Vesturverk: Við höldum okkar striki

Í sumar verður ekki farið í gerð vinnu­vega um Ófeigs­fjarð­ar­heiði vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar að sögn Vest­ur­verks. Fyr­ir­tækið segir enn­fremur að ekki sé hægt að til­greina hvenær haf­ist verði handa við bygg­ingu virkj­un­ar­innar.

Fossinn Rjúkandi á Ófeigsfjarðarheiði.
Fossinn Rjúkandi á Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Mynd: Aðsend

Vest­ur­verk, sem áformar að reisa Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi, segir að mál­sókn meiri­hluta eig­enda jarð­ar­innar Dranga­víkur hafi engin áhrif á fyr­ir­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins. „Stefnan bein­ist ekki að Vest­ur­verki heldur að land­eig­endum og því bregð­umst við ekki sér­stak­lega við henni,“ segir í skrif­legu svari Birnu Lár­us­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Vest­ur­verks, við spurn­ingum Kjarnans. „Við höldum okkar striki.“

Í grein sem birt­ist á mbl.is árið 2017 kom fram að Vest­ur­verk ætti 3% hlut í jörð­inni Ófeigs­firði. Var það haft eftir Pétri Guð­munds­syni, stærsta eig­anda jarð­ar­innar. Samkvæmt veð­bók­ar­vott­orði útgefnu af sýslu­mann­inum á Vest­fjörðum í byrjun apríl, sem Kjarninn hefur undir höndum, eiga þrír menn, sem allir eru eig­endur í Vest­ur­verki í gegnum Glámu fjár­fest­ingar slhf., sinn hlut­inn hver í jörð­inni.

Eigendur Vest­ur­verks eru því sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans meðal stefndu í landa­merkja­mál­inu.

[adspot]

Meiri­hluti eig­enda Dranga­víkur hefur stefnt eig­endum þriggja jarða í Árnes­hreppi og Stranda­byggð og krefst þess að við­ur­kennd verði með dómi landa­merki Dranga­víkur gagn­vart hinum jörð­unum og þau séu eins og þeim var lýst í þing­lýstum land­merkja­bréfum frá árinu 1890.

Verði krafa land­eig­end­anna stað­fest mun það setja áform Vest­ur­verks um Hval­ár­virkjun í upp­nám. Eyvind­ar­fjarð­ará og Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn, sem til stendur að nýta til virkj­un­ar­innar, yrðu þá inni á landi í eigu fólks sem margt hvert kærir sig ekki um virkj­un­ina. Tvær aðrar ár, Rjúkandi og Hvalá, sem einnig yrðu virkj­aðar, renna hins vegar sann­ar­lega um jörð­ina Ófeigs­fjörð.

[adspot]

„Hval­ár­virkjun hefur verið í und­ir­bún­ingi í 14 ár,“ segir Birna í svari sínu. „Þar til síð­asta sumar, þegar ýmis kæru­mál upp­hófust, höfðu engar ábend­ingar borist um að landa­merki í Ófeigs­firði væru ekki í sam­ræmi við öll þau opin­beru gögn og landa­merkja­bréf, sem bæði Vest­ur­Verk og opin­berir aðilar hafa unnið eftir alla tíð.“

Í stefnu land­eig­enda Dranga­víkur kemur fram að landa­merkja­bréfin sem krafa þeirra byggi á, hafi verið öruggar heim­ildir síns tíma, verið sam­þykkt af eig­endum jarð­anna og séu þing­lýstar heim­ildir fyrir eign­ar­rétti. Engir samn­ingar hafa verið gerðir eftir að landa­merkja­bréfin voru skráð sem breyta að mati land­eig­enda Dranga­víkur merkjum milli jarð­anna svo merkja­lýs­ingar þeirra skulu gilda.

Ákveðið að ljúka skipulagsbreytingum

Þær fyr­ir­ætl­anir Vest­ur­verks á þessu ári, sem Birna vísar til í svari sínu og segir að stefna land­eig­end­anna hafi engin áhrif á, eru m.a. rann­sóknir á vatnaf­ari, snjó­dýpt og umfangi flóða á fyr­ir­hug­uðu virkj­un­ar­svæði. Auk þess sem áfram verður unnið að seinni hluta skipu­lags­breyt­inga vegna virkj­un­ar­innar. Ætla má, að sögn Birnu, að sú skipu­lags­vinna taki allt þetta ár. „Ákveðið hefur verið að ljúka við skipu­lags­breyt­ing­arnar áður en farið verður í umfangs­meiri fram­kvæmdir á svæð­inu, s.s. vega­gerð upp á Ófeigs­fjarð­ar­heiði.“

[links]Spurð hvort að þessar áætl­anir muni stand­ast, m.a. með til­liti til ástands­ins í sam­fé­lag­inu vegna kór­ónu­veirunnar, segir Birna að svo sé. Gert sé ráð fyrir að rann­sóknar­á­form stand­ist og skipu­lags­vinna haldi áfram sam­kvæmt áætlun.

Hvað fram­haldið varðar, s.s. bygg­ingu sjálfrar virkj­un­ar­innar sem er mann­afls­frekt verk­efni, segir Birna að unnið verði áfram að und­ir­bún­ingi. Það sé hins vegar ekki hægt að til­greina fram­kvæmda­tím­ann með vissu, eins og sakir standa.

Sex kærumál á borði úrskurðarnefndar

Landa­merki jarða á áhrifa­svæði fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar eru ekki einu deilu­málin sem upp hafa komið og eru til skoð­unar, m.a. hjá úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála. Sex kæru­mál sem tengj­ast virkj­un­inni eru á borði nefnd­ar­innar. Kærur vegna ákvörð­unar hrepps­nefndar Árnes­hrepps um sam­þykkt deiliskipu­lags og sam­þykktar fram­kvæmda­leyfis fyrir vinnu­vegum um hið fyr­ir­hug­aða virkj­ana­svæði eru þar á meðal.

Í svari lög­manns Vest­ur­verks nú í apríl við fyr­ir­spurn úrskurð­ar­nefnd­ar­innar segir „að vegna kæru- og dóms­mála og þess óvissu­á­stands sem skap­ast hefur vegna núver­andi þjóð­fé­lags­á­stands hefur umbjóð­andi minn upp­lýst að ekki hafi verið unnin ný fram­kvæmda­á­ætlun vegna [Hval­ár­virkj­unar]. Ekkert liggur því fyrir um hvenær ráð­gert er að hefja fram­kvæmdir að nýju. Ólíklegt verður að telj­ast að ráð­ist verði í nokkrar fram­kvæmdir á allra næstu vikum eða mán­uðum.“

Í svar­inu kemur enn­fremur fram að Vest­ur­verk muni til­kynna nefnd­inni þegar fram­kvæmda­á­ætlun hefur verið gerð og „áður en ráð­ist verður í nokkrar fram­kvæmdir á grund­velli hinna kærðu leyfa“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár