Nýjar reglur ESB muni ekki hafa áhrif á Ísland

Stjórn­völd segja for­sæt­is­ráð­herra hafa fengið „skýr skila­boð“ í dag frá for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB um að nýjar reglur ESB um útflutn­ings­hömlur á bólu­efnum muni ekki hafa áhrif á afhend­ingu bólu­efna til Íslands.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fékk í dag „skýr skila­boð“ frá Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, um að nýjar reglur ESB um útflutn­ings­hömlur á bólu­efni muni ekki hafa áhrif á afhend­ingar bólu­efna til Íslands frá aðild­ar­ríkjum ESB, í sam­ræmi við þá samn­inga sem gerðir hafa verið.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem for­sæt­is­ráðu­neytið og utan­rík­is­ráðu­neytið sendu frá sér í sam­ein­ingu í kvöld, en fréttir hafa í kvöld verið fluttar af því að ESB ætli sér að banna flutn­ing á bólu­efni til Íslands. Þetta er hins vegar ekki rétt, sam­kvæmt stjórn­völdum.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­anna tveggja segir að ekki sé ástæða til að ætla að nýrri reglu­gerð ESB verði beitt gegn Íslandi né að hún hafi ein­hver áhrif á afhend­ingar bólu­efna til Íslands.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórnar ESB um reglu­gerð­ar­breyt­ing­arnar er Ísland þó eitt 17 ríkja sem ESB gæti beitt útflutn­ings­hömlum gagn­vart við ákveðnar aðstæður. Tvær ástæður gætu verið fyrir því að ESB beiti þessum útflutn­ings­hömlum, sam­kvæmt til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

Í fyrsta lagi hyggst ESB byrja að skoða hvort landið sem verið er að flytja bólu­efni til sé með hömlur á eigin útflutn­ingi bólu­efna eða hrá­efna í bólu­efni, ýmist með lögum eða öðrum leiðum. Í annað stað hyggst ESB byrja að meta hvort aðstæður í land­inu sem flytja á bólu­efni til séu betri eða verri en í ríkjum ESB, hvað stöðu far­ald­urs­ins varðar, hlut­fall bólu­settra og aðgang að bólu­efnum.

Bretar telja að þessar útflutn­ings­hömlur bein­ist sér­stak­lega gegn þeim og það er ekki ósenni­leg túlkun.

Samkvæmt frétt Politico, sem birt­ist undir kvöld, hafa Bretland og Evr­ópu­sam­bandið þó heitið því að vinna að því að bæta sam­skipti sín á milli hvað bólu­efni varðar og sent frá sér sam­eig­in­lega en inni­halds­rýra yfir­lýs­ingu um að sam­starf sé mik­il­vægt og að við­ræðum verði haldið áfram með það að mark­miði að ná fram nið­ur­stöðu sem allir hagn­ist á.

Útflutningshömlur myndu fara gegn EES-samningnum

Í til­kynn­ingu íslenskra stjórn­valda segir að mögu­legar útflutn­ings­hömlur af því tagi sem ESB boðar, til Íslands eða ann­arra EFTA-ríkja, gangi í ber­högg við EES-samn­ing­inn. Noregur er einnig á list­anum og er EFTA-ríki rétt eins og Íslands.

„Því hefur Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra rætt við utan­rík­is­ráð­herra Noregs til að stilla saman strengi og óskað atbeina utan­rík­is­við­skipta­ráð­herra Sví­þjóðar til að knýja á um skjóta lausn máls­ins. Mun hann eiga fleiri fundi með evr­ópskum ráða­mönnum á morgun,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Þessum skila­boðum hefur einnig verið komið skýrt á fram­færi við fram­kvæmda­stjórn ESB, sam­kvæmt til­kynn­ingu stjórn­valda. Lögð er áhersla á að reglu­gerð­inni verði breytt og Ísland form­lega und­an­þegið útflutn­ings­hömlum, í sam­ræmi við EES-samn­ing­inn.

Stað­geng­ill sendi­herra ESB á Íslandi var kall­aður til fundar í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í dag vegna þessa máls, sam­kvæmt til­kynn­ingu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár