Sýn langt komið í sölu á farsímainnviðum

Sýn fetar í fót­spor erlendra fjar­skipta­fyr­ir­tækja og er langt komið með að selja og end­ur­leigja óvirka far­síma­inn­viði félags­ins. Sölu­hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins gæti numið yfir sex millj­örðum króna.

Höfuðsöðvar Sýnar á Suðurlandsbraut
Höf­uð­söðvar Sýnar á Suð­ur­lands­braut Mynd: Bára Huld Beck

Sýn hefur náð sam­komu­lagi við erlenda fjár­festa um helstu skil­mála í sölu og 20 ára end­ur­leigu á óvirkum far­síma­innviðum félags­ins. Sölu­hagn­aður Sýnar gæti numið yfir sex millj­örðum króna, gangi við­skiptin eftir.

Þetta kemur fram í fjár­festa­til­kynn­ingu sem Sýn sendi frá sér í morgun. Samkvæmt til­kynn­ing­unni felst þó engin skuld­bind­ing eða trygg­ing um að af við­skipt­unum verði í umræddu sam­komu­lagi og séu þau háð áreið­an­leika­könnun og mögu­legri aðkomu eft­ir­lits­stofn­anna.

Fjar­skipta­fé­lagið hyggst aðeins selja óvirkan far­síma­búnað sinn, allur virkur far­síma­bún­aður verður áfram í eigu Sýnar. Óvirki far­síma­bún­að­ur­inn yrði áfram aðgengi­legur Sýn, en félagið býst við að gera lang­tíma­leigu­samn­ing við nýja eig­endur þess.

Hefur verið til skoðunar

Kjarninn hefur áður fjallað um fyr­ir­hug­aðan aðskilnað inn­viða­starf­semi og þjón­ustu­starf­semi íslenskra fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Heiðar Guð­jóns­son for­stjóri Sýnar sagði í síð­asta árs­helm­ings­upp­gjöri félags­ins að það væri til athug­unar að bjóða hluta far­síma­kerf­is­ins til sölu, sem hann teldi skila miklu fjár­magni til hlut­hafa.

[adspot]

„Alþjóð­legir aðilar hafa mik­inn áhuga á fjár­fest­ingum í innviðum sím­fyr­ir­tækja og marg­fald­arar í við­skiptum eru mun hærri en ger­ist á almennum hluta­bréfa­mark­að­i,“ er haft eftir Heiðari.

[links]Síminn hefur einnig fengið óform­legar fyr­ir­spurnir frá fjár­festum um mögu­leg kaup á inn­viða­hluta fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins, Mílu. Fyr­ir­tækið til­kynnti einnig fyr­ir­hug­aðan flutn­ing á far­síma­dreifi­kerfi og IP-neti til Mílu í síð­asta upp­gjöri. Í til­kynn­ingu Símans til fjár­festa með­fram upp­gjör­inu sagði Orri Hauksson for­stjóri Símans einnig að verið væri að skoða hvort aðskilja eigi fjár­mögnun Mílu og Símans.

Fordæmi frá öðrum Evrópulöndum

Fjar­skipta­fyr­ir­tæki víða um Evrópu hafa farið í sams konar end­ur­skipu­lagn­ingar á síð­ustu árum. Árið 2014 skap­aði tékk­neski hluti fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins O2 sér­stakt félag fyrir inn­viða­starf­sem­ina sína, en sam­kvæmt umfjöllun ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins McKinsey um málið græddu hlut­hafar mjög á þessum aðskiln­aði.

Í fyrra lauk svo aðskiln­aði inn­viða- og þjón­ustu­hluta danska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins TDC, að frum­kvæði nýrra fjár­festa sem komu inn í félagið. Einnig til­kynnti ítalska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Telecom Italia í byrjun sept­em­ber­mán­aðar sölu á þriðj­ungi land­lína fyr­ir­tæk­is­ins til hins opin­bera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár