Hámarksálag á reikisímtöl verður lækkað um tæp fjögur prósent

Evr­ópu­sam­bandið hefur sett reglu­gerð sem lækkar þá upp­hæð sem fjar­skipta­fyr­ir­tæki mega rukka fyrir umfram­notkun reikisím­tala. Til stendur að taka reglu­gerð­ina upp í EES-samn­ingnum og þar með hér­lendis.

Hámarks­á­lag sem fjar­skipta­fyr­ir­tæki mega leggja á umfram­notkun reikisím­tala í far­síma mun lækka úr 0,0079 í 0,0076 evrur fyrir hverja mín­útu í ár, eða um tæp fjögur pró­sent, sam­kvæmt reglu­gerð fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins sem er dag­sett 14. des­em­ber 2020.

Fyr­ir­hugað er að taka reglu­gerð­ina upp í samn­ing­unum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) sem Ísland er aðili að, og í kjöl­farið verður hún leidd í lands­rétt hér­lendis.

Drög að reglu­gerð­inni hafa verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og umsagn­ar­frestur rennur út um miðja næstu viku. Verði reglu­gerðin sam­þykkt mun hún sam­stundis öðl­ast gildi.

Reikisím­töl eru sím­töl við­skipta­vina erlendis. Sérstök reiki­gjöld, sem áður höfðu verið afar kostn­að­ar­söm fyrir neyt­endur, voru afnumin í Evrópu í júní 2017 en með ákveðnum tak­mörk­unum. Mikil notkun á þekktum efn­isveitum á borð við Spotify, Netflix og ann­arra slíkra sem nota mikið gagna­magn getur leitt til auka­kostn­aðar. Og það er sá auka­kostn­aður sem reglu­gerðin nær til.

[adspot]Íslensku fjar­skipta­fyr­ir­tækin hafa haft umtals­verðar tekjur af reiki á und­an­förnum árum, sam­hliða því sem ferða­mönnum hér­lendis hefur fjölgað mikið. Umfram­notkun þeirra hér­lendis, og umfram­notkun Íslend­inga á ferðum þeirra erlendis, skilar tekjum til þeirra.

Þegar ferða­mönnum fækk­aði úr tæpum tveimur millj­ónum árið 2019 í tæp­lega hálfa milljón í fyrra vegna COVID-19 dróg­ust reiki­tekjur þeirra skarpt saman. Far­síma­tekjur Sýnar dróg­ust til a mynda saman um 275 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs og var sá sam­dráttur að mestu rak­inn til þess að reiki­tekjur lækk­uðu um 60 pró­sent.

Síminn, hitt fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem er skráð á markað, fór ekki var­hluta af þess­ari þróun heldur. Tekjur hans vegna far­síma­notk­unar dróg­ust saman um 198 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs og var sá sam­dráttur að uppi­stöðu vegna þess að reiki­tekjur hafa dreg­ist saman sam­hliða því að ferða­tak­mark­anir hafa gert það að verkum að ferða­menn koma ekki lengur til lands­ins svo nokkru nemi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár