Mögulegt þorskastríð í vændum á milli Noregs og ESB

Fisk­veiði­skip frá ESB sem veiða við strendur Sval­barða gætu átt í hættu á að verða kyr­sett þar á næstu vikum. Aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Noregs segir sam­bandið ekki hafa neinn laga­legan grund­völl fyrir að veiða í norskri lög­sögu.

Longyearbyen á Svalbarða í Noregi.
Longye­ar­byen á Sval­barða í Noregi. Mynd: EPA

Svo gæti farið að norska rík­is­stjórnin kyrr­setji fisk­veiði­skip á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) sem veiða í norskri lög­sögu skammt frá Sval­barða á næstu vikum og að sam­bandið svari með banni á norskum inn­flutn­ingi. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Politico, en mið­ill­inn segir nýtt þorska­stríð vera mögu­lega í upp­sigl­ingu á milli ESB og Noregs.

Samkvæmt umfjöllun Politico snú­ast deil­urnar um fisk­veiði­kvóta við strendur Sval­barða sem bresk fiski­skip nýttu sér upp­haf­lega en eru nú í höndum aðild­ar­ríkja ESB eftir útgöngu Bret­lands úr sam­band­inu. Yfirvöld í Noregi segj­ast hins vegar hafa einka­rétt á að úthluta kvótum í norskri lög­sögu og gagn­rýna því til­kall ESB-ríkja til kvót­ans.

„Það er eng­inn laga­legur grund­völlur í alþjóða­lögum fyrir Evr­ópu­sam­bandið til að gefa út kvóta í norskri lög­sögu,“ segir Audun Hal­vor­sen, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Noregs, í sam­tali við Politico. Samkvæmt honum er það grund­vall­ar­at­riði að norsk stjórn­völd sjái um úthlutun kvót­ans til að tryggja sjálf­bæra nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Þar sem núver­andi kvóti sé um það bil að klár­ast segir hann einnig að eig­endur fisk­veiði­skipa frá sam­band­inu verði mögu­lega hand­teknir og ákærðir verði þeir staðnir að því að veiða í norskri lög­sögu.

Möguleg kyrr­setn­ing skip­anna hefur vakið hörð við­brögð hjá land­bún­að­ar­ráðu­neytum Þýska­lands, Spánar, Frakk­lands, Portú­gals og Póllands. Ráðu­neytin hafa sent fram­kvæmda­stjóra land­bún­að­ar­mála ESB sam­eig­in­legt bréf þar sem hann er beð­inn um að verja rétt­indi og hags­muni sam­bands­ins gegn fyr­ir­hug­uðum aðgerðum Norð­manna.

Samkvæmt Diek Par­levliet, for­manni sam­taka hags­muna­að­ila um Norður-Atl­ants­hafsveiðar innan Evr­ópu­sam­bands­ins, gætu kvót­arnir klár­ast í næstu viku. Hann telur lík­legt að Evr­ópu­sam­bandið komi á inn­flutn­ings­banni við Noreg ef norska rík­is­stjórnin byrjar að kyrr­setja báta frá Evr­ópu­sam­band­inu eftir það. „Við­skipta­þving­arnir eru einu vopn sam­bands­ins,“ segir hann í við­tali við Politico.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár