Vesturverk segir upp starfsfólki og lokar skrifstofunni

Vest­ur­verk, sem áformar að reisa Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi á Ströndum, hefur lokað skrif­stofu sinni á Ísafirði. Vest­ur­verk er í meiri­hluta­eigu HS Orku. Til stóð að leggja vegi um fyr­ir­hugað virkj­ana­svæði í sumar en því hefur verið slegið á frest.

Eyvindarfjarðarvatn á Ófeigsfjarðarheiði. Drangajökull í baksýn.
Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn á Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Dranga­jök­ull í bak­sýn. Mynd: Golli

Vest­ur­verk ehf. hefur sagt upp starfs­fólki sínu og verður skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins á Ísafirði lokað. Gunnar Gaukur Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri og einn stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins, hættir í sumar. Hann mun þó sitja áfram í stjórn.

Þetta kemur fram í frétt á vef Bæjarins besta. Þar er vitnað í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu þar sem segi að í ljósi mark­aðs­að­stæðna og fyr­ir­sjá­an­legrar óvissu hafi verið sam­þykkt á hlut­hafa­fundi Vest­ur­verks ehf. 30. apríl að fela stjórn félags­ins að draga tíma­bundið úr starf­semi félags­ins.

Áfram verður unnið að rann­sóknum vegna virkj­un­ar­kosta sem félagið vinnur að, þar með talið Hval­ár­virkjun og skipu­lags­breyt­ingum. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að þótt um sárs­auka­fullar aðgerðir sé að ræða séu þær nauð­syn­legar til þess að tryggja áfram­hald­andi rekstur og við­gang verk­efna félags­ins til fram­tíðar.

HS Orka er meiri­hluta­eig­andi Vest­ur­verks. Bæjarins besta hefur eftir Jóhanni Snorra Sig­ur­bergs­syni, for­stöðu­manni við­skipta­þró­unar hjá HS Orku, að aðstæður á mark­aði hefðu breyst síð­ustu mán­uði og eft­ir­spurn eftir raf­magni minnkað. Einnig nefnir hann að verð á raf­magni erlendis sé víða hag­stæð­ara en á Íslandi og að nóg sé til af raf­magni í land­inu í augna­blik­inu.

Segir hann að und­ir­bún­ingur fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar í Árnes­hreppi haldi áfram þó að hægt hafi á því verk­efni.

[links]Vest­ur­verk fékk fram­kvæmda­leyfi hjá sveit­ar­stjórn Árnes­hrepps fyrir tæpu ári fyrir vinnu­vegum og efn­is­töku vegna rann­sókna á fyr­ir­hug­uðu virkj­ana­svæði. Samkvæmt skipu­lags­lögum fellur fram­kvæmda­leyfi úr gildi hefj­ist fram­kvæmdir ekki innan tólf mán­aða frá veit­ingu leyf­is­ins.

Kjarninn sendi Birnu Lár­us­dóttur, þáver­andi upp­lýs­inga­full­trúa Vest­ur­verks, fyr­ir­spurn um miðjan apríl um stöðu fram­kvæmda vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar. Í skrif­legu svari Birnu kom fram að ákveðið hefði verið að ljúka við skipu­lags­breyt­ingar sem eftir eru vegna áfor­manna áður en farið verður í umfangs­meiri fram­kvæmdir á svæð­inu, svo sem vega­gerð upp á Ófeigs­fjarð­ar­heiði.

Deilt er um landa­merki á áhrifa­svæði hinnar fyr­ir­hug­uðu virkj­unar. Meiri­hluti eig­enda eyði­jarð­ar­innar Dranga­víkur hafa stefnt land­eig­endum þriggja aðliggj­andi jarða vegna máls­ins. Þeir vitna í stefnu sinni í þing­lýst landa­merki frá því í lok 19. Aldar en sam­kvæmt þeim til­heyrir hluti fyr­ir­hug­aðs fram­kvæmda­svæðis Dranga­vík en ekki eyði­jörð­inni Engja­nesi en eig­andi hennar gerði samn­ing um vatns­rétt­indi við Vest­ur­verk árið 2008.

Málið verður tekið fyrir við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár