Rannsóknarleyfi Hvalárvirkjunar útrunnið

Vest­ur­verk sem er í meiri­hluta­eigu HS Orku sótti ekki um fram­leng­ingu á rann­sókn­ar­leyfi til Orku­stofn­unar vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar tím­an­lega og leyfið er því útrunnið.

Rjúkandi er ein þriggja áa sem Vesturverk áformar að nýta til virkjunarinnar.
Rjúkandi er ein þriggja áa sem Vest­ur­verk áformar að nýta til virkj­un­ar­innar. Mynd: Aðsend

Umsókn um fram­leng­ingu á rann­sókn­ar­leyfi vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar í Árnes­hreppi barst ekki Orku­stofnun fyrr en 20. apríl og þar með eftir að leyfið rann út þann 31. mars síð­ast­lið­inn. Orku­stofnun lítur svo á að ef umsókn um fram­leng­ingu leyfis berst stofn­un­inni eftir að gild­is­tími þess rennur út geti stofn­unin ekki sam­þykkt beiðn­ina, „enda séu þá rétt­indi við­kom­andi niður fallin og verði ekki end­ur­vakin með fram­leng­ingu,“ segir Kristján Geirsson, verk­efna­stjóri hjá Orku­stofnun, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Í slíkum til­vikum þurfi fyrrum leyf­is­hafi að sækja um nýtt leyfi og senda svo upp­færð gögn og upp­lýs­ingar sem stofn­unin þarf til afgreiðslu máls­ins sam­kvæmt lögum um rann­sóknir og nýt­ingu auð­linda í jörðu og máls­með­ferð­ar­reglum stjórn­sýslu­laga. Kristján bendir á að máls­með­ferð sé því eins og um nýja umsókn sé að ræða og því þarf að leita umsagna eins og við á.

[adspot]

Orku­stofnun barst umsókn um fram­leng­ingu rann­sókn­ar­leyfis vegna Hval­ár­virkj­unar þann 20. apríl 2021, „þ.e. eftir að gild­is­tími leyf­is­ins rann út,“ segir Kristján. Orku­stofnun upp­lýsti fyrri leyf­is­hafa um fram­an­greind við­horf með tölvu­pósti nú í sept­em­ber og umsókn Vest­ur­verks um nýtt rann­sókn­ar­leyfi barst svo stofn­un­inni 12. októ­ber. Greining þeirrar umsóknar stendur yfir. Í sam­ræmi við ákvæði auð­linda­laga ber að leita umsagnar Umhverf­is­stofn­unar, Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands og eftir atvikum Haf­rann­sókna­stofn­unar, áður en leyfi er veitt.

Kristján bendir á að rann­sókn­ar­leyfi sam­kvæmt auð­linda­lögum sé ekki í öllum til­vikum lög­bundið. Land­eig­andi geti sjálfur stundað rann­sóknir á sínu landi eða heim­ilað það öðrum en hefur þó ákveðnar skyldur samt sem áður á grund­velli lag­anna er varðar rann­sókn­irnar.

Þrjár ár og fimm stíflur

Virkj­un­ar­kost­ur­inn Hval­ár­virkjun var sett í orku­nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar árið 2013. Hið ísfirska fyr­ir­tæki Vest­ur­verk stóð að baki virkj­un­ar­hug­mynd­inni en árið 2014 keypti HS orka hins vegar meiri­hluta í fyr­ir­tæk­inu.

Áformin ganga út á að reisa virkjun í eyði­firð­inum Ófeigs­firði og virkja til þess rennsli þriggja áa með fimm stíflum á Ófeigs­fjarð­ar­heiði: Hvalár, Rjúkanda og Eyvind­ar­fjarð­arár. Ráðgert afl virkj­un­ar­innar er 55 MW.

[links]Orku­stofnun gaf út rann­sókn­ar­leyfi til Vest­ur­verks vegna Hval­ár­virkj­unar árið 2015 „vegna áætl­ana um virkjun Hvalár og Rjúkanda í einu þrepi úr Hvalár­vatni að sjáv­ar­máli við Ófeigs­fjörð í Árnes­hreppi,“ líkt og það var orðað í leyf­inu. Gild­is­tími leyf­is­ins var tvö ár. Leyfið var veitt að feng­inni umsögn Umhverf­is­stofn­unar og Nátt­úru­fræði­stofn­unar. Í umsögn Umhverf­is­stofn­unar kom fram að fyr­ir­hugað rann­sókn­ar­svæði væri að mestu óraskað og benti á að hálendið sunnan Dranga­jök­uls teld­ist til víð­erna og að stjórn­völd hefðu markað þá stefnu að vernda slík svæði. Nátt­úru­fræði­stofnun vís­aði í sinni umsögn til þess að virkj­un­ar­kost­ur­inn væri í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og gerði ekki athuga­semdir við útgáfu rann­sókn­ar­leyfis.

Orku­stofnun fram­lengdi rann­sókn­ar­leyfið í tvígang; fyrst árið 2017 og svo aftur árið 2019 og þá til tveggja ára eða til 31. mars 2021.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan rann­sókn­ar­leyfið var fyrst gefið út. Mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar árið 2017 og var nið­ur­staðan sú að áhrif virkj­un­ar­innar yrðu nei­kvæð eða veru­lega nei­kvæð á flesta þá þætti sem voru til skoð­unar.

Þá lagði Nátt­úru­fræði­stofnun til árið 2018 að Dranga­jök­ul­svíð­ernin yrðu friðuð en innan þess svæðis eru m.a. fossar í ánum Rjúkandi, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará.

Deilt um landamerki

Einnig standa yfir deilur um landa­merki á hinu fyr­ir­hug­aða virkj­ana­svæði. Eig­endur um 75 pró­sent eyði­jarð­ar­innar Dranga­víkur hafa höfðað mál á hendur eig­endum jarð­anna Engja­ness og Ófeigs­fjarðar en þeir sömdu báðir á sínum tíma við Vest­ur­verk um vatns­rétt­indi vegna virkj­un­ar­innar. Er þess kraf­ist að við­ur­kennt verði með dómi að landa­merki Dranga­víkur séu eins og þeim var lýst í þing­lýstum landa­merkja­bréfum frá árinu 1890, líkt og fjallað var ítar­lega um í Kjarn­anum í fyrra.

Verði krafa land­eig­end­anna stað­fest mun það setja áform um Hval­ár­virkjun í upp­nám. Eyvind­ar­fjarð­ará og Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn, sem fram­kvæmda­að­ilar hyggj­ast nýta til virkj­un­ar­inn­ar þótt ekki sé um það fjallað í rann­sókn­ar­leyfum sem gefin hafa verið út hingað til, yrðu þá inni á landi í eigu fólks sem margt hvert kærir sig ekki um virkj­un­ina.

Skrif­stofu Vest­ur­verks á Ísafirði var lokað vorið 2020 og öllum starfs­mönnum sagt upp. Til stóð að hefja und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir á virkj­un­ar­svæð­inu á Ófeigs­fjarð­ar­heiði í fyrra­sumar en af því varð ekki. Stjórn­ar­for­maður Vest­ur­verks sagði í sam­tali við Kjarnann síð­asta haust að ákveðið hefði verið að hægja á fram­gangi verk­efn­is­ins vegna óvissu á raf­orku­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár