Kostnaður íbúa í Reykjavík jókst um þrefalt hærri upphæð en íbúa í Kópavogi

Íbúar Reykja­víkur borga mun meira í veitta félags­lega þjón­ustu hver en íbúar nágranna­sveita­fé­lag­anna. Sum þeirra hafa aukið fram­lög í mála­flokk­inn síð­ust ár en önnur hafa hlut­falls­lega setið eftir. Eftir sem áður er mun­ur­inn milli sveit­ar­fé­laga slá­andi.

Á meðal þess sem fellur undir veitta félagslega þjónustu sveitarfélaga er þjónusta þeirra við aldraða.
Á meðal þess sem fellur undir veitta félags­lega þjón­ustu sveit­ar­fé­laga er þjón­usta þeirra við aldr­aða. Mynd: Pexels

Frá árs­lokum 2016 og fram að síð­ustu ára­mótum jókst kostn­aður sem hver íbúi í Reykja­vík greiðir fyrir veitta félags­þjón­ustu í borg­inni úr 211 þús­und krónum í 256 þús­und krónur, eða um 45 þús­und krónur. Það þýðir að kostn­að­ur­inn jókst um 21,3 pró­sent.

Á fyrra árinu greiddu íbúar í Reykja­vík alls 50 þús­und krónum meira en aðrir íbúar lands­ins að með­al­tali í veitta félags­þjón­ustu. Árið 2019 var sú upp­hæð komin í 66 þús­und krónur.

Um er að ræða fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda, þjón­ustu við börn og ung­linga, þjón­ustu við fatlað fólk og aldr­aða og ýmis­legt annað sem fellur undir mála­flokk­inn.

Þetta má lesa út úr lyk­il­tölum úr rekstri sveit­ar­fé­laga á árinu 2019 sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga birti í lok nóv­em­ber.

Þegar horft er til nágranna­sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­innar kemur í ljós að kostn­aður við veitta félags­lega þjón­ustu í Kópavogi jókst minnst í Kópavogi þessu þriggja ára tíma­bili, eða um 15 þús­und krónur (13 pró­sent aukn­ing). Fyrir hverjar nýjar þrjár krónur sem íbúar í Reykja­vík settu í félags­þjón­ustu á þessum þremur árum settu íbúar í Kópavogi eina krónu í mála­flokk­inn.

Íbúar í Kópavogi eru þeir sem greiddu minnst allra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til félags­þjón­ustu hver á síð­asta ári, eða 130 þús­und krónur. Íbúar í Reykja­vík borga nán­ast tvö­falda þá upp­hæð hver árlega.

Garðabær og Seltjarnarnes bættu í en eiga langt í land

Í Garðabæ jókst kostn­að­ur­inn um 31 þús­und krónur á hvern íbúa á tíma­bil­inu, eða um 29,5 pró­sent og á Sel­tjarn­ar­nesi um 61 þús­und krónur (70 pró­sent). Þess má þó geta að íbúar beggja sveit­ar­fé­lag­anna Garða­bæjar hafa alltaf greitt, og greiða enn, mun minna vegna veit­ingu félags­þjón­ustu en Reykja­vík­ur­borg. Í fyrra greiddi hver íbúi í Reykja­vík 72 pró­sent meira í félags­lega þjón­ustu en íbúi á Sel­tjarn­ar­nesi og 88 pró­sent meira en íbúi í Garðabæ.

[adspot]Þau sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kom­ast næst því að láta íbúa sína deila kostn­aði af félags­legri þjón­ustu með íbúum Reykja­víkur eru Mos­fells­bær og Hafn­ar­fjörður. Í fyrr­nefnda sveit­ar­fé­lag­inu jókst kostn­aður á hvern íbúa vegna veittrar félags­þjón­ustu um 26 þús­und krónur frá 2016 til 2019, eða um 13,4 pró­sent. Mos­fells­bær er það sveit­ar­fé­lag á svæð­inu þar sem íbúar greiða næst mest fyrir veitta félags­þjón­ustu, eða 219 þús­und krónur hver. Það er samt sem áður 17 pró­sent minna en hver íbúi í Reykja­vík greiðir.

Í Hafn­ar­firði hefur fram­lag hvers íbúa auk­ist um 45 þús­und krónur á ári, eða 36,2 pró­sent. Það er þó enn 51 pró­sent lægra en það sem hver íbúi í Reykja­vík greiðir.

Reykja­vík er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem inn­heimtir hámarks­út­svar, 14,52 pró­sent. Hafn­ar­fjörður, Kópa­vogur og Mos­fells­bær eru ekki langt undan, þau rukka 14,48 pró­sent í útsvar, en í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi er útsvarspró­sentan 13,7 pró­sent.

Það þýðir á manna­máli að íbúar í Reykja­vík borga hærra hlut­fall af launum sínum í skatta til að standa undir rekstri sveit­ar­fé­lags­ins en þeir sem búa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar. Stór ástæða þess er sú að Reykja­vík axlar langstærstan hluta þess kostn­aðar sem fellur til vegna félags­legrar þjón­ustu sem sveit­ar­fé­lögum er gert að veita.

Reykvíkingar borga næstum jafn mikið og allir hinir til samans

Þegar horft er til þess hversu stóru hlut­falli af skatt­tekjum hvert sveit­ar­fé­lag á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eyðir í veitta félags­þjón­ustu kemur í ljós að það hlut­fall jókst úr 25 í 26 pró­sent hjá Reykja­vík­ur­borg milli 2016 og 2019. Hlut­fallið stóð í stað í Mos­fellsbæ á tíma­bil­inu, var 20 pró­sent. Í Hafn­ar­firði fór það úr 15 í 18 pró­sent og hjá Sel­tjarn­ar­nes­bær úr 10 í 17 pró­sent. Í Garðabæ jókst hlut­fallið úr 13 í 15 pró­sent en hjá Kópavogi, sem greiðir lægsta hlut­fall allra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í félags­þjón­ustu, fór það úr 13 í 14 pró­sent.

[links]Ein stoðin í veittri félags­legri þjón­ustu er fjár­hags­að­stoð til íbúa. Líkt og Kjarninn greindi frá í byrjun síð­ustu viku þá er Reykja­vík­ur­borg í sér­flokki þegar kemur að veit­ingu á slíkri aðstoð. Hver íbúi höf­uð­borg­ar­innar greiðir 21 þús­und krónur í slíka aðstoð á ári, eða tvö þús­und krónum meira en þeir gerðu árið 2016. Til að setja málið í annað sam­hengi þá greiðir hver íbúi í Reykja­vík sex þús­und krónum minna í fjár­hags­að­stoð en fram­lag allra íbúa hinna sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er sam­an­lagt. Íbúar í Reykja­vík greiða 21 þús­und krónur hver en ein­stakir íbúar í Kópavogi, Hafn­ar­firði, Garðabæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi greiða sam­tals 27 þús­und krónur í veitta félags­þjón­ustu.

Í Reykja­vík getur fjár­hags­að­stoð til ein­stak­lings verið allt að 207.709 krónur á mán­uði og hjón eða sam­búð­ar­fólk getur fengið sam­tals allt að 332.333 krónur á mán­uði. Í öðrum sveit­ar­fé­lögum eru greiðslur að jafn­aði lægri. Það þýðir að það borgar sig bein­línis fyrir þá sem þurfa á fjár­hags­að­stoð að halda að flytja sig til Reykja­víkur. Þar af leið­andi eru mun fleiri sem þurfa á henni að halda búsettir þar en í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar.

Kostn­aður vegna fjár­hags­að­stoðar á hvern íbúa Kópavogs stóð í stað á tíma­bil­inu og var átta þús­und krónur, eða 38 pró­sent af því sem hann er á hvern íbúa í Reykja­vík. Í Hafn­ar­firði stóð hann líka í stað í sjö þús­und krónum, eða þriðj­ungi af því þeim kostn­aði sem hver íbúi í Reykja­vík greiðir. Í Mos­fellsbæ hækk­aði hann um þús­und krónur á hvern íbúa, fór úr fjögur þús­und krónum í fimm þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár