Baðlón og 200 herbergja hótel á bökkum Brúarár þarf ekki í umhverfismat

Áformað er að byggja hótel og tvö bað­lón á 30 hekt­ara landi Efri-Reykja rétt við Brúará, miðja vegu milli Laug­ar­vatns og Úthlíðar. Gert er ráð fyrir að með­al­gesta­fjöldi á dag verði um 1.200 þegar hót­elið er full­byggt.

Hótelið og baðlónin tvö eru fyrirhuguð við Brúará sem er miðja vegu milli Laugarvatns og Úthlíðar.
Hótelið og bað­lónin tvö eru fyr­ir­huguð við Brúará sem er miðja vegu milli Laug­ar­vatns og Úthlíðar. Mynd: Skjáskot

Skipu­lags­stofnun hefur tekið ákvörðun um að hótel og bað­lón á Efri-Reykjum í Blá­skóga­byggð skuli ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Stofn­un­inni barst í fyrra­sumar til­kynn­ing frá verk­fræði­stof­unni Verkís um fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd. Verk­efnið hefur verið í höndum Þró­un­ar­fé­lags­ins Reykja ehf.

Áformað er að byggja hótel og tvö bað­lón á 30 hekt­ara landi Efri-Reykja rétt við Brúará, miðja vegu milli Laug­ar­vatns og Úthlíðar. Gert er ráð fyrir að með­al­gesta­fjöldi á dag verði um 1.200 þegar hót­elið er full­byggt. Fram­kvæmdin verður áfanga­skipt. Áætlað er að bað­lónin tvö verði sam­tals um 6.000 m² og útbúnar verði um 5.000 m² hrein­sitjarnir. Hótelið verður um 10.000 m² með allt að 200 her­bergi í 16,5 metra hárri bygg­ingu á þremur hæðum að loknum seinni áfanga.

[adspot]

Einnig er gert ráð fyrir um 6.000 m² þjón­ustu­mið­stöð fyrir bað­stað­inn sem teng­ist hót­el­bygg­ing­unni. Mið­stöðin verður mest tvær hæðir auk kjall­ara. Þá er gert ráð fyrir fimm starfs­manna­húsum alls um 750 m², nýjum mal­bik­uðum vegi að hót­el­inu frá þjóð­vegi og um 200 mal­bik­uðum bíla­stæðum auk sjö stæða fyrir rútur.

Fyrri áfangi kemur til með að fela í sér bygg­ingu þjón­ustu­húss og hót­els með 100 her­bergjum auk 1.000 m² nátt­úru­laugar. Í seinni áfanga verður hótel stækkað um 100 her­bergi og byggð 5.000 m² nátt­úru­laug.

Í gögnum sem fram­kvæmda­að­ili sendi Skipu­lags­stofnun kemur einnig fram að göngu­stígar innan skipu­lags­svæð­is­ins verða lagðir í landið til að stýra umferð um svæðið og sér­stak­lega til að vernda bakka Brúarár. Umferð­ar­réttur almenn­ings með­fram ánni verði tryggður.

Áform fram­kvæmda­að­ila tóku breyt­ingum á meðan máls­með­ferð Skipu­lags­stofn­unar stóð yfir. Upp­haf­lega var gert ráð fyrir að hægt yrði að byggja seinni áfanga bað­lóna með klór­hreinsun. Í kjöl­far athuga­semda umsagn­ar­að­ila hefur nú verið fallið frá þeim áformum.

Auk þess hefur fyr­ir­hug­aðri stað­setn­ingu mann­virkja verið breytt og þau færð lengra frá bakka Brúarár. Einnig hefur fyr­ir­komu­lag frá­rennslis og hreins­unar verið skýrt og útfært frekar.

Brúará er á nátt­úru­minja­skrá ásamt 200 metra spildu beggja vegna árinnar vegna fossa, fjöl­skrúð­ugs gróð­urs og fugla­lífs og til­komu­mik­ils lands­lags í Brú­ar­ár­skörðum. Í gögnum frá fram­kvæmda­að­ila kemur fram að hrossum hafi verið beitt á svæðið um langt ára­bil sem hafi haldið niðri gróð­ur­vexti, ásamt því sem landið hafi verið ræst fram. Því sé svæðið tölu­vert raskað.

Fram­kvæmd­irnar muni þó hafa stað­bundin og nokkuð nei­kvæð áhrif á vernd­ar­gildi árinnar, þrátt fyrir að vernd­unin byggi einkum á Brú­ar­ár­skörðum sem séu fjarri fram­kvæmd­ar­svæð­inu. Mót­væg­is­að­gerðir felist í lag­fær­ingum á rösk­uðum árbökk­unum, stýr­ingu gang­andi umferðar, friðun fyrir búfjár­beit og efl­ingu gróð­urs á því svæði þar sem ekki verði fram­kvæmdir.

Vildu framkvæmdina í umhverfismat

Í umsögn Blá­skóga­byggðar kemur fram að sveit­ar­stjórnin telji að fram­kvæmdin skuli háð mati á umhverf­is­á­hrifum á grund­velli þess að um sé að ræða svæði á nátt­úru­minja­skrá sem sé ofar­lega á víð­áttu­miklu vatna­sviði. Í umsögn Umhverf­is­stofn­unar segir að um sé að ræða umfangs­miklar fram­kvæmdir og stand­ist áætl­anir muni fjöldi bað­gesta verða með því mesta sem þekk­ist á land­inu. Bent er á að mann­virki séu fyr­ir­huguð við bakka einnar stærstu lindár lands­ins og að áin hafi sér­stakt vernd­ar­gildi á lands­vísu sem og alþjóð­legt vernd­ar­gildi.

[links]Fiski­stofa bendir í umsögn sinni á að vegna hugs­an­legra nei­kvæðra áhrifa á líf­ríki Brúarár telji stofn­unin eðli­legt að fram­kvæmdin und­ir­gang­ist mat á umhverf­is­á­hrifum.

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands kemur fram að stofn­unin hefur lagt til að Laug­ar­vatn-Apavatn-Brúará verði sett á B-hluta nátt­úru­minja­skrár. For­sendur til­lög­unnar eru vernd ferskvatns­vist­gerða, jarð­hita­vist­gerða og fugla­teg­unda. Að mati stofn­un­ar­innar er ekki lík­legt að hin fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd valdi umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum að því til­skyldu að farið verði að ýtr­ustu kröfum um meng­un­ar­varnir og aðra nátt­úru­vernd og ef bygg­ingar og bað­lón verði eins langt frá ánni og mögu­legt er.

Svæði þegar raskað að stórum hluta

Nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar er sú að bygg­ing hót­els­ins og bað­lón­anna sé ekki lík­leg til að ógna vernd­ar­gildi Brú­ar­foss eða lands­lagi í Brú­ar­ár­skörðum sökum fjar­lægðar. Fram­kvæmda­svæði sé þegar raskað að stórum hluta vegna beitar, fram­ræslu og efn­is­náms. Þá bendir stofn­unin á að ferða­þjón­usta og sum­ar­bú­staðalönd séu þegar á svæð­unum í kring og beri lands­lagið ein­kenni af því. Einnig setji jarð­hita­nýt­ing við Efri-Reyki svip sinn á umhverfið með áber­andi gufustróki. Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði sé við Laug­ar­vatns­veg á milli Laug­ar­vatns og Geysis í Haukadal og tölu­verð umferð sé nú þegar um veg­inn.

Að mati Skipu­lags­stofn­unar eru breytt áform og boð­aðar mót­væg­is­að­gerðir til þess fallnar að draga veru­lega úr mögu­legum umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar. Þar vegi þungt fyr­ir­huguð áfanga­skipt­ing og boðað sam­ráð við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands um mögu­lega frek­ari hreinsun á frá­rennsli á grund­velli vökt­unar.

Skipu­lags­stofnun bindur leyf­is­veit­ingar eft­ir­far­andi skil­yrðum:

1. Áður en fram­kvæmdir hefj­ast þarf að rann­saka grunn­á­stand á líf­ríki Brúarár í nágrenni útrásar frá­rennslis.

2. Útfæra þarf vökt­un­ar­á­ætlun í sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands.

3. Áður en fram­kvæmdir vegna seinni áfanga hefj­ast þarf í sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit að meta hvort þörf er á frek­ari hreinsun á grund­velli vökt­unar á áhrifum rekst­urs fyrri áfanga á Brúará.

Að teknu til­liti til ofan­greinds telur Skipu­lags­stofnun ólík­legt að fram­kvæmdin komi til með að hafa í för með sér veru­leg óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif sem ekki er hægt að fyr­ir­byggja eða bæta úr með mót­væg­is­að­gerðum og því skuli fram­kvæmdin ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum.

Samkvæmt 14. gr. laga um mat á umhverf­is­á­hrifum má kæra ákvörð­un­ina til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. Kæru­frestur er til 10. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár