Austfirskir kjósendur fóru í fýluferð til sýslumanns

Dóms­mála­ráðu­neytið þurfti að minna emb­ætti sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á að það væru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í gangi í nýju sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi. Tveimur hið minnsta var vísað frá, er þeir reyndu að greiða atkvæði utan kjör­fundar.

Að minnsta kosti tveir austfirskir kjósendur höfðu ekki erindi sem erfiði þegar þeir gerðu sér ferð til þess að kjósa í sveitarstjórnarkosningum helgarinnar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Að minnsta kosti tveir aust­firskir kjós­endur höfðu ekki erindi sem erf­iði þegar þeir gerðu sér ferð til þess að kjósa í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum helg­ar­innar hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Oddviti Fram­sókn­ar­flokks­ins í nýju sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi fer fram á afsök­un­ar­beiðni frá emb­ætti sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þeim yfir­völdum sem fara með fram­kvæmd kosn­inga á Íslandi, vegna mis­brests sem varð við fram­kvæmd utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kosið er til sveit­ar­stjórnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, sem lík­lega fær nafnið Múlaþing, á morgun. Opið hefur verið fyrir utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu hjá sýslu­manns­emb­ættum um allt land frá 25. júlí. Eða svo átti að vera.

Aust­ur­frétt sagði frá því í vik­unni að heyrst hefði af því að kjós­endur sem ætl­uðu að nýta kosn­inga­rétt sinn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og koma atkvæðum sínum austur á land hefðu fengið þau svör hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu að starfs­menn könn­uð­ust ekk­ert við þessar meintu kosn­ingar, eða að hjá þeim ætti að vera hægt að kjósa utan kjör­fundar.

Stefán Bogi Sveins­son, odd­viti Fram­sóknar og for­seti bæj­ar­stjórnar Fljóts­dals­hér­aðs, sagði í færslu á Facebook í gær að málið væri lýsandi dæmi um það sem íbúar lands­byggð­anna þyrftu að glíma við.

„Við göngum til mik­il­vægra kosn­inga en sú stofnun sem er ætlað að tryggja að íbúar geti nýtt lýð­ræð­is­legan rétt sinn kann­ast bara ekk­ert við málið. Virð­ingar- og skeyt­ing­ar­leysið í þessu gengur langt út yfir allan þjófa­bálk. Fólk var að taka sér tíma til að fara á skrif­stof­urnar í Kópavogi og mætti síðan þessu við­horfi. Gjör­sam­lega óþol­andi og ég ætl­ast til þess að Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þau yfir­völd sem bera ábyrgð á fram­kvæmd kosn­inga hér á landi biðj­ist opin­ber­lega afsök­unar,“ skrif­aði Stefán Bogi.

Vitað um tvö tilvik – báðir búnir að kjósa núna

Róbert Ragn­ars­son, sem er starfs­maður und­ir­bún­ings­stjórnar vegna sam­ein­ing­ar­innar eystra, segir í sam­tali við Kjarnann að ein­hver mis­skiln­ingur virð­ist hafa komið upp innan emb­ættis sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að hann viti til þess að tveir kjós­endur hafi verið sendir í burtu eftir að hafa gert sér ferð til þess að greiða atkvæði.

Þegar hann heyrði af þessu setti hann sig strax sam­band við dóms­mála­ráðu­neytið, sem hnykkti á því við sýslu­manns­emb­ættið að utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla væri í gangi. Báðir kjós­end­urnir sem Róbert veit til þess að vísað hafi verið í burtu sneru aftur til sýslu­manns og hafa greitt atkvæði.

Bjarni Björg­vins­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, segir við Kjarnann að utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslan sé algjör­lega á for­ræði sýslu­manns­emb­ætt­anna hring­inn um landið. Hann sagði einnig að eitt­hvað virð­ist hafa skort upp á upp­lýs­inga­flæðið fyrir sunnan, því miður, en að hann vissi ekki betur en að búið væri að bæta úr því.

Heimastjórnarframbjóðendur komnir fram

Auk hefð­bund­inna lista­kosn­inga til sveit­ar­stjórnar nýja sveit­ar­fé­lags­ins, þar sem fimm fram­boð kepp­ast um sæti, verður einnig per­sónu­kjör til svo­kall­aðra heima­stjórna, sem verða fjórar tals­ins. Allir íbúar með kosn­inga­rétt eru í raun í fram­boði til þess­ara heima­stjórna, en kjós­endur munu þurfa að skrá bæði fullt nafn og heim­il­is­fang fram­bjóð­enda til heima­stjórnar á kjör­seð­il­inn – og það má bara kjósa einn ein­stak­ling.[links]

Bjarni segir að í raun sé atkvæða­greiðslan alveg tvö­föld, kjós­endur muni fá tvo kjör­seðla, einn til sveit­ar­stjórnar og annan til heima­stjórnar. Spurður hvort það gæti ekki reynst tíma­frekt að telja atkvæðin til heima­stjórna segir Bjarni að það gæti orðið „ein­hver Excel-vinna“ en bendir um leið á að þeir sem hafi hug á því að taka sæti í heima­stjórnum séu búnir að gefa kost á sér form­lega og upp­lýs­ingar um fram­bjóð­endur séu aðgengi­legar á vef nýja sveit­ar­fé­lags­ins. Því sé ólík­legra að atkvæðin dreif­ist á mjög marga.

Ekkert verður þó á kjör­stöðum til þess að minna á það hverjir eru í fram­boði til kjör­stjórna, kjós­endur fá ein­fald­lega tóman kjör­seðil þar sem þeir eiga að skrifa nafn og heim­il­is­fang þess sem þeir ætla að kjósa.

Bjarni segir að íbúa­skrár verði aðgengi­legar á kjör­stöðum, en best væri þó ef kjós­endur myndu hafa heim­il­is­fang þess sem þeir ætla að kjósa í heima­stjórn á morgun á hreinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár