Skipuleggja frístundabyggð við ysta haf

Kríuvarp, sól­eyjar og jök­ull. Eitt sér­stæð­asta nátt­úru­fyr­ir­brigði Vest­fjarða og þótt víðar væri leitað. Þúsund ára menn­ing­ar­saga. Á land­náms­jörð­inni Dröngum er fyr­ir­hugað að reisa frí­stunda­byggð. Drangar eru sömu­leiðis í frið­lýs­ing­ar­ferli að ósk eig­enda.

Drangaskörð eru stórkostleg náttúrusmíð.
Dranga­skörð eru stór­kost­leg nátt­úru­smíð. Mynd: Ólafur Már Björnsson

Stefnt er að því að byggja tólf ný hús nyrst í Árnes­hreppi, fámenn­asta sveit­ar­fé­lagi lands­ins. Um er að ræða frí­stunda­húsa­byggð í landi land­náms­jarð­ar­innar Dranga en á henni er m.a. að finna hina stór­kost­legu nátt­úru­smíð Dranga­skörð. Sveit­ar­stjórn Árness­hrepps hefur nú aug­lýst breyt­ingu á aðal­skipu­lagi vegna áfor­manna sem og deiliskipu­lags­til­lögu. Frí­stunda­byggðin fyr­ir­hug­aða afmarkast við Dranga­bæ­inn til aust­urs og með­fram jaðri bæj­ar­túns­ins vestur að Húsá. Í grein­ar­gerð kemur fram að mark­miðið sé að upp­bygg­ing á svæð­inu fari ein­ungis fram á því svæði sem þegar er búið að byggja á og hinum hluta jarð­ar­innar verði hlíft við upp­bygg­ingu enda er stefnt að frið­lýs­ingu jarð­ar­innar að frum­kvæði land­eig­enda.

[adspot]

Hjónin Kristinn Hallur Jónsson og Anna Jakobína Guð­jóns­dóttir og börn þeirra voru síð­ustu ábú­endur á Dröngum og bjuggu þar allt til árs­ins 1966. Það er þó vart hægt að kalla Dranga eyði­jörð enda haf­ast sumir afkom­endur Kristins, m.a. börn hans, þar við stóran hluta árs­ins. Enginn akvegur liggur að Dröngum. Þangað er aðeins fært á báti eða fót­gang­andi.

Hið fyr­ir­hug­aða bygg­inga­svæði er „grasi vaxið og þakið sól­eyjum á sumrin,“ segir í grein­ar­gerð skipu­lags­til­lagn­anna.“ Hvönnin setur einnig mik­inn svip á umhverfið.“ Stórt kríu­varp er við Dranga­bæ­inn. Á Dröngum var forðum bæn­hús enda kirkju­vegur erf­iður og langur. Hlunn­indi eru gríð­ar­mikil á Dröngum, segir enn­fremur í grein­ar­gerð­inni; sel­veiði, æðar­varp og reki.

Drangar eru land­náms­jörð og eru minjar um búsetu allt frá þeim tíma sýni­legar eða stað­settar um mest­alla land­ar­eign­ina. Umfangs­mik­ill upp­gröftur eða rann­sóknir á þeim hefur ekki farið fram, en allar minjar hafa verið skráðar af Forn­leifa­stofnun Íslands árið 2005. Samráð hefur verið haft við Minja­stofnun um að gera húsa­skrán­ingu og upp­færa þá forn­leifa­skrán­ingu áður en áform­aðar fram­kvæmdir fara fram.

Samkvæmt aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps eru 7 forn­minjar skráðar í landi Dranga. Margar minjar tengj­ast menn­ingu og búskap­ar­hætti lið­inna tíma og sér­stak­lega frá fyrri hluta 20. ald­ar­innar. Engar þeirra eru nálægt fyr­ir­hug­uðu upp­bygg­ing­ar­svæði.“ Mark­miðið er að varð­veita þær menn­ing­arminjar sem á land­ar­eign­inni eru og hafa sögu­legt gildi. Einnig er mark­miðið að hlúa að og við­halda menn­ing­arminjum og end­ur­byggja og varð­veita hluta þeirra menn­ing­arminja sem eru á svæð­inu,“ segir í grein­ar­gerð.

Einstök verðmæti í ósnortnum víðernum

Eitt sér­stæð­asta nátt­úru­fyr­ir­brigði Vest­fjarða, Dranga­skörð er hluti af jörð­inni Dröngum og eru þau á nátt­úru­minja­skrá og hljóta verndar sem slík. Aðrar nátt­úru­minjar eða nátt­úru­fyr­ir­bæri sem setja svip sinn á Dranga­landið eru Dranga­jök­ull, árnar, heitar upp­sprettur og laugar, eyjur, hólmar og sker, mýrar og vot­lendi ásamt vogskornum hlíðum, urðum og klettum. „Einstök verð­mæti eru í ósnortnum víð­ernum í landi Dranga og mikil áhersla lögð á að vernda þau svæði um ókomna tíð,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Jörðin Drangar er í frið­lýs­ing­ar­ferli hjá Umhverf­is­stofnun. Gert er ráð fyrir þessum skipu­lags­á­ætl­unum í frið­lýs­ing­ar­skil­málum.

Deiliskipu­lags­til­lagan gerir ráð fyrir fjórtán lóðum undir frí­stunda­hús sem ætluð eru til einka­nota. Ein lóðin er í kringum súr­heys­turn sem á að end­ur­byggja sem frí­stunda­hús. Einnig er gert ráð fyrir að end­ur­byggja gömul fjár­hús í upp­runa­legri mynd og nýta þau sem sam­eig­in­legt gisti­rými og sam­komu­stað. Auk þess er gert ráð fyrir að end­ur­byggja og lag­færa hest­hús og skemmu sem stendur við gamla bæinn að Dröngum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár