Íbúar Akureyrar greiða mest allra fyrir veitta félagsþjónustu

Þeir íbúar á land­inu sem greiða hæstu upp­hæð­ina hver fyrir veitta félags­þjón­ustu eru íbúar höf­uð­staðar Norð­ur­lands. Nágranna­sveit­ar­fé­lög Akur­eyrar, sem greiða mun minna fyrir félags­þjón­ustu, eru öll and­víg þving­aðri sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga.

Akureyri.
Akureyri. Mynd: Pixabay/Michelle Maria

Kostn­aður vegna veittrar félags­þjón­ustu á hvern íbúa er hvergi hærri en á Akureyri, þar sem hver íbúi greiðir 267 þús­und krónur fyrir þá þjón­ustu sem sveit­ar­fé­lagið veitir. Til sam­an­burðar má nefna að vegið með­al­tal kostn­aðar sveit­ar­fé­laga vegna veittrar félags­þjón­ustu er 190 þús­und krónur á íbúa. Kostn­aður íbúa á Akureyri er því 40 pró­sent meiri en með­al­tals­greiðsla allra íbúa.

Um er að ræða fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda, þjón­ustu við börn og ung­linga, þjón­ustu við fatlað fólk og aldr­aða og ýmis­legt annað sem fellur undir mála­flokk­inn.

Þetta má lesa út úr lyk­il­tölum úr rekstri sveit­ar­fé­laga á árinu 2019 sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga birti í lok nóv­em­ber.

Akur­eyr­ar­bær þjón­ustar einnig nokkur sveit­ar­fé­lög í kringum sig með félags­þjón­ustu gegn vægu gjaldi. Um er að ræða Hörg­ár­sveit (íbúar þar greiða 60 þús­und krónur hver fyrir félags­þjón­ustu á ári), Eyja­fjarð­ar­sveit (íbúar þar greiða 65 þús­und krónur hver fyrir félags­þjón­ustu á ári), Grýtu­bakka­hrepp (íbúar þar greiða 75 þús­und krónur hver fyrir félags­þjón­ustu á ári) og Sval­barðs­strand­ar­hrepp (íbúar þar greiða 46 þús­und krónur hver fyrir félags­þjón­ustu á ári). Öll fjögur sveit­ar­fé­lögin eru á meðal þeirra 20 sveit­ar­fé­laga sem hafa lagt fram til­lögu til lands­þing Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga sem haldið verður 18. des­em­ber sem felur meðal ann­ars í sér að fallið verði frá hug­myndum um lög­fest­ingu 1.000 íbúa lág­marks­stærðar sveit­ar­fé­laga, en frum­varp um það efni liggur nú fyrir Alþingi.

[adspot]Því má ljóst vera að íbúar á Akureyri greiða fyrir stóran hluta þeirrar félags­þjón­ustu sem veitt er á svæð­inu í kringum sveit­ar­fé­lagið.

Á Akureyri búa 19.217 manns. Í Eyja­fjarð­ar­sveit búa 1.090 mans, Í Hörg­ár­sveit 648, Í Sval­barðs­strand­ar­hreppi 435 og í Grýtu­bakka­hreppi 371.

Sveitarfélög sem skera sig úr

Þegar horft er á útgjöld félags­þjón­ustu sem hlut­fall af skatt­tekjum er ein­ungis eitt sveit­ar­fé­lag sem greiðir hærra hlut­fall en Akureyri í félags­þjón­ustu. Það er Reykja­vík, en höf­uð­borgin greiðir 26 pró­sent af skatt­tekjum sínum í veitta félags­þjón­ustu á meðan að það hlut­fall er 24 pró­sent á Akureyri. Með­al­tals­hlut­fallið á land­inu er 18 pró­sent.

Kjarninn greindi frá því í byrjun viku að íbúar í Reykja­vík eru að borga sjö sinnum hærri fjár­hæð í fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda en íbúar nágranna­sveit­ar­fé­lags­ins Sel­tjarn­ar­ness. Þeir greiða tvö­falt meira fyrir alla veitta félags­þjón­ustu en íbúar í Kópavogi og Garðabæ og draga líka vagn­inn þegar kemur að upp­bygg­ingu á hús­næði fyrir lág­tekju­hópa.

Mikil kostnaður við fatlaða

Sveit­ar­fé­lögum er skylt að veita fjár­hags­að­stoð til fram­færslu ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem ekki geta séð sér og sínum far­borða án aðstoðar. Á Akureyri getur fjár­hags­að­stoð til ein­stak­lings verið allt að 184.208 krónur á mán­uði og hjón eða sam­búð­ar­fólk getur fengið sam­tals allt að 294.732 krónur á mán­uði.

Hver Akur­eyr­ingur greiðir níu þús­und krónur í fjár­hags­að­stoð á ári hverju, sem er tæpur helm­ingur þess sem hver íbúi í Reykja­vík greiðir vegna hennar og þrjú þús­und krónum minna en sveit­ar­fé­lög greiða að með­al­tali í slíka.

[links]Þegar kemur að kostn­aði við fatl­aða, sem tekur til útgjalda vegna stuðn­ings­þjón­ustu, ferða­þjón­ustu fatl­aðra, frek­ari lið­veislu, búsetu, skamm­tíma­vist­unar fyrir fatl­aða, dag­þjón­ustu og ann­arrar þjón­ustu fyrir fatl­aða, stendur Akureyri hins vegar upp úr meðal stærri sveit­ar­fé­laga á land­inu þegar kemur að kostn­aði. Hver íbúi í höf­uð­stað Norð­ur­lands greiðir 178 þús­und krónur á ári vegna þjón­ustu við fatlað fólk á meðan að með­al­tals­greiðsla allra íbúa lands­ins er 93 þús­und krónur, eða rúmur helm­ingur þess sem hver íbúi á Akureyri greiðir. Til sam­an­burðar greiða nágranna­sveita­fé­lög Akur­eyrar Hörg­ár­sveit (16 þús­und krónur á íbúa), Eyja­fjarð­ar­sveit (15 þús­und krónur á íbúa), Sval­barð­ar­strand­ar­hreppur (11 þús­und krónur á íbúa) og Grýtu­bakka­hreppur (eitt þús­und krónur á íbúa) brot af því sem íbúar Akur­eyrar greiða hver og einn.

Þegar kemur að kostn­aði vegna þjón­ustu við aldrað fólk, sem felur í sér útgjöld vegna dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ila, dagdvalar, stuðn­ings­þjón­ustu, tóm­stunda­starf og ann­arrar þjón­ustu við aldr­aða íbúa er Akureyri nán­ast á pari við það sem íbúar lands­ins greiða að með­al­tali fyrir að uppi­hald á slíkri þjón­ustu. Öll nágranna­sveit­ar­fé­lög Akur­eyrar, að Grýtu­bakka­hreppi und­an­skildum, greiða minna á hvern íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár