Rykið fangað á Raufarhöfn

Ísland er ein helsta upp­spretta ryks á norð­ur­hveli jarðar. Stór hluti af því ryki sem hér verður til berst norður yfir landið og norður í höf, til dæmis alla leið að Sval­barða.

Ryk í andrúmsloftinu getur veitt verðmætar upplýsingar sem nýtast í rannsóknum á loftslagsbreytingum.
Ryk í and­rúms­loft­inu getur veitt verð­mætar upp­lýs­ingar sem nýt­ast í rann­sóknum á lofts­lags­breyt­ingum. Mynd: Rannsóknastöðin Rif

Rannsókn á áhrifum ryks á lofts­lagið fór form­lega af stað þann 17. júlí síð­ast­lið­inn á Rauf­ar­höfn þegar settir voru upp ryk­mælar á vegum vís­inda­manna við háskól­ann í Darm­stadt í Þýska­landi.

Upp­setn­ing ryk­mæl­anna er liður í hinu fjöl­þjóð­lega HiLDA verk­efni sem snýst um að rann­saka lofts­lags­breyt­andi áhrif ryks á norð­ur­slóðum. Margt er enn á huldu um áhrif ryks­ins og þátt þess í spálík­önum um lofts­lags­breyt­ingar og standa vonir til þess að með ryk­mæl­ing­unum verði hægt að svara fleiri spurn­ingum um áhrifin.

Þekkt er að ryk þyrl­ast upp í eyði­mörkum á suð­ur­hveli jarðar en færri vita að Ísland er ein helsta upp­spretta ryks á norð­ur­hveli jarðar. Þetta hefur vakið athygli þýskra vís­inda­manna sem nú hafa komið fyrir mælum til að safna ryki. Þetta eru þó ekki fyrstu mæl­arnir hér á landi en íslenskir vís­inda­menn hafa einnig staðið að rann­sóknum á ryki.

Kanna bæði uppruna og endastöð ryksins

Áhrif ryks á norð­ur­slóðum eru talin van­greind í spálík­önum um lofts­lags­breyt­ingar. Því er talið brýnt að koma upp mæli­stöðvum eins og þeirri sem nú hefur verið sett upp á Rauf­ar­höfn.

Ryk sem verður til hér á landi er talið að ber­ist alla leið á Sval­barða, en þar verður einnig komið upp ryk­mælum en hug­myndin er að rekja bæði upp­runa ryks­ins og enda­punkt.

Þrír mis­mun­andi ryk­mælar voru settir upp við Rauf­ar­höfn og munu þeir safna ryk­sýnum í allt að tvö ár, segir í frétt á vef Rann­sókna­stöðv­ar­innar Rifs en það eru starfs­menn Rifs munu sjá um sjálfa sýna­tök­una.

Starfs­menn Rifs sjá fengu verk­lega kennslu í notkun ryk­mæl­anna hjá vís­inda­mann­inum Konrad Kandler sem leiðir verk­efnið þegar mæl­unum var komið fyrir á dög­unum.

Rann­sókna­stöðin Rif er sjálfs­eign­ar­stofnun sem hefur til umráða jörð­ina Rif, nyrstu jörð á Íslandi. Frá stofnun 2014 hefur Rif unnið að því að skapa vett­vang á Rauf­ar­höfn og Mel­rakka­sléttu til viða­mik­illar vökt­unar á vist­kerfi svæð­is­ins, en Mel­rakka­sléttan er aðgengi­leg­asta svæði Íslands sem skil­greint er sem heim­skauta­svæði. Rif er í sam­starfi við fjöl­margar rann­sókna­stofn­anir, bæði inn­lendar og erlendar, og stefnir að því mark­miði að Mel­rakka­slétta verði einn helsti vett­vangur Íslend­inga í rann­sóknum á vist­kerfi norð­ur­slóða og áhrifum lofts­lags­breyt­inga á það.

Vöktun og rann­sóknir hingað til hafa einkum beinst að fugla­lífi, gróð­ur­fari og smá­dýrum en árið 2020 hófst einnig reglu­bundin vöktun á ferskvatni á Mel­rakka­sléttu. Einnig má nefna að sett var upp veð­ur­stöð á landi Rifs árið 2018, í sam­starfi við m.a. Veð­ur­stofu Íslands. Verkefni Rifs eru því afar fjöl­breytt og hafa ryk­mæl­ingar nú bæst á verk­efna­list­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftsagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár