„Stórtækar“ breytingar á framkvæmd Hvalárvirkjunar kalla á nýtt umhverfismat

Það er mat Vest­ur­verks að bráðnun Dranga­jök­uls muni engin áhrif hafa á vinnslu­getu fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar. Í skipu­lags­lýs­ingu er lagt til að svæði ofan áform­aðs virkj­ana­svæðis fái hverf­is­vernd vegna nálægðar við jökul­inn.

Fossinn Rjúkandi
Fossinn Rjúkandi Mynd: Aðsend

Til stendur að land ofan fyr­ir­hug­aðs virkj­un­ar­svæðis Hval­ár­virkj­unar í Árnes­hreppi fái notið hverf­is­verndar vegna nálægðar við Dranga­jökul. Svæðið yrði rúm­lega 10.000 hekt­arar að stærð. Innan þess er að finna nokkuð magn stein­gerv­inga. Þeir finn­ast einnig utan hins fyr­ir­hug­aða vernd­ar­svæðis og njóta verndar sem slíkir sam­kvæmt lögum.

Þetta kemur fram í skipu­lags- og mats­lýs­ingu vegna fyr­ir­hug­aðrar breyt­ingar á aðal­skipu­lagi hrepps­ins og í svörum til Kjarnans frá Vest­ur­verki sem áformar að reisa virkj­un­ina. Skipu­lags- og mats­lýs­ingin var nýlega aug­lýst en frestur til að skila athuga­semdum rann út 19. febr­úar.

Í umsögn Land­verndar um lýs­ing­una kemur fram að „hverf­is­vernd utan um ein­staka minjar við hlið ákvörð­unar um risa­vaxna eyði­legg­ingu nátt­úru­verð­mæta er ekki svæð­inu til fram­dráttar“. Samtökin segja að skýrt hafi komið fram að svæðið allt þarfn­ist verndar. „Sveit­ar­fé­lagið er því hvatt til að hlusta á ráð­legg­ingar inn­lendra og erlendra sér­fræð­inga og stöðva eyði­legg­ing­una á ómet­an­legum nátt­úru­verð­mætum innan marka sveit­ar­fé­lags­ins.“

Hval­ár­virkjun er fyr­ir­huguð á svæði sem nú er óbyggt víð­erni. Með henni yrði rennsli Hvalár, Rjúkanda og Eyvind­ar­fjarð­arár virkjað með miðl­un­ar­lónum á Ófeigs­fjarð­ar­heiði, aðrennsl­is­göngum niður í Ófeigs­fjörð, stöðv­ar­húsi neðan Strand­ar­fjalla og útrás í Hvalá. Gert er ráð fyrir að upp­sett afl virkj­un­ar­innar verði 55 MW og árs­fram­leiðsla 320 GWh/a.

Helstu þættir aðal­skipu­lags­breyt­ing­anna sem standa fyrir dyrum eru breytt umfang virkj­un­ar­innar og tengdra fram­kvæmda. Meðal ann­ars er áformað að setja inn ákvæði þar sem skil­greindar eru fimm stíflur til mynd­unar miðl­un­ar­lóna: Rjúkanda­stífla í Rjúkanda og Vatna­lauta­stífla í Hvalá myndi Vatna­lauta­lón, Hvalár­vatns­stífla í Neðra-Hvalár­vatni og Dag­verð­ar­dals­stífla í Efra-Hvalár­vatni myndi Hvalár­lón og Eyvind­ar­fjarð­ar­vatns­stífla myndi Eyvind­ar­fjarð­ar­lón í Neðra-Eyvind­ar­fjarð­ar­vatni.

Gera verði nýtt umhverfismat

Í umsögn Land­verndar við skipu­lags- og mats­lýs­ing­una kemur fram að sam­tökin telja að breyt­ingar á fram­kvæmd­inni Hval­ár­virkjun sem þar er greint frá séu svo stór­tækar að gera verði nýtt umhverf­is­mat fram­kvæmda vegna þeirra. „Hér er um að ræða alveg nýtt land­töku­svæði/höfn í óspilltri nátt­úru, mikla stækkun starfs­manna­búða, nýtt mann­virki („gesta­stofu“) við­bót­ar­vegi og fjölda nýrra náma. Þá verður fyr­ir­hug­uðum lónum breytt og stíflu­garðar hækka (þó það sé ekki tekið fram í skýrsl­unni).“

Land­vernd minnir í umsögn sinni á álit Skipu­lags­stofn­unar á fyr­ir­liggj­andi umhverf­is­mat Hval­ár­virkj­unar hafi verið virkj­un­inni mjög óhag­fellt, „þar sem eng­inn þeirra þátta sem metnir voru, voru taldir hafa jákvæð áhrif en þrír af þeim þáttum sem voru metnir taldir hafa veru­lega nei­kvæð áhrif.“ Ekki sé gerð grein fyrir þessu í mats­lýs­ing­unni.

Þá bendir Land­vernd á að í kafla um eign­ar­hald á landi sem færi undir virkj­un­ina sé ekk­ert minnst á landa­merkja­deilur sem nú standa um vatna­svið það sem Hval­ár­virkjun myndi taka til. „Þessar deilur gætu ráðið úrslitum um útfærslu, áhrif og afdrif virkj­un­ar­innar og því eðli­legt að geta þeirra.“

Hvalá í Ófeigs­firði á upp­tök á Ófeigs­fjarð­ar­heiði ofan við Nyrðra-Vatna­lauta­vatn og rennur þaðan í gegnum Nyrðra-Vatna­laut­ar­vatn og Neðra-Hvalár­vatn til sjávar. Vatna­svið Hvalár, sem hefur afrennsli af Ófeigs­fjarð­ar­heiði, nær allt norður til suð­ur­enda Dranga­jök­uls og suður að vatna­skilum við Selá í Stein­gríms­firði og er ós hennar skammt frá bæj­ar­húsum Ófeigs­fjarðar. Eyvind­ar­fjarð­ar­vötn eiga vatna­svið upp að suð­aust­ur­enda Dranga­jök­uls.

Friðlýsingartillaga enn í ferli hjá Umhverfisstofnun

Vorið 2018 lagði Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands til að Dranga­jök­ull og nágrenni hans yrði frið­lýst. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kom meðal ann­ars fram að á svæð­inu væri til­komu­mikið lands­lag mótað af jöklum ísaldar og þar væru fyrir hendi mjög virk land­mót­un­ar­ferli og lit­fögur set- og hraun­lög. Telur stofn­unin að Dranga­jök­ul­svíð­erni hafi hátt vís­inda­legt gildi, sér­stak­lega vegna jök­ul­sögu og forn­lofts­lags­sögu lands­ins. Frið­lýs­ing­ar­til­lagan er enn til með­ferðar hjá Umhverf­is­stofnun.

Land­vernd telur það mjög alvar­legan ágalla á skipu­lags- og mats­lýs­ing­unni að í kafla um ný gögn sé sé ekki getið um frið­lýs­ing­ar­til­lögu Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands og skýrslu Alþjóð­legu nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna, IUCN, þar sem segir að virkjun myndi valda veru­legum breyt­ingum á vatnaf­ari, hafa nei­kvæð áhrif á lands­lag, nátt­úru­legan breyti­leika og nátt­úru­lega ferla.

[links]Nið­ur­stöður nýrrar forn­lofts­lags­rann­sóknar sem gerð var við Dranga­jökul benda til þess að með áfram­hald­andi hlýnun gæti jök­ull­inn horfið eða verið um það bil að hverfa um árið 2050. Þá eru líkur á að hita­stig verði orðið það sama og það var fyrir um 9000 árum er for­veri hans á svæð­inu hvarf. Aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, forn­lofts­lags­fræð­ing­ur­inn David John Harning, benti í sam­tali við Kjarnann á að nið­ur­stöð­urnar gætu nýst stjórn­völdum til stefnu­mót­unar, til dæmis þegar komi að fyr­ir­hug­uðum vatns­afls­virkj­unum.

Bráðnun jökulsins mun ekki hafa áhrif

Það er mat Vest­ur­verks að bráðnun Dranga­jök­uls muni ekki hafa áhrif á vinnslu­getu Hval­ár­virkj­unar þar sem hún myndi fyrst og fremst nýta rennsli í dragám á svæð­inu. Gera megi ráð fyrir lít­ils­háttar jök­ul­vatni í árfar­vegi sem leiðir að Eyvind­ar­fjarð­ar­lóni en það myndi enga þýð­ingu hafa fyrir vatns­bú­skap virkj­un­ar­innar. Ekkert jök­ul­vatn finnst í Hvalá eða Rjúkanda, segir í svörum Birnu Lár­us­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Vest­ur­verks, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Birna bendir á að dragár séu bergvatnsár sem mynd­ist smám saman þegar yfir­borðs­vatn í lækjum leitar sam­eig­in­legs far­vegs. „Mögulegt hvarf Dranga­jök­uls mun því hafa óveru­leg eða engin nei­kvæð áhrif á Hval­ár­virkjun,“ skrifar Birna. Hún segir sömu sögu að segja hvað Skúfna­vatna­virkjun, sem Vest­ur­verk áformar einnig á svæð­inu, varðar. „Hverfi jök­ull­inn mun áfram rigna og snjóa í fjöll og úrkoman mun því skila sér í sama mæli til virkj­un­ar­innar. Jafnvel gæti hvarf jök­uls­ins gert það að verkum að rennsli til virkj­an­anna eykst.“

Í skipu­lags- og mats­lýs­ing­unni kemur fram að mark­mið fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar sé að auka fram­leiðslu raf­orku innan Vest­fjarða og um leið bæta afhend­ingar­ör­yggi þar. Stefnt er að því að tengja hana flutn­ings­net­inu með jarð­streng yfir Ófeigs­fjarð­ar­heiði og í nýjan tengi­punkt sem Landsnet myndi reisa í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Þaðan yrði raf­magnið flutt með loft­línum yfir Kolla­fjarð­ar­heiði og að Vest­ur­línu.

Ferlið of stutt á veg komið

„Á þessu stigi getur eng­inn full­yrt hvert orkan úr Hvalá verður á end­anum seld enda ferlið allt of stutt á veg komið til þess,“ segir í svörum frá Vest­ur­verki um þetta atriði. Þar kemur fram að und­ir­rituð hafi verið vilja­yf­ir­lýs­ing um sölu á 10 MW til Íslenska kal­þör­unga­fé­lags­ins, sem fyr­ir­hugar að reisa kal­þör­unga­verk­smiðju í Súðavík. Mögulega verði orku­þörf verk­smiðj­unnar meiri þegar fram í sæki. Þá er bent á að stór áform séu uppi um upp­bygg­ingu í fisk­eldi á norð­an­verðum Vest­fjörðum sem muni kalla á meiri orku en fáan­leg er á svæð­inu í dag. Þess utan horfi vest­firsk sveit­ar­fé­lög og atvinnu­líf til orku­skipta, til dæmis í tengslum við sjáv­ar­út­veg og mót­töku skemmti­ferða­skipa.

Í svörum Vest­ur­verks kemur fram að öll orka sem unnin yrði í Hvalá mun renna inn á raf­orku­kerfi Vest­fjarða í gegnum Vest­ur­línu og þaðan út á meg­in­flutn­ings­kerfið ef hún nýt­ist ekki öll innan svæð­is­ins. Það sem ekki myndi nýt­ast á Vest­fjörðum myndi nýt­ast í mið­læga raf­orku­kerf­inu óháð því hver kaup­andi orkunnar yrði og hvar hann yrði stað­settur. „Miðað við ýmis spenn­andi fram­tíð­ar­á­form í upp­bygg­ingu atvinnu­lífs á Vest­fjörðum þá gerir Vest­ur­verks sér vonir um að selja strax í upp­hafi vænan skerf orkunnar til Vest­fjarða,“ segir í svörum Vestu­verks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár