Fjármálaeftirlitið kannar ákvarðanatöku lífeyrissjóða í tengslum við útboð Icelandair

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur hafið könnun á ákvarð­ana­töku líf­eyr­is­sjóða í kringum hluta­fjár­út­boð Icelandair Group. Seðla­banka­stjóri segir óheppi­legt að hags­muna­að­ilar sitji í stjórnum líf­eyr­is­sjóða og taki ákvarð­anir um fjár­fest­ingar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur hafið könnun á hluta­fjár­út­boði Icelandair Group og ákvarð­ana­töku líf­eyr­is­sjóða lands­manna varð­andi það. Kallað hefur verið eftir gögnum frá sjóð­unum, segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Þetta kom fram í máli hans á fundi fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­bank­ans í morgun. „Að svo komnu máli er ekki hægt að segja neitt meira um þessa könnun, en hún er farin af stað,“ sagði Ásgeir á fund­inum og bað sér­stak­lega blaða­menn og aðra sem staddir voru á fundi nefnd­ar­innar að spyrja ekki út í ein­staka sjóði, því slíkum spurn­ingum gæti hann ekki svarað.

Ásgeir lýsti því að hans skoðun væri sú að „skoða þurfi allt ferlið upp á nýtt“ varð­andi fyr­ir­komu­lag við ákvarð­ana­töku líf­eyr­is­sjóða um ein­staka fjár­fest­ingar. Í dag sitji í stjórnum líf­eyr­is­sjóða hags­muna­að­ilar og taki ákvarð­anir um fjár­fest­ingar, sem að hans mati „ættu að vera teknar ann­ars staðar, heldur en af þessum aðilum.“

Hann sagði að þegar kæmi að ein­stökum fjár­fest­ing­ar­kostum væri ákveðin hætta á að „aðrir hags­munir en hags­munir sjóð­fé­laga“ væru ráð­andi og að líf­eyr­is­sjóða­kerfið hefði verið byggt upp í sátt á milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins og þannig byggt á „ákveðnu heið­urs­manna­sam­komu­lagi“, sem Ásgeir sagði að velta mætti fyrir sér hvort að héldi enn.

Bréf um sjálfstæði stjórnarmanna ítrekað

Hann sagði að áhyggjur af þessu tagi væru ekki nýjar af nál­inni. Í fyrra hefði Fjár­mála­eft­ir­litið, þá sem sjálf­stæð stofnun, sent út dreifi­bréf til líf­eyr­is­sjóða lands­ins þar sem sjóð­irnir voru beðnir um að taka sam­þykktir sínar til skoð­unar með til­liti til þess að tryggja sjálf­stæði stjórn­ar­manna.

„Þetta bréf hefur verið ítrekað núna, að sjóð­irnir end­ur­skoði sam­þykktir sínar til þess að tryggja sjálf­stæði stjórn­ar­manna,“ sagði seðla­banka­stjóri.

Hann sagði, í svari við spurn­ingu frétta­manns Stöðvar 2, að könnun Fjár­mál­eft­ir­lits­ins sem snýr að útboð­inu næði „til beggja aðila“, þ.e. verka­lýðs­hreyf­ingar og atvinnu­rek­enda, sem skipa stjórn­ar­menn í líf­eyr­is­sjóði lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár