Fagna ákvörðun Breta um að bólusettir sleppi við sóttkví

„Hvenær ætla Banda­ríkin að svara í sömu mynt?“ spyrja Alþjóða sam­tök flug­fé­laga sem fagna ákvörðun Breta um að aflétta sótt­kví­ar­kröfum á bólu­setta far­þega frá Banda­ríkj­unum og ESB-ríkjum.

Eftir helgi verða breytingar á ferðatakmörkunum til Bretlands.
Eftir helgi verða breyt­ingar á ferða­tak­mörk­unum til Bret­lands. Mynd: EPA

Alþjóða­sam­tök flug­fé­laga (IATA) fagna því að frá og með næsta mánu­degi þurfi bólu­settir far­þegar frá flestum ríkjum ESB sem og Banda­ríkj­unum ekki lengur að fara í sótt­kví við kom­una til Bret­lands né að fara í sýna­töku á átt­unda degi. Í til­kynn­ingu segja sam­tökin þessa ákvörðun breskra yfir­valda „jákvæða, rök­rétta og löngu tíma­bæra“ og eigi eftir að koma efna­hag lands­ins til góða, sér­stak­lega ferða­þjón­ust­unni.

Hins vegar furða sam­tökin sig á því að áfram þurfi full­bólu­settir far­þegar frá mörgum löndum að fara í ein­angrun og sýna­töku á landa­mærum Bret­lands. Þá hafa þau einnig áhyggjur af stöðu sam­bæri­legra mála í Banda­ríkj­unum þar sem strangar ferða­tak­mark­anir hafa verið fram­lengdar vegna útbreiðslu delta-afbrigðis kór­ónu­veirunnar. „Hvenær ætla Banda­ríkin að svara í sömu mynt?“ spyrja sam­tökin í til­kynn­ing­unni.

Breyt­ing­arnar á landa­mærum Bret­lands eiga almennt að ná til allra aðild­ar­ríkja ESB sem og Íslands og Noregs en þó er Frakk­land enn á „rauðum lista“ vegna útbreiðslu far­ald­urs­ins þar í landi. Sú ákvörðun hefur verið harð­lega gagn­rýnd af franska utan­rík­is­ráð­herr­anum sem segir ákvörðun breskra yfir­valda „óskilj­an­lega“ og mis­muna fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár