Sjötíu herbergja lúxushótel í Lóni þarf ekki í umhverfismat

Stefnt er að opnun heilsu­lindar og hót­els í landi Svínhóla á milli Hafnar í Horna­firði og Djúpa­vogs árið 2022. Hót­el­keðjan Six Senses mun sjá um rekst­ur­inn. Hótelið yrði í nágrenni Lóns­fjarðar og bygg­ing­ar­magn er áætlað 20 þús­und fer­metrar.

Hugmynd að útliti smáhýsa eða íbúðarhúsa við Svínhóla.
Hugmynd að útliti smá­hýsa eða íbúð­ar­húsa við Svínhóla. Mynd: Úr skýrslu

Skipu­lags­stofnun hefur tekið ákvörðun um að fyr­ir­hugað hótel í landi Svínhóla í Lóni, Sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði, sé ekki lík­legt til að hafa í för með sér umtals­verð umhverf­is­á­hrif og skuli því ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Hótelið yrði miðja vegu milli Djúpa­vogs og Hafnar og því tölu­vert frá annarri ferða­þjón­ustu á svæð­inu.

Skipu­lags­stofnun barst í sept­em­ber á síð­asta ári til­kynn­ing frá Alfaland Hotel ehf. um fyr­ir­hug­aða bygg­ingu hót­els­ins og bár­ust frek­ari gögn þar til í febr­úar. Í grein­ar­gerð kemur fram að eig­endur jarð­ar­innar Svínhóla fyr­ir­hugi upp­bygg­ingu hót­els með blöndu af íbúðum og her­bergjum.

Um umfangs­mikla fram­kvæmd er að ræða: 70 her­bergi, ýmist í aðal­bygg­ingu eða sér­stökum smá­hýsum. Gert er ráð fyrir að hót­elið geti hýst 203 gesti og að þar starfi 160 manns. Einnig stendur til að byggja 20 ein­býl­is­hús, hvert um sig 2-5 her­bergi að stærð. Húsin verði seld og að eig­endur geti kosið að tengj­ast hót­el­inu sem myndi leigja þau út þegar þau væru ekki nýtt af eig­endum.

Þá er áformað að á svæð­inu verði 1.500 fer­metra heilsu­lind sem sam­an­standi af margs­konar aðstöðu, þar á meðal blöndu af gufu­böðum, heitum og köldum pottum. Einnig er gert ráð fyrir starfs­manna­að­stöðu. Sam­an­lagt bygg­ing­ar­magn verður um 20.000 fer­metrar. Stefnt er að því að hót­elið verði rekið árið um kring og í frétta­til­kynn­ingu sem fyr­ir­hug­aður rekstr­ar­að­ili sendi frá sér í fyrra er stefnt að opnun árið 2022.

Fram kemur í grein­ar­gerð Alfaland Hotel ehf. að samið hafi verið við Six Senses Hotels Resorts Spas um rekstur hót­els­ins. Six Senses hafi getið sér gott orð sem hót­el­keðja sem leggi ríka áherslu á sjálf­bærni í bygg­inga­fram­kvæmdum og rekstri. Hús verði lágreist og að rík áhersla verði á að nýta gæði lands­ins. Allur frá­gangur á að taka mið af umhverf­is­að­stæðum og að mann­virki falli vel að umhverf­inu. Til að mynda er stefnt að gróð­ur­klæddum þökum til að draga úr sjón­rænum áhrifum.

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands um til­lög­una kemur fram að fram­kvæmd sem geri ráð fyrir að hýsa allt að 360 manns muni hafa í för með sér tölu­verða breyt­ingu á umhverf­inu, aukna umferð fólks um svæðið og truflun, m.a. ljós­mengun. Þótt fyr­ir­hugað sé að halda sjón­rænum áhrifum í lág­marki þá muni svæðið taka stakka­skiptum frá því sem nú er. Mikið bygg­ing­ar­magn þétt við jaðar vernd­ar­svæðis sem auk þess muni breyta hefð­bundnu land­bún­að­ar­landi í ferða­þjón­ustu­svæði muni því hafa marg­vís­leg áhrif.

Hótelið yrði skammt frá Lóns­firði sem er á nátt­úru­minja­skrá, meðal ann­ars sem mik­il­vægur við­komu­staður far­fugla. Hann telst einnig til mik­il­vægra fugla­svæða á Íslandi. Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands hefur lagt til að Lóns­fjörður verði vernd­aður sér­stak­lega þar sem mikið af fuglum fari þar um vor og haust. Allt að þriðj­ungur íslenska álft­ar­stofns­ins hafi sést þar sam­tímis.

Fram­kvæmda­að­ili segir í svörum sínum við þessu að allar bygg­ingar verði utan við skil­greint svæði á nátt­úru­minja­skrá sem og fugla­vernd­ar­svæði í Lóni. Settar verði kvaðir um tak­mörkun á aðgengi að Lóni á við­kvæm­asta tíma árs­ins með til­liti til fugla­lífs.

Í ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar segir að fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði sé að mestu tún og fram­ræst vot­lendi en í næsta nágrenni við Lóns­fjörð og Hvalnes sem séu á nátt­úru­minja­skrá. Það er mat stofn­un­ar­innar að um nokkuð umfangs­mikla fram­kvæmd sé að ræða og að gera megi ráð fyrir að upp­bygg­ingin auk fyr­ir­hug­aðar starf­semi komi til með að auka álag á nær­liggj­andi vist­kerfi, þ.e. vernd­ar­svæðið Lóns­fjörð. „Með hlið­sjón af boð­uðum mót­væg­is­að­gerðum telur Skipu­lags­stofnun þó ólík­legt að fyr­ir­huguð fram­kvæmd komi til með að hafa áhrif á vernd­ar­gildi Lóns­fjarðar.“

Að mati Skipu­lags­stofn­unar er enn fremur mögu­legt að útfæra skil­mála í deiliskipu­lagi til að tryggja að bygg­ingar falli vel að umhverfi fjarð­ar­ins. Segir stofn­unin afar mik­il­vægt að til­högun verks­ins verði með þeim hætti sem boðað hafi verið og telur rétt að binda leyf­is­veit­ingar með skil­yrðum, m.a. því að haft verði sam­ráð við Minja­vernd vegna forn­leifa sem og við Nátt­úru­fræði­stofnun og Umhverf­is­stofnun um stýr­ingu ferða­manna við Lónið. Þá er bent á að við gerð deiliskipu­lags þurfi meðal ann­ars að huga að lýs­ing­ar­hönnun til að draga úr ljós­mengun með til­liti til fugla­lífs sem og hönnun göngu­stíga í sama til­gangi.

Að teknu til­liti magra þátta telur Skipu­lags­stofnun ólík­legt að fram­kvæmdin komi til með að hafa í för með sér veru­leg óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif sem ekki sé hægt að fyr­ir­byggja eða bæta úr með mót­væg­is­að­gerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár