­lega af Jean-Claude Juncker, fyrr­ver­andi for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, sem hefur sagt þessa til­burði Evr­ópu­sam­bands­ins, sem ljós­lega bein­ast fyrst og fremst gegn Bretum, til þess fallna að skaða ímynd þess.

[adspot]

Frétta­skýrendur, til dæmis hjá evr­ópsku útgáfu Politico, hafa einnig bent á að þrátt fyrir að ESB sé með þess­ari nýju reglu­gerð að taka sér vald til þess að hafna útflutn­ingi á bólu­efni frá verk­smiðjum innan sam­bands­ins til ákveð­inna ríkja, sé það ekki sjálf­krafa í neinni stöðu til þess að krefja fram­leið­endur um að afhenda ríkjum ESB þessi bólu­efni.

Þetta ját­aði vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, Valdis Dombrovskis, á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag­inn. „Þetta er útflutn­ings­leyfa­kerfi, það segir ekki til um hvað fyr­ir­tækin eiga að gera við skammt­ana sem eru undir,“ var haft eftir Dombrovskis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár