Gylfi: Stjórnvöld gerðu mistök með því að opna landið

Pró­fessor í hag­fræði, sem var­aði við áhrifum af opnun landamæra Íslands í sumar, segir að stjórn­völd hafi stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu með því að halda þeim til streitu. Hags­munir fárra hafi verið teknir fram yfir hags­muni þorra lands­manna.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stjórn­völd gerðu mis­tök með því að opna landið fyrir ferða­mönnum um miðjan júní og ofmátu kosti þess að opna landið, en van­mátu þá hættu sem slík opnun skap­aði fyrir efna­hags­lífið. Ekki hafi verið gerð heild­stæð athugun á efna­hags­legum áhrifum opn­un­ar­innar við und­ir­bún­ing hennar. „Með ákvörð­unum sínum um opnun lands­ins hafa stjórn­völd stefnt mik­il­vægum almanna­gæðum í hættu sem eru þau gæði að geta hitt annað fólk, lært með öðru fólki, unnið með öðru fólki og verslað við annað fólk. Og þar með er efna­hag lands­ins einnig stefnt í hættu.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, í grein sem hann birti í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem barst áskrif­endum í gær.

Hagsmunir fárra

Gylfi hélt erindi á mál­þing­inu „Út úr kóf­inu“ sem haldið var í hátíð­ar­sal Háskóla Íslands í byrjun júní. Þar sagði hann meðal ann­ars að hag­kerfið myndi ná sér á strik þótt að fjöldi ferða­manna myndi ekki koma til lands­ins, svo fremi sem að annar far­aldur kór­ónu­veiru myndi ekki skella á síðar á árinu. „Góður árangur í sótt­vörnum í vor hefur skapað almanna­gæði sem bæta lífs­kjör og örva hag­vöxt.“

[adspot]Í sam­tali við RÚV í kjöl­farið sagði Gylfi að þetta væru almanna­gæði eins og „að geta búið í landi þar sem að er ekki far­sótt, þar sem að fólk getur mætt í vinnu, farið út að borða, það getur hist. Og þessi almanna­gæði eru svo mik­il­væg að maður má passa sig að gera ekk­ert sem að stefnir þeim í voða.“

Hann sagði enn fremur að það að bíða með opnun landamæra hefði gildi. Hags­munir fárra, þeirra sem starfa í ferða­þjón­ustu, mættu ekki verða til þess að heilsu og afkomu ann­arra væri stefnt í hættu.

Þeir sem tapa eiga sér ekki málsvara

Í grein sinni í Vís­bend­ingu segir Gylfi að sum þeirra raka sem færð hafi verið fyrir því að opna landið að nýju hefðu verið rök­leysur eins og „það gengur ekki að hafa landið lokað“ eða „efna­hags­lífið nær sér ekki á strik í lok­uðu landi“.

[links]Hann segir að tals­menn ferða­þjón­ustu hafi haldið uppi mjög öfl­ugum mál­flutn­ingi um að opnun væri bráð­nauð­syn­leg, ella blasti, rétti­lega í mörgum til­vikum, við gjald­þrot fyr­ir­tækja. Minna hafi hins vegar farið fyrir umræðu um hætt­urnar sem fælust í opn­un­inni. „Engan málsvara var að finna fyrir þá sem mestu hafa að tapa ef veiran tekur að dreifa sér um sam­fé­lagið að nýju; nem­endur í fram­halds­skólum og háskólum, eldri kyn­slóð­ina, starfs­fólk og við­skipta­vini í þjón­ustu­geir­anum sem er stærsti hluti efna­hags­lífs­ins, og almenn­ing sem var mikið létt þegar sóttin hafði verið kveðin niður í júní. Af frétta­flutn­ingi má ráða að svo til einu hags­mun­irnir sem skipta máli séu hags­munir ferða­þjón­ustu. Þessi áhersla kemur glöggt fram í grein­ar­gerðum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í júní og stýri­hóps um afnám ferða­tak­mark­ana í maí. Sjaldan hefur verið aug­ljósar hversu mikil áhrif ein atvinnu­grein getur haft á ákvarð­anir stjórn­valda.“

Hægt er að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár