Hlutverk svokallaðs greiðsluráðs Seðlabankans til skoðunar

Seðla­bank­inn skoðar nú hlut­verk greiðslu­ráðs bank­ans sem sett var á fót með ákvörðun Más Guð­munds­sonar fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra í upp­hafi árs 2019. Ráðið hefur ein­ungis komið einu sinni saman til fundar.

Seðlabankinn telur enn mikilvægt að hafa samráðsvettvang á borð við þann sem greiðsluráð bankans er.
Seðla­bank­inn telur enn mik­il­vægt að hafa sam­ráðs­vett­vang á borð við þann sem greiðslu­ráð bank­ans er. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, stofn­aði svo­nefnt greiðslu­ráð Seðla­banka Íslands 14. febr­úar árið 2019. Það hefur ekki farið mikið fyrir því síðan, en greiðslu­ráðið er hugsað sem „sam­ráðs­vett­vangur stjórn­valda, mark­aðs­að­ila og ann­arra hag­hafa um mál­efni greiðslu­miðl­unar og fjár­mála­inn­viða í víðum skiln­ingi.“

Markmið ráðs­ins er, sam­kvæmt vef­svæði þess á heima­síðu Seðla­bank­ans, að stuðla að við­eig­andi und­ir­bygg­ingu stefnu­mót­unar í þessum mála­flokki hér á landi, með sjón­ar­mið um öryggi, virkni og hag­kvæmni að leið­ar­ljósi.

Fasta­full­trúar ráðs­ins koma frá nokkrum stofn­unum hins opin­bera, auk hags­muna­sam­taka bæði neyt­enda og fyr­ir­tækja. Seðla­bank­inn á að und­ir­búa fundi þess og seðla­banka­stjóri að stýra fund­unum.

Fyrsti fundur var hald­inn 23. apríl 2019 og stóð í klukku­stund og kortér. Ráðgert var að halda þann næsta um sex mán­uðum seinna. Af öðrum fundi ráðs­ins hefur ekki enn orðið.

Þó hefur vinnu­hópur sem greiðslu­ráðið skip­aði verið að störfum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum.

Bankinn telur samráðsvettvang mjög mikilvægan

Kjarninn heyrði af því að ekki hefði verið fundað í þessu ráði nema í þetta eina sinn og beindi fyr­ir­spurn til Seðla­bank­ans um hver fram­tíð greiðslu­ráðs væri og hvort ætl­unin væri að leggja sam­ráðs­vett­vang­inn niður. Svo er ekki.

[adspot]

Í svari Seðla­bank­ans segir að hlut­verk greiðslu­ráð hafi verið til skoð­unar innan Seðla­bank­ans, enda hafi miklar breyt­ingar átt sér stað að und­an­förnu, m.a. með upp­töku nýs milli­banka­kerfis, sem fram fór í lok októ­ber­mán­aðar 2020.

„Nú stendur yfir heild­ar­end­ur­skoðun á sam­starfs­vett­vangi stjórn­valda, mark­aðs­að­ila og ann­arra hag­hafa um mál­efni greiðslu­miðl­unar og fjár­mála­inn­viða í víðum skiln­ingi.

Sú heild­ar­end­ur­skoðun hefur dreg­ist vegna nauð­syn­legra við­bragða og aðgerða bank­ans vegna COVID. Seðla­bank­inn telur nú - sem áður – mjög mik­il­vægt að slíkur sam­starfs­vett­vangur sé til staðar þar sem stefnu­mótun getur átt sér stað í mál­efnum greiðslu­miðl­unar og fjár­mála­inn­viða með sjón­ar­mið um öryggi, skil­virkni og hag­kvæmni að leið­ar­ljósi,“ segir í svari bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár