Allir í framboði og kynleiðrétting hjá Miðflokknum í nýju sveitarfélagi

Kjós­endur í nýju sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi ganga að kjör­borð­inu 19. sept­em­ber. Fimm listar bjóða fram krafta sína, en bæði er kosið til ell­efu manna sveit­ar­stjórnar og fjög­urra heima­stjórna. Athygli hefur vakið hve fáar konur eru á lista Mið­flokks­ins.

Sólsetur við Lagarfljót á Fljótsdalshéraði.
Sólsetur við Lag­ar­fljót á Fljóts­dals­hér­aði. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Nokkuð hallar á konur á fram­boðs­lista Mið­flokks­ins til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í nýju sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­land. Einungis fimm konur eru á fram­boðs­lista flokks­ins af alls 22 fram­bjóð­endum, en á hinum list­unum sem boðnir verða fram í kosn­ingum 19. sept­em­ber næst­kom­andi eru hlut­föll karla og kvenna á fram­boðs­listum jöfn eða því sem næst.

„Ég er að fara í kyn­skipti­að­gerð á morgun og næsti maður líka, svo við þurfum nú ekki að hafa áhyggjur af því,“ segir Þröstur Jónsson odd­viti Mið­flokks­ins í gam­an­sömum tón við blaða­mann Kjarnans, spurður út í þetta.

Í fullri alvöru við­ur­kennir hann þó að það hafi ein­fald­lega gengið illa að fá konur til þess að taka sæti á list­anum, þrátt fyrir að allt hafi verið gert til þess fram á sein­asta dag.

Möguleg skýr­ing, segir Þröstur, gæti verið sú að sveit­ar­stjórn­ar­störfin í nýju sveit­ar­fé­lagi verða umfangs­meiri en í sveit­ar­fé­lög­unum sem hið nýja leysir af hólmi. Hluta­starf, en ekki bara hobbý. Fólk sem hafi hug á að taka sæti ofar­lega og reyna að velj­ast í nýja bæj­ar­stjórn sveit­ar­fé­lags­ins þurfi því að vera reiðu­búið til að gera til­fær­ingar á sínum dag­legu störfum og konur hafi síður reynst til­búnar til þess, hjá Mið­flokknum alla­vega, og bætir við að mestu skipti að hafa gott fólk á lista.

Fimm flokkar í framboði í frestuðum kosningum

Fram­boðs­frestur fyrir kosn­ing­arnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, sem upp­runa­lega áttu að fara fram 18. apríl en var frestað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, rann út 29. ágúst og verða alls fimm listar á kjör­seðl­inum.

Auk lista Mið­flokks­ins eru listar frá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum þremur, Fram­sókn­ar­flokki, Sjálf­stæð­is­flokki og Vinstri grænum og til við­bótar býður Aust­ur­list­inn fram í fyrsta skipti, en það er óháð fram­boð félags­hyggju­fólks í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, sem orðið hefur til með sam­ein­ingu Fljóts­dals­hér­aðs, Seyð­is­fjarð­ar­kaup­staðar, Djúpa­vogs­hrepps og Borg­ar­fjarð­ar­hrepps.

[adspot]

Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans í nýju sveit­ar­fé­lagi hefur ekki mikið borið á eig­in­legri kosn­inga­bar­áttu, aug­lýs­ingum eða mál­efna­tali í sam­fé­lag­inu und­an­farnar vikur þrátt fyrir að ein­ungis 18 dagar séu í kjör­dag. Sam­komu­tak­mark­anir hafa enda verið í gildi og ekki hefur verið mælst til þess að fólk safn­ist saman eða sé að hitta aðra að nauð­synja­lausu, til dæmis á kosn­inga­skrif­stofum.

Flestum sem Kjarninn hefur rætt við ber líka saman um að helsta kosn­inga­málið verði sam­ein­ingin sjálf og fram­kvæmd hennar, enda verður kjör­tíma­bil fyrstu sveit­ar­stjórnar nýja sveit­ar­fé­lags­ins, sem lík­legt má telja að hljóti nafnið Múlaþing, ein­ungis fram til vors­ins 2022.

Flokk­arnir hafa almennt lítið verið að koma stefnu­málum sínum á fram­færi við kjós­endur með beinum hætti eða minna á sig, en ein­ungis eina kosn­inga­aug­lýs­ingu sem kalla má er að finna í nýjasta tölu­blað­inu af Dag­skránni, viku­legum aug­lýs­ingapésa sem dreift er inn á heim­ili á Aust­ur­landi.

Þar er Mið­flokk­ur­inn með aug­lýs­ingu undir slag­orð­inu „Sveit­ar­fé­lagið allt“ en flokk­ur­inn rétt eins og fleiri flokkar hafa ekki enn kynnt heild­stæða stefnu sína. Vinstri græn eru þó und­an­tekn­ing í þessum efnum, en mál­efna­skrá flokks­ins í nýja sveit­ar­fé­lag­inu var hægt að finna á sér­vef á vef­svæði Vinstri grænna.

Fram­bjóð­endur flestra flokka hafa verið dug­legir að rita greinar í blöð, bæði í hér­aðs­frétta­miðl­ana Aust­ur­frétt og Aust­ur­glugg­ann og einnig í lands­dekk­andi vef­miðla, en Kjarn­anum heyr­ist að fram­boðin ætli sér að fara að koma stefnu­mál­unum betur á fram­færi á næstu dögum og vikum með kosn­inga­bæk­lingum og aug­lýs­ingum.

Allir kosningabærir íbúar í raun í framboði

Það verður ekki ein­ungis kosið til sveit­ar­stjórnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu 19. sept­em­ber, því einnig verður kosið til fjög­urra heima­stjórna og munu umdæmi hverrar heima­stjórnar mið­ast við gömlu sveit­ar­fé­laga­mörk sveit­ar­fé­lag­anna fjög­urra.

Hver sem hefur kosn­inga­rétt í nýja sveit­ar­fé­lag­inu er í raun í fram­boði til heima­stjórnar í sínu umdæmi og er um beint per­sónu­kjör að ræða, sem eflaust verður fróð­legt í fram­kvæmd.

Á vef nýja sveit­ar­fé­lags­ins segir að æski­legt sé að þeir sem hafi hug á því að taka sæti í heima­stjórn geri sjálfir grein fyrir því í sínu nærum­hverfi, en þar kemur jafn­framt fram að ekk­ert er því til fyr­ir­stöðu að þeir sem sitja á fram­boðs­listum til sveit­ar­stjórnar geti um leið boðið sér­stak­lega fram krafta sína í heima­stjórn og setið í báðum stjórnum á sama tíma.

Kjós­endur munu þurfa að skrá bæði fullt nafn og heim­il­is­fang fram­bjóð­enda til heima­stjórnar á kjör­seð­il­inn – og það má bara kjósa einn ein­stak­ling.

Tveir ein­stak­lingar verða kjörnir beinni kosn­ingu í hverja heima­stjórn og tveir til vara, alls átta manns í sveit­ar­fé­lag­inu öllu.

Þau munu starfa ásamt einum til við­bótar, en sá og vara­maður hans verða valdir af sveit­ar­stjórn. Markmið heima­stjórna er að tryggja áhrif og aðkomu heima­manna á hverjum stað að ákvörð­unum sem varða þeirra nærum­hverfi.

Sveit­ar­stjórn nýja sveit­ar­fé­lags­ins er ætlað að fela heima­stjórn­unum störf sem snúa að við­kom­andi byggða­hluta og heima­stjórnin mun geta ályktað um mál­efni byggð­ar­innar og komið málum á dag­skrá sveit­ar­stjórnar, en helstu verk­efni heima­stjórna eiga að snúa að deiliskipu­lags- og umhverf­is­málum, menn­ing­ar­málum, land­bún­að­ar­málum og umsögnum um stað­bundin mál­efni og leyf­is­veit­ingar, sam­kvæmt vef nýja sveit­ar­fé­lags­ins.

Stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli

Nýtt sveit­ar­fé­lag mun lík­lega fá nafnið Múlaþing, en það nafn varð hlut­skarp­ast í ráð­gef­andi nafna­könnun á meðal íbúa fyrr á árinu. Nafnið Dreka­byggð varð þar í öðru sæti þrátt fyrir að hafa ekki blessun Örnefna­nefndar og Aust­ur­þing í því þriðja.

Að velja nýtt form­lega nafn á sveit­ar­fé­lagið er þó á meðal þess sem bíður nýrrar sveit­ar­stjórnar og verður vænt­an­lega með fyrstu verkum. Rúmlega 3.600 manns eru á kjör­skrá í nýju sveit­ar­fé­lagi, sem er það víð­femasta á land­inu.

Fjar­lægðir innan þess eru all­nokkrar, en 155 kíló­metra akst­urs­fjar­lægð er frá Djúpa­vogi til Borg­ar­fjarðar eystra og tekur sá rúntur á þriðju klukku­stund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár