Tveir mánuðir án rafmagns frá kolum í Bretlandi

End­ur­nýj­an­legir orku­gjafar hafa sótt í sig veðrið í Bret­landi á und­an­förnum árum. Minnk­andi eft­ir­spurn eftir raf­magni í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum hefur minnkað hlut­deild kola­vera í orku­fram­leiðslu víða um lönd.

Endurnýjanlegir orkugjafar eru farnir að saxa á hlutdeild kolabrennslu víða um heim.
End­ur­nýj­an­legir orku­gjafar eru farnir að saxa á hlut­deild kola­brennslu víða um heim. Mynd: EPA

Bretar hafa ekki brennt kol til að fram­leiða raf­magn í tvo mán­uði. Aldrei hefur raf­magns­fram­leiðsla Breta verið kola­laus í jafn langan tíma en fyrra met var sett í júní í fyrra, þá komust Bretar hjá því að nota kol í rúm­lega 18 daga sam­fleytt.

Í frétt BBC segir að við upp­haf útgöngu­banns í Bret­landi hafi eft­ir­spurn eftir raf­magni minnkað tölu­vert og umsvif orku­vera þar í landi í kjöl­farið. Kola­verin fjögur sem enn starfa í land­inu voru með þeim fyrstu til að stöðva starf­semi sína og hlé varð á starf­semi síð­asta kolafns­ins á mið­nætti 9. apríl.

En kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er ekki eina ástæðan fyrir minnk­andi hlut­deild kola á breskum orku­mark­aði. Mikið púður hefur verið lagt í að breyta orku­fram­leiðslu á Bret­landi á síð­ustu ára­tugum með það að leið­ar­ljósi að auka vægi end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa. Til að mynda eru stærstu vind­orku­garðar á sjó breskir.

Fyrir tíu árum síðan var 40 pró­sent af allri raf­orku í Bret­landi fram­leidd í kola­verum. Það sem af er ári er sam­an­lögð hlut­deild jarð­efna­elds­neytis í breskri orku­fram­leiðslu 35 pró­sent, þar vegur jarð­gas þyngst. Til sam­an­burðar er hlutur end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa 37 pró­sent, hlutur kjarn­orku 18 pró­sent og restin, um tíu pró­sent, er inn­flutt orka frá Evrópu.

Kolin víðar á niðurleið

Minnk­andi eft­ir­spurn eftir raf­orku hefur minnkað hlut­deild kola í raf­orku­fram­leiðslu víðar en í Bret­landi. Samkvæmt umfjöllun BBC er það álit sér­fræð­inga í orku­málum að kolin munu ekki ná fyrri styrk að kór­ónu­veiru­far­aldr­inum liðnum.

Í Banda­ríkj­unum hefur end­ur­nýj­an­leg orka tekið fram úr kolum í fyrsta sinn í ár, þrátt fyrir til­raunir Donalds Trumps til að styðja við bakið á grein­inni. Fyrir ára­tug var tæp­lega helm­ingur banda­rískrar raf­orku fram­leiddur með kolum.

Endurnýjanleg orka hefur orðið ódýrari

Sömu sögu er að segja á Indlandi, þrátt fyrir að Ind­verjar séu sú þjóð sem aukið hafa raf­orku­fram­leiðslu með kolum hve mest á nýliðnum árum. Ástæðan fyrir minnk­andi kola­notkun þar í landi má aðal­lega rekja til útgöngu­banns sem sett var á vegna útbreiðslu COVID-19. Það sem helst vekur athygli hag­fræð­inga er að kola­verin taka mun meiri skell heldur en orku­ver sem fram­leiða orku á umhverf­is­vænni hátt.

Ástæðan fyrir því að kolin eiga á brattan að sækja er ein­fald­lega jað­ar­kostn­aður, segir í áður­nefndri umfjöllun BBC. Þegar búið er að ráð­ast í fjár­fest­ingar í orku­verum er fram­leiðsla þeirra orku­vera sem fram­leiða sitt raf­magn með sól­ar­orku, vindi eða vantsorku ódýr­ari heldur en þeirra sem þurfa að brenna jarð­efna­elds­neyti. Þá hefur kostn­aður við upp­bygg­ingu orku­vera sem virkja end­ur­nýj­an­lega orku lækkað á síð­ustu árum og getur oft á tíðum verið lægri heldur en upp­bygg­ing nýs kola­vers.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár