Ætla að ræða betur framtíð Skjálfandafljóts frá „upptökum til ósa“

Í ljósi athuga­semda sem komu fram í kjöl­far kynn­ingar á skipu­lags­á­formum vegna Ein­búa­virkj­unar í Skjálf­anda­fljóti hefur sveit­ar­stjórn Þing­eyj­ar­sveitar ákveðið að kæla málið og ræða það betur. Engin virkjun er í fljót­inu í dag.

Skjálfandafljót rennur í flúðum um hið fyrirhugaða framkvæmdasvæði Einbúavirkjunar.
Skjálf­anda­fljót rennur í flúðum um hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði Ein­búa­virkj­unar. Mynd: SUNN

Sveit­ar­stjórn Þing­eyj­ar­sveitar hefur ákveðið að vísa skipu­lags­til­lögum vegna fyr­ir­hug­aðrar Ein­búa­virkj­unar í Skjálf­anda­fljóti til heild­ar­skoð­unar á aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins sem nú er í vinnslu. Ákvörð­unin var tekin í gær og felur í sér stefnu­breyt­ingu því um miðjan jan­úar sam­þykkti sveit­ar­stjórn að aug­lýsa til­lög­urnar í sam­ræmi við skipu­lags­lög að und­an­geng­inni kynn­ingu fyrir íbúum og öðrum hags­muna­að­ilum.

Sá kynn­ing­ar­fundur var hald­inn í félags­heim­il­inu Kiðagili 28. jan­úar og streymt í gegnum Facebook. Líkt og Kjarninn greindi frá kom þar fram hörð gagn­rýni á hina fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd sem og á til­högun kynn­ing­ar­fund­ar­ins sem umhverfis- og skipu­lags­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins boð­aði til en sveit­ar­stjórn­ar­menn voru ekki til svara á. Um kynn­ing­una sáu alfarið fram­kvæmda­að­ilar og full­trúar verk­fræði­stof­unnar Verkís sem vann bæði umhverf­is­mat virkj­un­ar­innar sem og skipu­lags­til­lög­urnar.

[adspot]

Í ljósi þeirra athuga­semda sem fram komu á kynn­ing­ar­fund­inum og í kjöl­far hans hefur sveit­ar­stjórnin ákveðið að halda fund með land­eig­endum að Skjálf­anda­fljóti „og ræða nýt­ing­ar­á­form og fram­tíð­ar­sýn varð­andi fljótið,“ líkt og segir í bókun sveit­ar­stjórnar frá fundi gær­dags­ins. Jafn­framt áformar sveit­ar­stjórn fleiri almenna kynn­ing­ar­fundi um mál­efnið. Arnór Ben­ón­ýs­son, odd­viti Þing­eyj­ar­sveitar, sagði í sam­tali við RÚV í gær að sveit­ar­stjórn vilji gefa mál­inu meiri tíma og dýpka umræð­una. Hann segir til­efni til að ræða heild­stætt um Skjálf­anda­fljót frá „upp­tökum til ósa“.

[links]Ein helsta gagn­rýnin sem kom fram á fund­inum í Kiðagili á dög­unum var sú að of lítið sam­ráð hefði verið haft við íbúa og að sam­fé­lags­leg áhrif af virkj­un­inni óljós. Guðrún Sigríður Tryggva­dóttir, bóndi í Svart­ár­koti í Bárð­ar­dal, sagði á fund­inum að Ein­búa­virkjun væri ekk­ert meðal dal­bú­anna. Hún velti því upp hvort að það væri ekki einmitt rík ástæða til að ræða málin, „jafn­vel þó að þau séu erfið“. Guðrún sagð­ist telja að ein helsta ástæða þess að fyr­ir­huguð Ein­búa­virkjun hafi ekki verið rædd sé hvernig við­brögðin urðu í aðdrag­anda Svart­ár­virkj­unar „Við erum svo góð í því að ákveða að láta ekki eitt­hvað svona eyði­leggja sam­fé­lagið okkar að við ræddum þetta ein­fald­lega aldrei. Þetta var sett til hliðar.“

Ein­búa­virkjun ehf., félag í eigu Hilmars Ágústs­sonar og Krist­jáns Gunnars Rík­harðs­sonar, hefur áform um að reisa 9,8 MW virkjun í Skjálf­anda­fljóti í landi jarð­anna Kálf­borg­arár og Einbúa í Bárð­ar­dal.

Uppgangur aflminni virkjana

Engin virkjun er í Skjálf­anda­fljóti í dag en tvær virkj­ana­hug­myndir, Fljóts­hnúks­virkjun og Hrafna­bjarga­virkjun, eru í vernd­ar­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem enn hefur ekki verið sam­þykkt á Alþingi, meira en fjórum árum eftir að hún var fyrst lögð fram. Ein­búa­virkjun fellur hins vegar ekki undir ákvæði laga um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun (ramma­á­ætlun) þar sem hún er undir 10 MW að upp­settu afli. Slíkar virkj­ana­hug­myndir, sem stundum hafa verið nefndar smá­virkj­anir, m.a. af Orku­stofnun, hafa í auknum mæli komið fram síð­ustu miss­eri og margar valdið deilum.

Skipu­lags­stofnun gaf álit sitt á mats­skýrslu Ein­bú­ar­virkj­unar síð­asta sumar og komst m.a. að þeirri nið­ur­stöðu að eld­hrauni yrði raskað sem sýna þyrfti fram á brýna nauð­syn til sem stofn­unin taldi ekki til staðar.

Í grein­ar­gerð aðal­skipu­lags Þing­eyj­ar­sveitar, sem sam­þykkt var árið 2011, kemur fram sú stefna sveit­ar­fé­lags­ins að nýta vatns­afl innan þess, sé það til hags­bóta fyrir íbúa og í sam­ræmi við sjálf­bæra þróun. „Þing­eyj­ar­sveit telur eft­ir­sókn­ar­vert að kanna frekar fram­tíð­ar­mögu­leika á og kosti þess að byggja fleiri virkj­anir til einka­nota sem og orku­sölu á frjálsum raf­orku­mark­aði, en sveit­ar­fé­lagið er á móti hug­myndum um að virkja Skjálf­anda­fljót.“

Dagbjört Jóns­dóttir, sveit­ar­stjóri Þing­eyj­ar­sveitar, sagði við Kjarnann fyrr í vik­unni að engin sér­stök tíma­mörk væru á því kynn­ing­ar­ferli sem skipu­lags­á­form Ein­búa­virkj­unar væru nú í þar sem aug­lýs­inga­ferli væri ekki hafið.

Skipu­lags­ferlið hófst hins vegar fyrir rúmu ári. Þá sam­þykkti sveit­ar­stjórn með fimm atkvæðum af sjö að gerð yrði skipu­lags- og mats­lýs­ingu vegna breyt­ingar á aðal­skipu­lagi í sam­ræmi við óskir fram­kvæmd­ar­að­ila. Á þeim tíma lá frum­mats­skýrsla Ein­búa­virkj­unar ehf. fyrir. Í júlí var skipu­lags- og mats­lýs­ingin aug­lýst en á kynn­ing­ar­tím­anum, sem stóð til 6. ágúst, birti Skipu­lags­stofnun álit sitt á mats­skýrslu fram­kvæmda­að­ila um virkj­un­ina.

Sam­ein­ing­ar­við­ræður standa nú yfir milli Þing­eyj­ar­sveitar og Skútu­staða­hrepps.

Settu skilyrði

Á sveit­ar­stjórn­ar­fund­inum nú í jan­úar, þegar Ein­búa­virkjun var til umfjöll­unar skipu­lags­til­lög­urnar sam­þykktar til aug­lýs­ingar að und­an­geng­inni kynn­ingu var það gert með þeim skil­yrðum „að skýrt verði að frá­rennsl­is­göng séu skil­yrði sam­kvæmt val­kosti A í skipu­lags­til­lög­unum“. Er þetta skil­yrði í sam­ræmi við þá nið­ur­stöðu Skipu­lags­stofn­unar að jarð­göng hefðu minni umhverf­is­á­hrif en opinn veitu­skurður á þeim 2,6 kíló­metra kafla sem vatni yrði veitt úr far­vegi Skjálf­anda­fljóts eins og gert er ráð fyrir í öðrum val­kostum.

Að mati Skipu­lags­stofn­unar ætti að gera ráð fyrir þeim jarð­ganga­kosti sem aðal­val­kosti, sýni rann­sóknir á jarð­lögum fram á að slíkt sé ger­legt. „Ætti fram­kvæmd­ar­að­ili að leggja fram gögn sem sýna fram á að slíkt sé ekki hægt, verði það raunin,“ sagði í áliti Skipu­lags­stofn­unar. „Það er jafn­framt hlut­verk sveit­ar­fé­lags, í sam­vinnu við fram­kvæmd­ar­að­ila að fylgja þessu atriði eftir við deiliskipu­lags­gerð og und­ir­bún­ing fram­kvæmda­leyfis.“

Náttúruverndin fagnar

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN, fagna þeirri ákvörðun sveit­ar­stjórnar Þing­eyj­ar­sveitar að setja ferli skipu­lags­breyt­inga vegna Ein­búa­virkj­unar á bið. Í frétta­til­kynn­ingu segir að sam­tökin hafi verið „ugg­andi vegna áforma um virkjun Skjálf­anda­fljóts“ og hafi talað afdrátt­ar­laust gegn þeim. Mikið fagn­að­ar­efni sé að sveit­ar­stjórn bregð­ist við þeirri umræðu sem hefur skap­ast vegna máls­ins und­an­farið.

Ef Ein­búa­virkjun yrði að veru­leika yrðu stórir opnir skurðir grafnir í lands­lagið við bakka Skjálf­anda­fljóts og virkj­unin yrði nálægt einni af skil­greindum gáttum inn í fyr­ir­hug­aðan hálend­is­þjóð­garð. Telja sam­tökin mikla nátt­úru­vernd­ar­hags­muni fólgna í því að vernda allt Skjálf­anda­fljót fyrir virkj­unum. „Mögu­leikar á raf­orku­fram­leiðslu á þegar rösk­uðum svæðum eru til staðar og ættu alltaf að njóta for­gangs þegar og ef orku­þörf kallar á frek­ari fram­leiðslu,“ segir í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna. „Ein­búa­virkjun hefði ekk­ert gert fyrir sam­fé­lagið í Bárð­ar­dal.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár