Hertar sóttvarnaaðgerðir á Vestfjörðum

Gripið hefur verið til hertra sótt­varna­að­gerða í Bol­ung­ar­vík, Hnífsdal og á Ísafirði. Leik- og grunn­skólum verður lokað og sam­komu­bann mið­ast við fimm manns.

Aðgerða­stjórn almanna­varna á Vest­fjörðum hefur í sam­ráði við sótt­varna­lækni og almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra ákveðið að bregð­ast við Covid-19 smiti í Bol­ung­ar­vík, Hnífsdal og á Ísafirði með hertum aðgerðum.

Fyrsta smitið var stað­fest í gær og grunur er um fleiri.

Frá og með morg­un­deg­inum, 2. apríl, verður leik- og grunn­skólum í Bol­ung­ar­vík og á Ísafirði lokað. Þó fá börn á for­gangs­listum vistun á leik­skólum og 1. og 2. bekkjum grunn­skóla.

Sam­komu­bann verður miðað við fimm manns en tekið er fram í til­kynn­ingu að þetta eigi þó ekki við um fjöl­skyldur sem búi á sama heim­ili.

Fjöldi við­skipta­vina í stærri versl­unum (>150 fer­metrar) má að hámarki vera 30 á hverjum tíma.

Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi sam­skipta­fjar­lægð, tak­marki ferðir og fylgi leið­bein­ingum yfir­valda, segir í til­kynn­ingu sem lög­reglan á Vest­fjörðum hefur birt á Facebook.

Þeim vinnu­stöðum eða hópum sem telja sig þurfa und­an­þágu er bent á að sækja um slíkt hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Smitrakning stendur yfir

Þessi ráð­stöfun er tíma­bundin og ætluð til að hefta Covid-19 smit. Smitrakn­ing stendur yfir og beðið er nið­ur­stöðu nokk­urs fjölda sýna sem tekin hafa verið.

Ákvörð­unin tekur að svo stöddu ekki til Suð­ur­eyrar, Flat­eyrar, Þing­eyrar eða Súða­víkur. Er það á grund­velli stöðu smitrakn­ingar í dag. Áfram eru íbúar á þessum stöðum hvattir til að fylgja almennum reglum og leið­bein­ingum.

Fólk sem finnur til ein­kenna á að halda sig heima og hafa sam­band við Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða í síma 450 4500 eða á heilsu­vera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá sam­band við lækni. Spurn­ingum um sjúk­dóm­inn sjálfan er mörgum svarað á Covid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár