Með öllu óviðunandi að fyrirtæki reyni að nýta sér aðstæður starfsmanna sinna

Ábend­ingar um að atvinnu­rek­endur hafi lækkað starfs­hlut­fall starfs­manna en krefj­ist vinnu­fram­lags umfram hið nýja hlut­fall hafa borist BHM og BSRB.

Dæmi eru um að atvinnu­rek­endur hafi lækkað starfs­hlut­fall starfs­manna en krefj­ist vinnu­fram­lags umfram hið nýja hlut­fall. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB en ábend­ingar um þetta hafa borist BHM og BSRB, sem og aðild­ar­fé­lögum banda­lag­anna, að því er fram kemur í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá banda­lög­unum tveimur.

„Þetta gengur þvert gegn laga­breyt­ingum sem Alþingi gerði nýverið til að auð­velda atvinnu­rek­endum að halda starfs­fólki og koma í veg fyrir upp­sagnir vegna þeirra aðstæðna sem skap­ast hafa af völdum COVID-19 heims­far­ald­urs­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að atvinnu­rek­endur geti nú lækkað starfs­hlut­fall allt niður í 25 pró­sent og geti starfs­fólkið fengið hlut­falls­legar atvinnu­leys­is­bætur á móti. Óheimilt sé að krefj­ast vinnu­fram­lags frá starfs­fólki umfram hið nýja starfs­hlut­fall, enda komi lækkun á því til vegna sam­dráttar í þjón­ustu fyr­ir­tækja og fækkun verk­efna.

BHM og BSRB hvetja stjórn­endur fyr­ir­tækja og stofn­ana til að fara í einu og öllu eftir lög­unum og munu bregð­ast hart við ábend­ingum um brot. Þá minna heild­ar­sam­tökin á að þessum laga­heim­ildum sé ætlað að hafa jákvæð áhrif á vinnu­mark­aði á þessum erf­iðu tímum. Þegar þessum tíma­bundnu þreng­ingum lýkur muni fyr­ir­tækin þurfa aftur á sínum starfs­mönnum að halda í hærra starfs­hlut­falli.

Það sé með öllu óvið­un­andi að fyr­ir­tæki reyni að nýta sér aðstæður starfs­manna sem eru að leggja sitt af mörkum til að vinnu­stað­ur­inn kom­ist í gegnum tíma­bundna erf­ið­leika með því að taka á sig kjara­skerð­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár