Hertar aðgerðir á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og í Súðavík

Rétt eins og á Ísafirði og í Bol­ung­ar­vík hefur nú verið ákveðið að loka leik- og grunn­skólum í minni bæjum á norð­an­verðum Vest­fjörðum á meðan smitrakn­ing nýrra smita á svæð­inu stendur yfir.

Frá Ísafirði. Þar og í Bolungarvík eru hertar sóttvarnaráðstafanir einnig áfram í gildi.
Frá Ísafirði. Þar og í Bol­ung­ar­vík eru hertar sótt­varna­ráð­staf­anir einnig áfram í gildi. Mynd: Visit Westfjords

Aðgerða­stjórn almanna­varna á Vest­fjörðum hefur, í ljósi nýrra smitrakn­inga á norð­an­verðum Vest­fjörðum, ákveðið að herða aðgerðir til varnar COVID-19 á Suð­ur­eyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík. Þar verður leik- og grunn­skólum lokað frá og með morg­un­deg­inum og sam­komu­bann miðað við fimm manns. Þá mega ekki fleiri en 30 manns fara inn í stærri versl­anir.

[links]

Áður hafði verið gripið til sömu aðgerða í Bol­ung­ar­vík og á Ísafirði og eru þær enn í gildi, en tugir smita hafa greinst á norð­an­verðum Vest­fjörðum und­an­farna daga, þar af fimm ný smit síð­asta sól­ar­hring sem nú er verið að rekja. Einnig er verið að bíða eftir að nokkur fjöldi sýna af svæð­inu komi úr grein­ingu.

„Fólk sem finnur til ein­kenna á að halda sig heima og hafa sam­band við Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða í síma 450 4500 eða á heilsu­vera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá sam­band við lækni. Spurn­ingum um sjúk­dóm­inn sjálfan er mörgum svarað á covid.is. Frekari upp­lýs­ingar um þessar reglur verða veittar í net­fang­inu yfirstjorn-lvf@logreglan.is og á Facebook-síðu Lög­regl­unnar á Vest­fjörðum,“ segir í til­kynn­ingu frá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þung staða hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Nokkur smit hafa greinst á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík und­an­farna daga og þar hefur starfs­fólk þurft að fara í sótt­kví, sem leitt hefur til mönn­un­ar­vanda hjá heil­brigð­is­stofn­un­inni, sem einnig vantar fólk til starfa á bráða­deild.

[adspot]

Bæði sjúkra­liðar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa verið hvattir til þess að bjóða sig tíma­bundið fram til starfa á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Fram kom á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að nægi­legur fjöldi sjúkra­liða hefði þegar boðið sig fram, en að enn vant­aði hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár