Fjárfestingar Kínverja í Bretlandi gætu dregist saman í kjölfar Huawei banns

Búnaður Huawei á að vera með öllu horf­inn úr 5G kerf­inu í Bret­landi fyrir árs­lok 2027. Í vik­unni tók Donald Trump heið­ur­inn fyrir ákvörðun Breta en bresk stjórn­völd segja örygg­is­á­stæður liggja að baki ákvörð­un­inni.

Kín­verjar munu grípa til nauð­syn­legra aðgerða í kjöl­far þess að Bretar hafa lagt bann við því að bún­aður Huawei verði not­aður í 5G fjar­skipta­kerfum í Bret­landi. Þetta kemur fram í frétt Reuters en þar segir að kín­verska við­skipta­ráðu­neytið hafi gefið það út að málið hafi haft nei­kvæð áhrif á vilja Kínverja til fjár­fest­inga í Bret­landi.

Þar er haft eftir Gao Feng, tals­manni við­skipta­ráðu­neyt­is­ins, að nú sé verið að leggja mat á aðgerðir breskra stjórn­valda. Hann segir bannið stang­ast á við reglur um frjálsa verslun og að Kín­verjar muni leita allra leiða til að verja laga­legan rétt kín­verskra fyr­ir­tækja.

Á þriðju­dag ákváðu bresk yfir­völd að frá og með næstu ára­mótum mættu þar­lend fjar­skipta­fyr­ir­tæki ekki nota búnað frá Huawei í yfir­stand­andi upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þá þurfa fyr­ir­tækin að fjar­lægja allan búnað frá Huawei sem nú þegar er í notkun innan kerf­is­ins fyrir árs­lok 2027

Kínversk yfir­völd telja ákvörðun Breta hafa verið tekna vegna póli­tískrar pressu frá Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Gao Feng hvetur Breta til þess að leið­rétta þessi mis­tök og verja þar með sterk við­skipta­leg tengsl þjóð­anna.

Á blaða­manna­fundi í vik­unni sagði Donald Trump sig bera ábyrgð á ákvörðun Breta en þessu hafna bresk yfir­völd. Þau segja að áhyggjur af örygg­is­málum hafi legið að baki ákvörð­un­inni auk áhyggja af því að fram­boð á bún­aði frá Huawei gæti skerst vegna þeirra þving­ana sem Banda­ríkin beita fyr­ir­tækið.

Banda­rísk yfir­völd hafa hvatt vest­ræn ríki til þess að snið­gang Huawei í upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þau telja bún­að­inn geta verið not­aðan til njósna af hálfu Kín­verja. Þeim ásök­unum hafa for­svars­menn Huawei hafn­að. Fyr­ir­tæk­inu er meinað að nota hug­búnað og tækni frá Banda­ríkj­unum í fram­leiðslu og vöru­þróun en bannið nær einnig til fram­leið­enda sem sjá Huawei fyrir íhlut­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár