Hvalárvirkjun muni rýra víðerni Ófeigsfjarðarheiðar um tæpan helming

Samkvæmt nið­ur­stöðum Wildland Research Institute myndi Hval­ár­virkjun hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á heild­stæða víð­er­na­upp­lifun Ófeigs­fjarð­ar­heiðar og næsta nágrennis.

Nákvæm kort­lagn­ing vís­inda­manna við Háskól­ann í Leeds á óbyggðum víð­ernum Ófeigs­fjarð­ar­heiðar sýnir að mann­virki Hval­ár­virkj­unar myndu rýra víð­ernin um 45 til 48,5 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum ÓFEIGU í dag.

Samtökin fengu rann­sókn­ar­setrið Wildland Research Institute (WRi) við Háskól­ann í Leeds til að ráð­ast í kort­lagn­ing­una síð­ast­liðið sumar. WRi hefur þróað nákvæmar staf­rænar aðferðir til að kort­leggja og skil­greina víð­erni, mun nákvæm­ari en beitt hefur verið víð­ast hvar, sam­kvæmt ÓFEIGU.

Dr. Stephen Carver og Oliver Kenyon hjá WRi kynntu nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar á fundi sam­tak­anna í dag. Fram kom hjá þeim að kort­lagn­ing víð­ern­anna byggð­ist á grein­ingu á staf­rænum þrí­víðum landupp­lýs­inga­gögnum, land­notkun, fjar­lægð frá mann­virkjum og aðgangs­stöðum vél­knú­inna far­ar­tækja.

„Gögnin eru notuð til að greina með mik­illi nákvæmni sýni­leika mann­virkja sem geta haft áhrif á víð­er­na­upp­lifun. WRi hefur þróað for­rit til þess­arar grein­ingar sem byggir á svip­uðum aðferðum og for­rit tölvu­leikja,“ segir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Markmið kort­lagn­ingar WRi er að meta heild­ar­á­hrif fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar á víð­er­na­upp­lifun á Ófeigs­fjarð­ar­heiði og nágrenni. Samkvæmt ÓFEIGU er með Hval­ár­virkjun fyr­ir­séð að mann­virki muni skerða þessa upp­lifun og hafi því verið ákveðið að fá WRi til að kort­leggja víð­ernin og greina áhrif virkj­un­ar­innar.

Hvalárvirkjun hefði verulega neikvæð áhrif á heildstæða víðernaupplifun

„Skerðing víð­erna af völdum Hval­ár­virkj­unar felst í aðkomu­vegum fyrir þunga­vinnu­vélar, öðrum nýjum vegum, stíflum, yfir­föllum, lón­stæðum, skurðum, raf­línum og stöðv­ar­húsi. Enn fremur minnk­andi rennsli í Rjúkandi, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará ásamt sam­svar­andi áhrifum á fossa á svæð­inu. Áhrifin á foss­ana eru hins vegar ekki tekin með í mæl­ingum WRi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá taki nið­ur­staða grein­ing­ar­innar af öll tví­mæli um að áform um Hval­ár­virkjun hafi veru­lega nei­kvæð áhrif á heild­stæða víð­er­na­upp­lifun Ófeigs­fjarð­ar­heiðar og næsta nágrennis.

Kortlagði öll sjónræn áhrif mannvirkjanna á svæðinu

Fyrr­nefnd stofnun WRi hefur unnið að þróun ítar­legrar kort­lagn­ingar á víð­ernum í sam­ráði við skosk stjórn­völd, meðal ann­ars í þjóð­görðum og óbyggðum víð­ernum, sam­kvæmt ÓFEIGU. Byggt sé á landupp­lýs­ingum í hárri upp­lausn til að meta land­fræði­legt umfang áhrifa og sé meðal ann­ars metið hvort áhrif eru mikil eða lítil með til­liti til fjar­lægðar. „Sem dæmi má nefna að hús er ekki aðeins metið út frá stað­setn­ingu, heldur hefur hæð þess áhrif á hversu langt sjón­rænu áhrifin ná. Lágt hús eða hús sem stendur í dæld hefur þannig minni sjón­ræn skerð­ing­ar­á­hrif en hátt hús eða hús sem stendur á hæð.“

Til við­bótar við kort­lagn­ingu á víð­erna­skerð­ingu af völdum Hval­ár­virkj­unar kort­lagði WRi öll sjón­ræn áhrif mann­virkj­anna á svæð­inu, það er hvaðan sést til þeirra. Þau áhrif eru mun umfangs­meiri en aðeins skerð­ing óbyggðra víð­erna, sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum.

Wildland Research Institute er sjálf­stæð fræða­stofnun með sér­þekk­ingu á víð­ernum, stefnu­mótun, kort­lagn­ingu og lands­lags­mati. Aðferða­fræði og for­rit WRi hefur einkum verið þróuð í tengslum við kort­lagn­ingu í skoskum þjóð­görðum og ann­ast WRi ráð­gjöf til skosku rík­is­stjórn­ar­innar á þessu sviði. Að auki er WRi með­höf­undur víð­erna­kort­lagn­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins og aðstoðar Alþjóða nátt­úru­vernd­ar­stofn­un­ina (IUCN) við kort­lagn­ingu víð­erna­gæða í Frakk­landi. WRi hefur einnig unnið með þjóð­garða­stofnun Banda­ríkj­anna og unnið að mati á víð­erna­gæðum í Kína, sam­kvæmt ÓFEIGU.

Hægt að skilgreina óbyggð víðerni út frá raunverulegum aðstæðum

Í til­kynn­ingu nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna kemur fram að í nátt­úru­vernd­ar­lögum sé svohljóð­andi skil­grein­ing á óbyggðum víð­ernum: „Óbyggt víð­erni: Svæði í óbyggðum sem er að jafn­aði a.m.k. 25 km2 að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar ein­veru og nátt­úr­unnar án trufl­unar af mann­virkjum eða umferð vél­knú­inna far­ar­tækja og í a.m.k. 5 km fjar­lægð frá mann­virkjum og öðrum tækni­legum ummerkjum, svo sem raf­línum, orku­verum, miðl­un­ar­lónum og upp­byggðum vegum.“

Tölulegu við­miðin séu fyrst og fremst til leið­bein­ingar og nálgun þeirra skili fremur grófum nið­ur­stöðum. Með nákvæmum kort­lagn­ing­ar­að­ferðum á borð við þær sem WRi fram­kvæmir sé hægt að skil­greina óbyggð víð­erni út frá raun­veru­legum aðstæðum á hverjum stað.

„Víð­erna­grein­ingar í Evrópu hafa sýnt að 1 pró­sent af „villt­ustu“ óbyggðum víð­ernum Evrópu ná yfir tæpa 57 þús­und fer­kíló­metra. Þar af eru 24 þús­und fer­kíló­metrar þessa eina pró­sents á Íslandi, eða 42% af „villt­ustu“ víð­ernum álf­unnar. Með skil­grein­ing­unni „villt­ustu“ er átt við víð­erni sem eru hvað lengst frá öllum mann­virkjum eða aðgangs­stöðum vél­knú­inna far­ar­tækja,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár