Enginn tími fyrir eftirlit með hlutabótaúrræðinu

Vegna álags og tíma­skorts hefur Vinnu­mála­stofnun ekki nýtt sér heim­ild sem hún hefur lögum sam­kvæmt til þess að spyrja neina atvinnu­rek­endur af hverju þeir eru að nýta sér hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, á upplýsingafundi almannavarna.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna. Mynd: Lögreglan

Vinnu­mála­stofnun hefur, sökum álags og tíma­skorts, ekki óskað eftir neinum upp­lýs­ingum eða gögnum frá fyr­ir­tækjum sem hafa skert starfs­hlut­fall starfs­manna sinna um það af hverju fyr­ir­tækin eru að ráð­ast í þessar aðgerðir. Þetta segir Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri stofn­un­ar­innar í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt frum­varpi um hluta­bóta­leið­ina, sem sam­þykkt var á Alþingi fyrir mán­uði síðan, er Vinnu­mála­stofnun heim­ilt að óska eftir rök­stuðn­ingi frá vinnu­veit­endum sem lækka starfs­hlut­fall starfs­manna sinna um það af hverju fyr­ir­tækið þarf að grípa til þess­ara aðgerða.

Blaða­maður spurði Unni að því hvort þetta hefði verið gert, almennt eða í ein­staka til­vikum, og ef svo væri, hvort slíkt eft­ir­lit af hálfu Vinnu­mála­stofn­unar hefði leitt til þess að ein­hverjum umsóknum ein­stak­linga um hluta­bætur hefði verið hafnað.

„Svarið við báðum þessum spurn­ingum er nei. Frá gild­is­töku lag­anna hefur álag vegna mjög margra umsókna í þetta úrræði verið svo mikið að ekki hefur gef­ist tími til að stunda mikið eft­ir­lit,“ segir Unnur í skrif­legu svari sínu, en yfir 34 þús­und manns hafa sótt um hluta­bætur frá því að opnað var fyrir umsóknir fyrir um mán­uði síðan.

Unnur segir að hjá Vinnu­mála­stofnun hafi verið litið til þess að atvinnu­lífið er „býsna bág­borið um þessar mundir“ og staðan hafi versnað hratt á þeim tíma sem lið­inn er frá gild­is­töku lag­anna. Eft­ir­litið hafi því ekki verið í for­gangi.

„Við höfum lagt allt kapp á að koma fólki í greiðslu­kerfin okkar þar sem við vitum að sam­drátt­ur­inn er mik­ill hjá stórum hópi fólks,“ segir Unnur.

Vinnu­mála­stofnun hefur þannig ekki upp­lýs­ingar um hvort öll þau fyr­ir­tæki sem eru nú með starfs­menn í skertu starfs­hlut­falli hafi sann­ar­lega upp­lifað sam­drátt í sínum rekstri eða tak­mark­anir vegna aðstæðna í sam­fé­lag­inu. Að því hefur ekki verið spurt.

Í gær til­kynnti rík­is­stjórnin að Vinnu­mála­stofnun fengi allt að 100 millj­óna króna fjár­fram­lag til þess að ráða inn 35 nýja starfs­menn tíma­bundið til næstu sex mán­aða, til að stofn­unin fái betur ráðið við þau verk sem þar falla nú til vegna gríð­ar­legra áhrifa COVID-19 á atvinnu­lífið.

Dæmi til staðar um misnotkun hlutabótaúrræðisins

Ábend­ingar hafa borist um mis­notkun á hluta­bóta­leið­inni, ekki mjög margar, en ein­hverjar. Meðal ann­ars var greint frá því fyrr í mán­uð­inum að Samtök atvinnu­lífs­ins túlk­uðu lögin á þann hátt að fyr­ir­tækjum væri heim­ilt að segja upp fólki og láta ríkið greiða hluta af launum starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti.

Vinnu­mála­stofnun hefur gefið skýrt til kynna að slíkt sé mis­notkun á úrræð­inu. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa sætt sig við þann skiln­ing og eru hætt að ráð­leggja aðild­ar­fyr­ir­tækjum sam­tak­anna að það sé mögu­leg lausn.

Einnig hafa borist ábend­ingar um að fyr­ir­tæki nýti sér hluta­bóta­leið­ina en láti starfs­menn sína svo vinna lengri vinnu­daga en lækkað starfs­hlut­fall segir til um, sem bendir ekki til þess að sam­dráttur hafi orðið í þeim verk­efnum sem fyr­ir­tækið þarf að leysa.

Slíkt fram­ferði var nokkuð til umfjöll­unar í lok síð­asta mán­aðar og var þá for­dæmt af stétt­ar­fé­lögum og einnig Við­skipta­ráði Íslands.

Markmiðið að hjálpa fyrirtækjum að viðhalda ráðningarsambandi

Samkvæmt grein­ar­gerð með frum­varpi félags- og barna­mála­ráð­herra um hluta­bóta­leið­ina er mark­miðið með hluta­bóta­leið­inni að vinnu­veit­endur haldi ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­menn sína eins og mögu­legt er, í stað þess að segja fólki upp.

Alls hafa 34.400 umsóknir borist um úrræðið, lang­flestar í lok mars, þegar opnað var fyrir úrræðið. Yfir 30 þús­und umsóknir hafa verið stað­festar.

Rík­is­stjórnin reikn­aði með því, sam­kvæmt kostn­að­ar­mati sem byggt var á við fram­lagn­ingu frum­varps­ins, að ef 20 þús­und ein­stak­lingar myndu sækja um hluta­bætur vegan lækk­aðs starfs­hlut­fall myndi það kosta rík­is­sjóð 12,8 millj­arða króna, að því gefnu að úrræðið væri í gildi frá 15. maí til 1. júní.

Ljóst er að umsækj­endur um úrræðið eru þegar orðnir meira en 50 pró­sentum fleiri en gert var ráð fyrir í þessu kostn­að­ar­mati, auk þess sem fram hefur komið í máli ráð­herra að ljóst sé að hluta­bóta­leið­ina verði að fram­lengja lengra fram á árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár