Sýn vill ekki upplýsa um hugsanlega kaupendur farsímainnviða

Fjar­skipta­fyr­ir­tækið segir að trún­aður ríki yfir samn­inga­við­ræðum um kaup á óvirkum far­síma­innviðum kerf­is­ins en að frek­ari upp­lýs­ingar verði gefnar fljót­lega.

Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar
Heiðar Guð­jóns­son for­stjóri Sýnar Mynd: Sýn

Sýn vill ekki upp­lýsa hvaða erlendu fjár­festar eru í samn­inga­við­ræðum um kaup og end­ur­leigu á ónýttum far­síma­innviðum Sýnar. Þó verði frek­ari upp­lýs­ingar um málið kynntar í næsta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins 4. nóv­em­ber.

Þetta stað­festir fyr­ir­tækið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þar segir að frétta­til­kynn­ingin um samn­inga­við­ræð­urnar sem barst fjöl­miðlum síð­asta föstu­dag inni­haldi allar upp­lýs­ingar sem Sýn geti veitt á þessum tíma­punkti, en að meiri upp­lýs­inga sé að vænta í upp­gjör­inu.

Kjarninn fjall­aði um frétta­til­kynn­ing­una síð­asta föstu­dag, en sam­kvæmt henni hefur félagið náð sam­komu­lagi við erlenda fjár­festa um helstu skil­mála í sölu og 20 ára end­ur­leigu á óvirkum far­síma­innviðum félags­ins. Sölu­hagn­aður Sýnar gæti numið yfir sex millj­örðum króna, gangi við­skiptin eft­ir.

Í síð­asta árs­helm­ings­upp­gjöri félags­ins sagði Heiðar Guð­jóns­son for­stjóri Sýnar að það væri til athug­unar að bjóða hluta far­síma­kerf­is­ins til sölu, sem hann teldi að myndi skila miklu fjár­magni til hlut­hafa. Auk þess sagði Heiðar að marg­fald­arar í við­skiptum á far­síma­innviðum fjar­skipta­fyr­ir­tækja væru marg­falt hærri en ger­ist á almennum hluta­bréfa­mark­aði.

Frá því að Heiðar til­kynnti fyrst um áformin í lok ágúst síð­ast­liðnum hefur hluta­bréfa­verð félags­ins hækkað um meira en helm­ing, eins og sjá má á mynd­inni hér að ofan. Í kjöl­far frétta­til­kynn­ingar félags­ins á föstu­dag­inn í síð­ustu viku hækk­aði hluta­bréfa­verð þess svo um sjö pró­sent á einum degi.

Sýn er ekki eina fjar­skipta­fé­lagið þar sem hug­myndir hafa verið viðr­aðar um aðskilnað inn­viða- og þjón­ustu­hluta. Kjarninn hefur áður greint frá því að fjár­festar hafi gert óform­legar fyr­ir­spurnir um kaup á Mílu, inn­nviða­hluta félags­ins þeirra. Mörg dæmi eru líka um aðskilnað inn­viða- og þjón­ustu­hluta sím­fyr­ir­tækja víða um Evrópu á und­an­förnum árum, meðal ann­ars frá Tékk­landi, Danmörku og Ítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár