Ferðamálaráðherra: Áhættan er í mínum huga ásættanleg

„Áhættan af því að skima og hleypa fólki inn [í landið] er svo lítil,“ segir ferða­mála­ráð­herra. „Ég bara get ekki fall­ist á þau rök að hún sé svo mikil að það eigi bara að loka landi og ekki hleypa fólki inn.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það liggur auð­vitað fyrir að við getum ekki haft landið lokað þangað til og ef bólu­efni finnst,“ sagði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ferða­mála­ráð­herra í hádeg­is­fréttum RÚV í dag. Í við­tal­inu var hún spurð út í skrif Gylfa Zoega hag­fræði­pró­fess­ors um að stjórn­völd hafi gert mis­tök með því að opna landið fyrir ferða­mönnum um miðjan júní. Í grein sem Gylfi skrifar í Vís­bend­ingu sagði hann að með ákvörð­unum sínum hafi stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu sem séu þau gæði að geta hitt annað fólk, lært með öðru fólki og unnið með öðru fólki.

Þórdís sagði við RÚV að land­inu hefði aldrei verið lokað heldur hafi á tíma­bili verið kraf­ist tveggja vikna sótt­kvíar far­þega við kom­una hingað. „Nú erum við að skima og höfum gögn sem sýna að það eru ekki nema örfáir erlendir ferða­menn sem reyn­ast smit­aðir á landa­mær­unum. Af þessum litla hópi fólks sem hefur verið smit­aður eru líka Íslend­ingar, bæði búsettir hér, að koma heim og svo fram­vegis. Þannig að áhættan er í mínum huga ásætt­an­leg.“

[adspot]

Þá sagð­ist hún eiga erfitt með að sam­þykkja að inn­lend eft­ir­spurn verði tryggð með fjár­munum sem komi úr sam­eig­in­legum sjóðum, „þegar fólk hefur ekki vinnu. Þannig að það er ekki sjálf­bært heldur“.

[links]Spurð hvort inn­lenda eft­ir­spurnin muni ekki vega upp á móti því að halda land­inu áfram lok­uðu eins og áður var svar­aði Þórdís að vissu­lega væri gott hversu inn­lenda eft­ir­spurnin væri mikil „en áhættan af því að skima og hleypa fólki inn er svo lítil. Ég bara get ekki fall­ist á þau rök að hún sé svo mikil að það eigi bara að loka landi og ekki hleypa fólki inn – til þess að tryggja þessa inn­lendu eft­ir­spurn. En þú byggir ekki heils­árs­rekstur á því að fá nokkrar góðar vikur þar sem að við sem leyfum okkur meira í mat og drykk erum að gera gott fyrir rekst­ur­inn. Svo áttu auð­vitað eftir stóru hót­elin hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem staðan er hreint út sagt hörmu­leg.“

Einnig sagði ráð­herr­ann að til þess að halda efna­hags­líf­inu gang­andi „þá getum við ekki haft landa­mærin lokuð bara til eilífð­ar­nóns“.

Beittu ekki beinum þrýstingi

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, var einnig spurður út í grein Gylfa í hádeg­is­fréttum. Sagði hann ferða­þjón­ust­una ekki hafa beitt „neinum beinum þrýst­ingi“ til að landið yrði opnað fyrir ferða­mönnum. Sótt­varnir hafi ráðið ferð­inni en einnig hafi verið tekið til­lit til efna­hags­legra sjón­ar­miða við ákvörð­un­ina. „Okkar hlut­verk sem atvinnu­greinar í þessu er að benda á hinn efna­hags­lega vanda sem fylgir því að vera með landið lokað fyrir ferða­mönnum og fjórtán daga sótt­kví á alla.“

Haft var eftir Jóhann­esi í frétta­tím­anum að vitað hafi verið að önnur bylgja COVID myndi skella á. „Það liggur hins vegar í augun uppi að þegar inn­an­lands­smit dreifast hratt er það ekki vegna þess að ein­hver hafi borið með sér veiru að utan heldur er það bein­línis vegna þess að við erum sjálf kannski ekki að sinna okkar per­sónu­legu smit­vörnum nægi­lega vel.“

Tæplega 78 þús­und far­þegar hafa verið skimaðir við landa­mærin frá 15. júní. 33 hafa greinst með virkt smit og 101 með mótefni.

112 manns eru með COVID-19 hér á landi og því í ein­angrun. Um 950 eru í sótt­kví. Einn sjúk­ling­ur­inn er alvar­lega veikur. Sá er á fer­tugs­aldri, liggur á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og er í önd­un­ar­vél.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár