Ísland fer fram á að tollasamningur við ESB um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður

Utan­rík­is­ráð­herra segir að úttekt sýni að „veru­legt ójafn­vægi“ sé í tolla­samn­ingi Íslands við Evr­ópu­sam­bandið um land­bún­að­ar­vörur. Mikið sé flutt inn en nær ekk­ert flutt út.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra, hefur óskað eftir því við Evr­ópu­sam­bandið að tolla­samn­ingur Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um land­bún­að­ar­vörur verði end­ur­skoð­aður.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. Þar segir að úttekt sem það lét fram­kvæma sýni að for­sendur samn­ings­ins hafa breyst og ójafn­vægi er á milli samn­ings­að­ila, íslenskum útflytj­endum í óhag.

[adspot]Markmið tolla­samn­ings­ins, sem er frá árinu 2015, hafi verið að skapa tæki­færi til auk­inna við­skipta milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins. „Fyrr á þessu ári sam­þykkti rík­is­stjórnin að utan­rík­is­ráðu­neytið og atvinnu­vega og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið skyldu gera úttekt á hags­munum Íslands af óbreyttum samn­ingi með hlið­sjón af þeim breyt­ingum sem orðið hafa frá gild­is­töku hans. Úttektin var unnin í nánu sam­ráði við hags­muna­að­ila, for­svars­menn bænda og afurða­stöðva, versl­unar og þjón­ustu, verka­lýðs­hreyf­ing­una og sam­tök neyt­enda.

Nið­ur­staða úttekt­ar­innar er að veru­legt ójafn­vægi ríkir í samn­ingnum. Nýting íslenskra útflytj­enda á kvótum til ESB er í flestum til­fellum lítil eða engin á meðan toll­kvótar til inn­flutn­ings frá ESB hafa nær allir verið full­nýttir og umtals­vert magn flutt inn utan kvóta. Efna­hags­legt mat utan­að­kom­andi ráð­gjafa frá síð­ast­liðnu vori og vitnað er til í úttekt­inni stað­festir þetta.“

Í nýlegri skýrslu verð­lags­eft­ir­lits Alþýðu­sam­bands­ins sem gerð var fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, kom fram að verð á inn­fluttum kjöt­vörum og ostum, þar sem toll­kvótar hafa stækkað í sam­ræmi við tolla­samn­ing­inn frá 2015, hækk­aði mun minna en við mátti búast vegna veik­ingar krón­unnar á tíma­bil­inu des­em­ber 2019 til sept­em­ber 2020. Í ein­hverjum til­vikum lækk­aði það.

Samhliða hefur úrval af búvörum, bæði inn­fluttum og inn­lendum, auk­ist. Félag atvinnu­rek­enda, hags­muna­sam­stök ýmissa aðila sem stunda sölu á mat­vöru, hefur sagt að þessi þróun sýni kosti þess að inn­lendur land­bún­aður hafi sam­keppni frá inn­flutn­ingi.

Halldóra Kristín Hauks­dóttir, stjórn­ar­kona í Bænda­sam­tökum Íslands, sagði í grein sem hún birti á Kjarn­anum í síð­ustu viku að segir það væri rangt að tolla­samn­ing­ur­inn sem gerður var við Evr­ópu­sam­bandið árið 2015 hafi skilað neyt­endum lægra verði.

Í grein hennar sagði m.a.: „Það er stað­reynd að kjöt hefur hækkað heldur meira en almennt verð­lag í land­inu, með öðrum orðum bændur fá færri krónur í vas­ann á meðan neyt­and­inn þarf að greiða fleiri. Á sama tíma og tekjur bænda rýrna hafa inn­flytj­endur á land­bún­að­ar­vörum á þessu tíma­bili feng­ið um 3 millj­arða end­ur­greidda frá rík­inu (sem neyt­endur voru búnir að borga) vegna oftek­inna skatta í formi tolla. ­Sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps, sem falið var að greina þróun toll­verndar og stöðu íslensks land­bún­aðar gagn­vart breyt­ingum í alþjóð­legu við­skiptaum­hverfi, jókst inn­flutn­ingur land­bún­að­ar­af­urða veru­lega frá 2007 til 2019. Í sumum til­fellum marg­fald­að­ist inn­flutn­ing­ur­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár