Hvað er svona merkilegt við þessa Dranga?

Umræða um frið­lýs­ingu eyði­jarðar norður á Ströndum „í skjóli nætur“ og áhrif þess gjörn­ings á Hval­ár­virkjun hafa berg­málað í sölum Alþingis og í fréttum. Kyrrð og ró ríkir sam­tímis í óbyggðum víð­ernum Vest­fjarða sem hafa nú að hluta verið friðuð.

Drangaskörð eru stórkostleg náttúrusmíð.
Dranga­skörð eru stór­kost­leg nátt­úru­smíð. Mynd: Kristín Ósk Jónasdóttir/Umhverfisstofnun

Á eyði­jörð­inni Dröngum á Ströndum er að finna eitt sér­stæð­asta nátt­úru­fyr­ir­brigði Íslands, Dranga­skörð. Aðrar nátt­úru­minjar eða nátt­úru­fyr­ir­bæri sem setja svip sinn á Dranga­landið eru Dranga­jök­ull, árn­ar, heitar upp­sprettur og laug­ar, eyj­ur, hólmar og sker, mýrar og vot­lendi ásamt vogskornum hlíð­um, urðum og klett­um. „Ein­stök verð­mæti eru í ósnortnum víð­ernum í landi Dranga og mikil áhersla lögð á að vernda þau svæði um ókomna tíð,“ segir í grein­ar­gerð skipu­lags­til­lagna um litla frí­stunda­byggð við Dranga­bæ­inn sem land­eig­endur fyr­ir­huga, Árnes­hreppur aug­lýsti fyrr á árinu og Skipu­lags­stofnun stað­festi svo um miðjan ágúst.

Það er þó hvorki frí­stunda­byggðin við ysta haf né Dranga­skörðin til­komu­miklu sem verið hafa umfjöll­un­ar­efni frétta upp á síðkastið heldur frið­lýs­ing jarð­ar­innar sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra und­ir­rit­aði í lok nóv­em­ber. Þar með urðu Drangar fyrsta land­svæðið á Íslandi til að verða frið­lýst sem óbyggt víð­erni sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd.

[adspot]

Sam­starfs­hópur skip­aður full­trúum Umhverf­is­stofn­unar, land­eig­anda Dranga, sveit­ar­fé­lags­ins Árnes­hrepps, Minja­stofn­unar Íslands og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins hefur unnið að und­ir­bún­ingi frið­lýs­ing­ar­innar, sem gerð var að frum­kvæði land­eig­enda og í minn­ingu síð­ustu ábú­enda jarð­ar­innar, frá því í lok árs 2018. Áformin voru aug­lýst árið 2019 og með til­liti til athuga­semda sem bár­ust aug­lýsti Umhverf­is­stofnun til­lögu að frið­lýs­ingu nú í ágúst. Því ferli lauk 25. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Daginn eftir, eða föstu­dag­inn 26. Nóvember, und­ir­rit­aði ráð­herr­ann frið­lýs­ing­una sem mun taka gildi nú um miðjan des­em­ber.

[links]Það er einmitt þessi tíma­setn­ing und­ir­rit­un­ar­innar sem vakið hefur athygli og ratað í umræðu í þing­sal og fréttir. Því sá sem skrif­aði undir var Guð­mundur Ingi Guð­brands­son sem nokkrum klukku­stundum síðar var ekki lengur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra heldur orð­inn félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Á þessum gjörn­ingi vakti hér­aðs­blaðið Bæjarins besta fyrst athygli í frétt á vef sínum þann 7. des­em­ber. Og síðar þann dag tók Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, málið upp á Alþingi. Sagði hann „alveg hreint ótrú­legt“ að sjá að umhverf­is­ráð­herr­ann hefði friðað Dranga að kvöldi „síð­asta dags síns“ í emb­ætti.

„Óháð því hvað okk­ur þykir um akkúrat þær aðgerðir sem hér hafa komið til tals, þessa friðun í skjóli síð­ustu næt­ur, minna þær óneit­an­lega á aðgerðir ein­hverra sem telja sig þurfa að verja virkið áður en það fell­ur í óvina­hend­ur,” sagði Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar. „Þetta er svo­lítið sér­stakt í ljósi þess að um er að ræða sömu rík­is­stjórn­ar­flokka.“

Frið­lýs­ingin er því orðin póli­tískt bit­bein. En af fleiri en einni ástæðu. Ein er sú stað­reynd að Guð­mundur Ingi skrif­aði undir aug­lýs­ing­una rétt áður en hann fór úr umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Önnur er svo vanga­veltur um hvaða áhrif frið­lýs­ingin hefur á stóra og umdeilda virkj­un­ar­hug­mynd – Hval­ár­virkjun –sem áform hafa verið uppi um að reisa á nágranna­jörð­inni Ófeigs­firði. Bergþór Ólason sagði að frið­lýs­ingin hefði „veru­leg áhrif á einn til­tek­inn virkj­un­ar­kost sem í dag er í nýt­ing­ar­flokki” ramma­á­ætl­unar.

En er það svo?

Fyrst skulum við rifja upp skýr­ingar Guð­mundar Inga á því að hann und­ir­rit­aði frið­lýs­ing­una á þessum tíma­punkti. „Þetta ein­fald­lega kom ekki inn fyrr en þennan dag,“ sagði Guð­mundur Ingi við RÚV í gær. „Málið var búið að vera í vinnslu í næstum því fjögur ár, þetta var eitt af fyrstu verk­efn­unum sem ég setti í gang varð­andi frið­lýs­ingar vegna frum­kvæðis stór­huga land­eig­enda sem vildu að það yrði ráð­ist í að frið­lýsa jörð­ina þeirra. Þannig að ég vildi reyna að klára þetta áður en ég færi úr emb­ætti.“

Spurður hvort ekki hefði komið til greina að eft­ir­láta nýjum ráð­herra verk­efnið svar­aði Guð­mundur Ingi því til að und­ir­bún­ingur frið­lýs­ing­ar­innar hefði verið í vinnslu allt kjör­tíma­bilið „og mér fannst bara eðli­legt að ég kláraði það“.

Stormur í vatnsglasi

Frið­lýs­ing Dranga var hans síð­asta emb­ætt­is­verk og segir hann ekk­ert óeðli­legt við það. Hann hafi farið í einu og öllu eftir þeim ferlum sem lög kveði á um og ekki hafa gert þetta til að koma í veg fyrir bygg­ingu Hval­ár­virkj­unar. Við mat á frið­lýs­ing­unni hafi enda komið í ljós að hún hefði ekki áhrif á þær fram­kvæmdir. „Það er utan þess svæðis sem er þetta mögu­lega virkj­ana­svæði í tengslum við Hval­ár­virkjun.“ Sagði hann umræð­una á Alþingi vera „stormur í vatns­glasi“.

Hval­ár­virkjun er ekki fyr­ir­huguð á landi Dranga. Því hefur hins vegar verið velt upp hvort að návígið við Ófeigs­fjörð, þar sem virkj­unin er áformuð, gæti haft áhrif á fyr­ir­ætl­an­irnar.

Athuga­semdir sem bár­ust Umhverf­is­stofnun á aug­lýs­ing­ar­tíma frið­lýs­ing­ar­til­lög­unnar snér­ust einmitt m.a. um þetta: Hvort að frið­lýs­ingin kynni að hafa áhrif á hags­muni og rétt­indi land­eig­enda aðliggj­andi jarða og þá á hina fyr­ir­hug­uðu virkjun. Var í athuga­semdum vísað til nátt­úru­vernd­ar­laga um að óbyggð víð­erni skuli vera í að minnsta kosti fimm kíló­metra fjar­lægð frá mann­virkjum og öðrum tækni­legum ummerkjum, svo sem raf­línum, orku­verum, miðl­un­ar­lónum og upp­byggðum vegum. Umhverf­is­stofnun bendir hins vegar á að þess­ari til­teknu máls­grein lag­anna hafi verið breytt í fyrra á þann hátt að á undan orð­unum „í a.m.k. 5 km fjar­lægð“ var bætt við orð­unum að jafn­aði. „Eftir fram­an­greinda laga­breyt­ingu verður ekki séð að frið­lýs­ing [Dranga] hafi áhrif á mögu­legar fram­kvæmdir við Hval­ár­virkjun í Ófeigs­firði eða hafi áhrif á hags­muni og rétt­indi land­eig­enda aðliggj­andi jarða,“ segir í umsögn Umhverf­is­stofn­unar.

Eva Sig­ur­björns­dóttir, odd­viti Árnes­hrepps og stuðn­ings­maður Hval­ár­virkj­unar til margra ára, deilir ekki þessum áhyggjum af áhrifum frið­unar Dranga á mögu­lega virkjun. „Fyrir það fyrsta vitum við ekk­ert hvort það verður ein­hvern tím­ann ein­hver Hval­ár­virkjun,“ sagði hún í sam­tali við RÚV í gær. „Það er nú svo­lít­ill spölur þarna á milli þannig að ég held nú að menn þurfi ekk­ert að velta vöngum yfir því.“

Fæddist Leifur heppni á Dröngum?

Drangar eru land­náms­jörð og þar nam Þor­valdur Ásvalds­son land. Sonur hans var Eiríkur rauði er flutti síðar til Græn­lands, en sonur hans var Leifur heppni. Eiríkur bjó á Dröngum eftir föður sinn og færa má líkur að því að þar hafi Leifur sonur hans fæðst.

Hjónin Anna Jak­obína Guð­jóns­dóttir og Krist­inn Hallur Jóns­son og börn þeirra voru síð­ustu ábú­endur á Dröngum og voru þar með búskap allt til árs­ins 1966. Það er þó vart hægt að kalla Dranga eyði­jörð enda haf­ast afkom­endur Önnu og Krist­ins þar við stóran hluta árs­ins. Eng­inn akvegur liggur þangað. Aðeins er fært á báti eða fót­gang­andi og á því ferða­lagi koma hin tign­ar­legu Dranga­skörð við sögu.

Drangar ná frá Dranga­jökli að sjó á milli Bjarn­ar­fjarðar og Dranga­víkur og hið nú frið­lýsta svæði er 105 fer­kíló­metrar að stærð. Þar af eru níu fer­kíló­metrar í hafi. Svæðið er hluti af víð­áttu­miklu sam­felldu óbyggðu víð­erni á Vest­fjörðum.

Vernd­ar­gildi svæð­is­ins er mjög hátt á bæði íslenskan og alþjóð­legan mæli­kvarða og felst fyrst og fremst í víð­erni og til­komu­miklu lands­lagi mótað af jöklum ísaldar. „Dalir og hvilftir eru grafnar af jöklum í almennt eins­leitan og mjög reglu­legan jarð­lagastafla,“ segir í frið­lýs­ing­ar­aug­lýs­ing­unni. Á milli basalt­hraun­laga eru rauð­leit set­lög, oft­ast forn jarð­vegur að upp­runa. „Landslag er mik­il­feng­legt og áhrifa­mikið, s.s. Dranga­skörð, gróð­ur­far sér­stakt, víð­ern­is­upp­lifun mikil sem og nátt­úru­feg­urð og svæðið er nær óraskað. Við strönd­ina er að finna menn­ing­arminjar sem standa sem minn­is­varðar um búsetu­hætti og tíð­ar­anda fyrri tíma.“

Kyrrð og ró

Mark­miðið með frið­lýs­ing­unni er að standa vörð um umfangs­mikið óbyggt víð­erni „þar sem nátt­úran fær að þró­ast á eigin for­sendum, varð­veita og við­halda óvenju­legu, mik­il­feng­legu og fjöl­breyttu lands­lagi sem og víð­sýni. Frið­lýs­ing­unni er einnig ætlað að tryggja vernd jarð­minja, vist­kerfa og líf­ríki þeirra innan svæð­is­ins. Þá miðar frið­lýs­ingin að því að tryggja að núlif­andi og kom­andi kyn­slóðir geti notið, í kyrrð og ró, ein­stakrar nátt­úru þar sem nátt­úru­legir ferlar eru ríkj­andi og beinna ummerkja manns­ins gætir lítið eða ekk­ert“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár