Namibísku sexmenningarnir verða í varðhaldi fram að réttarhöldum

Namibísku ráð­herr­arnir Esau og Shang­hala verða í gæslu­varð­haldi til 20. febr­úar hið minnsta eftir að beiðni þeirra var vísað frá.

Namibísku sexmenningarnir verða í varðhaldi fram að réttarhöldum
Bernhard Esau og Þor­steinn Már Bald­vins­son Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann sætir ákæru fyrir mútu­þægni, en hann fund­aði með for­stjóra Samherja.

Menn­irnir sex sem hand­teknir voru í Namibíu í tengslum við upp­ljóstr­anir í Sam­herj­a­skjöl­unum munu sitja áfram í gæslu­varð­haldi. Á meðal þeirra eru Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. The Namibian greinir frá.

Sex­menn­ing­arnir voru hand­teknir í nóv­em­ber eftir að Stundin, Kveikur, Wikileaks og Al Jazeera ljóstr­uðu upp um mútu­greiðslur Samherja til að öðl­ast fisk­veiði­heim­ildir í Namibíu. Auk Esau og Shang­hala voru hand­teknir frænd­urnir James og Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, sem kall­aðir voru „hákarl­arnir“ og komu til Íslands á vegum Samherja.

Dómari við hæsta­rétt í Windhoek, höf­uð­borg Namibíu, úrskurð­aði í dag að beiðni þeirra um að fá hand­tökur þeirra úrskurð­aðar ólög­legar yrði ekki tekin fyrir. Beiðni þeirra var ekki talin áríð­andi og var þar með vísað frá. Mál mann­anna verður næst tekið fyrir 20. febr­úar 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár