Mögulegt lögbrot vegna niðurrifs skipa Eimskips á Indlandi á borði stjórnvalda

Tvö skip Eimskips voru rifin í skipa­kirkju­garði í Indlandi þar sem umhverf­is­á­hrif nið­ur­rifs­ins, og starfs­að­stæður þeirra sem vinna við það, upp­fylla ekki evr­ópska staðla.

Möguleg lög­brot við flutn­ing og nið­ur­rif tveggja skipa sem voru í eigu Eimskips, Laxfoss og Goðafoss, eru á borði stjórn­valda á Íslandi og í Hollandi.

Þetta kom fram í Kveik á RÚV í kvöld þar sem fjallað var um end­ur­vinnslu skip­anna tveggja í skipa­nið­ur­rifs­stöð í Indlandi sem upp­fyllir ekki evr­ópskar reglur um end­ur­vinnslu skipa.

Samkvæmt heim­ildum Kveiks hefur beiðni um opin­bera rann­sókn á meintum ólög­legum flutn­ingi og nið­ur­rifi skip­anna tveggja verið send til emb­ættis Hér­aðs­sak­sókn­ara.

Löggjöf tók gildi á Íslandi fyrir ári síðan

Skipin tvö voru seld í des­em­ber í fyrra til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­hæfir sig í að vera milli­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­manna og umhverf­is­á­hrif nið­ur­rifs­ins eru mun lak­ari en í Evrópu. Þar eru skip oft rifin í flæð­ar­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverfið. Þá vinna starfs­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

[adspot]Laxfoss og Goðafoss voru flutt í skipa­kirkju­garð­inn í Alang á Indlandi í maí síð­ast­liðnum. Í þætti Kveiks kom fram að ein af ástæðum fyrir því að þetta þætti eft­ir­sókn­ar­vert væri sú að í Asíu sé greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­ur­rif en í Evrópu. Að minnsta kosti 137 starfs­menn í Alang hafa lát­ist við störf síð­ast­lið­inn ára­tug, sam­kvæmt því sem kom fram í Kveik.

Evr­ópu­sam­bandið (ESB) lög­festi Basel-sátt­mál­ann, sem gerður var 1998, fyrir 14 árum síðan og bann­aði þar með útflutn­ing hættu­lega og meng­andi úrgangs frá Evrópu. Frá 2018 hefur ESB svo lagt bann við því að skip yfir 500 brúttó­tonnum séu rifin ann­ars staðar en í vott­uðum end­ur­vinnslu­stöðvum. Bæði Laxfoss og Goðafoss voru yfir þeirri stærð.

Sú lög­gjöf tók gildi á Íslandi fyrir ári síðan og gildir því um starf­semi Eimskips. Brot á henni geta varðar fjár­sektum eða nokk­urra ára fang­elsi.

Lífeyrissjóðir eiga meira en helming í Eimskip

Stærsti eig­andi Eimskips er Samherji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem heldur utan um erlenda starf­semi hennar og eign­ar­hlut­inn í Eimskip, með 27,06 pró­sent hlut. Stjórn­ar­for­maður Eimskips er Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Samherja. Baldvin á nú 20,5 pró­sent hlut í Samherja hf.,, hinu félag­inu sem myndar Sam­herj­a­sam­stæð­una. Samherji er með tvö af fimm stjórn­ar­sætum í Eimskip auk þess sem sam­steypan styður einn óháðan stjórn­ar­mann óskorað til stjórn­ar­setu. Í jan­úar 2019 var svo ráð­inn nýr for­stjóri Eimskips, Vil­helm Már Þor­­­steins­­­son. Hann er frændi stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja. Vilhelm neit­aði að veita Kveik við­tal vegna umfjöll­unar þátt­ar­ins um Eimskip.

Eimskip sendi hins vegar frá sér til­kynn­ingu í síð­ustu viku, eftir að Kveikur hafði óskað eftir við­tali, þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist ekki hafa tekið ákvörðun um að senda skipin tvö til Indlands í end­ur­vinnslu, heldur hafi það verið ákvörðun GMS, sem keypti skipin af Eimskip.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga meira en helm­ing í Eimskip. Stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta eiga sam­tals 43,2 pró­sent í skipa­fé­lag­inu. Allir sjóð­irnir hafa sam­fé­lags­lega ábyrgð að leið­ar­ljósi í starf­semi sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár