Minni samdrætti spáð í ESB en á Íslandi

Lands­fram­leiðsla dróst saman um rúm sex pró­sent í aðild­ar­ríkjum ESB í fyrra að með­al­tali. Sam­drátt­ur­inn var minnstur í Norður-Evrópu en mestur í Mið­jarð­ar­hafs­lönd­unum.

Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evrópulanda úr yfirstandandi kreppu.
Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evr­ópu­landa úr yfir­stand­andi kreppu. Mynd: Pexels - Alex Azabache

Sam­dráttur í lands­fram­leiðslu hjá aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) nam 6,4 pró­sentum í fyrra, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Eurostat í gær. Þetta er minni sam­dráttur en búist er við að hafi átt sér stað hér á landi, en Hag­stofan áætlar að hann hafi numið 7,6 pró­sentum.

Kreppan minnst í norðri

Í til­kynn­ingu sinni birti Eurostat einnig áætl­aðar tölur um lands­fram­leiðslu í fyrra á meðal 10 aðild­ar­ríkja ESB. Samkvæmt þeim var sam­drátt­ur­inn í fyrra minnstur í Norður-Evrópu en ann­ars staðar í álf­unni, en lands­fram­leiðsla dróst aðeins saman um 1 til 3,5 pró­sent í Lett­landi, Svíþjóð og Litháen. [adspot]

Höggið þyngra í Mið-og Suður-Evrópu

Sam­drátt­ur­inn var nokkuð meiri í Þýska­landi, Tékk­landi og Aust­ur­ríki, en þar var hann á bil­inu 5,3 til 7,4 pró­sent. Það er þó minni sam­dráttur en búist er við á Íslandi, en sam­kvæmt þjóð­hags­spá Hagstofu má gera ráð fyrir að lands­fram­leiðsla hér drag­ist saman um 7,6 pró­sent.

Ísland væri frekar í flokki Mið­jarða­haf­s­land­anna, sem koma verst allra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins úr krepp­unni sem hófst í fyrra. Í Portúgal, Frakk­landi, Ítalíu og á Spáni dróst lands­fram­leiðsla saman um 7,6 til 11 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt tölum Eurostat. Muninn á sam­drætt­inum milli landa má sjá á mynd hér að ofan.

Þriðji fjórðungurinn þungur á Íslandi

Ef þróun lands­fram­leiðslu er skoðuð á milli árs­fjórð­unga kemur Ísland ágæt­lega vel út í sam­an­burði við Evr­ópu­sam­bandið á fyrri helm­ingi árs­ins. Hins vegar var sam­drátt­ur­inn rúm­lega tvö­falt dýpri hér­lendis heldur en hjá ESB á þriðja fjórð­ungi árs­ins, þ.e. frá júlí og út sept­em­ber.

Munurinn sést á mynd­inni hér að ofan, þar sem árs­fjórð­ungs­tölur um lands­fram­leiðslu innan ESB eru bornar saman við sam­bæri­legar tölur hér­lendis frá Hagstofu. Hag­vöxtur á fjórða árs­fjórð­ungi hér­lendis er svo met­inn útfrá þjóð­hags­spá Hagstofu um hag­vöxt á árinu 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár