Miðflokkurinn aldrei mælst stærri í könnunum Gallup

Fylgi Mið­flokks­ins hefur auk­ist um 150 pró­sent frá því að Klaust­ur­málið kom upp. Sós­í­alista­flokkur Íslands er það stjórn­mála­afl sem hefur tekið mest nýtt fylgi til sín frá síð­ustu kosn­ingum. Allir stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað umtals­verðu fylgi frá 2017.

Gunnar Bragi Sveinsson, varaformaður Miðflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin tap­aði 2,9 pró­sentu­stigum af fylgi milli mán­aða, sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup og mælist nú með 14,4 pró­sent fylgi. Það er samt sem áður meira fylgi en hún mæld­ist með um ára­mót.

Þrír flokkar bæta mark­tækt við sig fylgi milli mán­aða. Mið­flokk­ur­inn bætir við sig 1,7 pró­sentu­stigum og nýtur nú stuðn­ings 14,2 pró­sent kjós­enda. Það er mesta fylgi sem Mið­flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum Gallup. Ef horft er á þróun á fylgi flokks­ins frá því að það náði lægsta punkti, í des­em­ber 2018 í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, Hefur það auk­ist um 8,5 pró­sentu­stig, eða um 150 pró­sent.

[adspot]Sós­í­alista­flokkur Íslands bætir við sig 1,6 pró­sentu­stigi og mælist nú með fimm pró­sent fylgi, sem myndi að óbreyttu gull­tryggja honum kjör­dæma­kjörna þing­menn ef kosið yrði í dag. Þetta er í fyrsta sinn frá því í febr­úar 2019 sem að Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með yfir fimm pró­senta fylgi.

Þá eins og nú stóð yfir harð­vítug kjara­bar­átta með mikla áherslu á hækkun lægstu launa þar sem Efling, annað stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, stóð í stafni. Helstu tals­menn Sós­í­alista­flokks­ins hafa stutt bar­áttu Eflingar í ræðu og riti með miklum ákafa.

Að sama skapi hefur Sam­fylk­ingin, flokkur borg­ar­stjór­ans í Reykja­vík, legið undir ámæli fyrir að gera ekki meira til að leysa yfir­stand­andi kjara­deilu og binda enda á verk­föll rúm­lega 1.800 félags­manna Eflingar sem hafa meðal ann­ars víð­tæk áhrif á starf leik­skóla í borg­inni, hjúkr­un­ar­heim­ila og sorp­hirðu.

Vinstri græn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem bætir mark­tækt við sig fylgi milli mán­aða og mælist nú með 11,9 pró­sent stuðn­ing, sem er 1,4 pró­sentu­stigi meira en í lok jan­úar. Fylgi flokks­ins er samt sem áður 30 pró­sent minna en það var í kosn­ing­unum 2017.

Framsókn í vandræðum

Gengi hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja er af öðrum toga. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins heldur áfram að dala og mælist nú sjö pró­sent. Það er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því í lok sept­em­ber 2018, áður en Klaust­ur­málið svo­kall­aða kom upp í lok þess árs, en í kjöl­far þess hækk­aði fylgi Fram­sóknar skarpt um stund. Fylgið nú er 35 pró­sent minna en það sem flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum 2017.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins og fylgi hans breyt­ist lítið milli mán­aða. Það mælist nú 22 pró­sent. Það er við lægstu mörk þess sem fylgi hans hefur mælst við á kjör­tíma­bil­inu. Í síð­ustu kosn­ingum var fylgi hans 25,3 pró­sent.

Píratar dala lít­il­lega milli mán­aða og mæl­ast nú með 10,7 pró­sent fylgi. Rétt á eftir þeim kemur Viðreisn með 10,3 pró­sent, sem er nákvæm­lega sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í jan­úar.

Af þeim átta flokkum sem eru með full­trúa á Alþingi í dag er Flokkur fólks­ins lík­leg­astur til að falla af þingi að óbreyttu, en fylgi hans mælist fjögur pró­sent. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi síðan í des­em­ber 2018 í könn­unum Gallup.

Sósíalistaflokkurinn tekið mest nýtt fylgi til sín

Ef kosn­ingar myndu fara eins og könnun Gallup í febr­úar segir til um yrðu því lík­ast til áfram átta flokkar á Alþingi. Sú breyt­ing yrði á að Sós­í­alista­flokk­ur­inn myndi taka sæti Flokks fólks­ins.

Rík­is­stjórnin er að óbreyttu fallin, enda sam­eig­in­legt fylgi þeirra þriggja flokka sem hana mynda 40,9 pró­sent.

Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn eru sam­an­lagt með 7,8 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­arnir voru með í kosn­ing­unum 2017. Af þeim flokkum sem eru á þingi hefur Viðreisn bætt mestu við sig, eða 3,6 pró­sentu­stigum.

Sá flokkur sem hefur náð næst mestum árangri í fylg­is­aukn­ingu frá októ­ber­lokum 2017 er Mið­flokk­ur­inn, sem hefur bætt við sig 3,3 pró­sentu­stigum.

Mesta fylg­is­aukn­ing allra flokka sem mældir eru er þó hjá Sós­í­alista­flokki Íslands, sem var ekki til haustið 2017, en mælist nú með fimm pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár