Góða útilyktin í handklæðunum

Þeim sem þurrka þvott sinn á snúrum finnst fátt jafn­ast á við lykt­ina af þvotti sem þornað hefur í sól og golu. Snúru­að­dá­endur gefa lítið fyrir þurrk­ara­lykt, vís­inda­menn segj­ast hafa fundið skýr­ing­una á góðu útisnúru­lykt­inni.

Ilmar nokkuð betur en sólþurrkaður þvottur?
Ilmar nokkuð betur en sól­þurrk­aður þvottur? Mynd: Pexels

Í hádeg­inu dag einn fyrir tæpum tutt­ugu árum sátu nokkrir kenn­arar og nem­endur í efna­fræði­deild Hafn­ar­há­skóla í mötu­neyt­inu. Í mat­ar­tím­anum var iðu­lega rætt um allt milli him­ins og jarðar. Meðal þeirra sem sátu þarna og spjöll­uðu var Thorvald Pedersen lektor í efna­fræði. Hann var áhuga­maður um margt annað en það sem við­kom bein­línis sér­grein hans. Meðal ann­ars skrif­aði hann árum saman um mat­reiðslu í inn­an­húss­blað efna­fræði­deild­ar­innar. Dálkur hans hét „efna­fræð­ing­ur­inn í eld­hús­inu“.

Þennan til­tekna dag í mötu­neyt­inu sagði hann allt í einu: „Hvað er það sem veldur því að það er svo góð lykt af þvotti sem þornað hefur í sól­inni, allt önnur en af þvotti sem þornað hefur á snúru í skugga utandyra, í þvotta­hús­inu, eða í þurrkara?“

Við­staddir voru allir sam­mála lekt­ornum um góðu lykt­ina af útisnúru­þvotti en eng­inn gat svarað spurn­ing­unni. Tæknin til að skil­greina hvað ger­ist í þvotti á snúru var ekki til staðar.

[adspot]

Þessi himneski ilmur

Thorvald Pedersen lifir ekki lengur en þeir sem sátu við borðið í mötu­neyt­inu þennan dag fyrir tæpum tveimur ára­tugum gleymdu ekki vanga­veltum hans um „þennan himneska ilm“.

Fyrir nokkrum árum fékk efna­fræði­deildin tæki sem gera mögu­legt að skil­greina hvað fram­kallar ilm­inn úr þvott­inum. Þótt mögu­leikar þess­ara tækja séu ekki ein­skorð­aðir við skil­grein­ingu á lykt úr þvotti ákvað starfs­fólk deild­ar­innar að finna svarið við spurn­ingu hins látna lekt­ors. Þrír starfs­menn unnu að verk­efn­inu og þegar rann­sókn­inni var lokið skrif­uðu þeir grein sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu Environ­mental Chemistry og til­eink­uðu grein­ina Thorvald Pedersen.

Aðferðin og niðurstaðan

Í við­tali við danska dag­blaðið Politi­ken útskýrði Malte Frydenlund, einn þre­menn­ing­anna, vinnu­að­ferð­ina.

Þvegin var full vél af hand­klæðum sem öll voru eins. Notað var lykt­ar­laust þvotta­efni. Hluti hand­klæð­anna var svo hengdur á snúru í sól­inni, hluti á snúru í skugga utandyra, enn önnur á þurrk­grind inn­an­dyra og afgang­ur­inn settur í þurrkara. Þegar hand­klæðin voru orðin þurr voru þau sett í loft­þétta poka, sér­stakt tæki sog­aði loft úr hand­klæð­unum sem enn annað tæki skil­greindi svo. Þetta er ein­föld útgáfa af vinnu­að­ferð­inni.

Þre­menn­ing­arnir komust að því að geislar sól­ar­innar setja af stað ákveðið efna­ferli (kem­isk proces) í hand­klæð­unum. Við þetta leys­ist úr læð­ingi lykt, eða ilmur sem vekur nota­lega líðan. Minnir á sítrónur, möndlur, súkkulaði, rósir og fleira sem flestum líkar við.

Til­raunin var end­ur­tekin þrisvar sinnum og útkoman var alltaf sú sama.

Vekur bernskuminningar

Einn þeirra sem sat við borðið í mötu­neyti efna­fræði­deildar Hafn­ar­há­skóla þegar Thorvald Pedersen fitj­aði upp á hand­klæða­lykt­inni var Matthew Stanley Johnson. Hann var þá nem­andi við deild­ina en er nú pró­fessor, og hafði yfir­um­sjón með rann­sókn­inni. Hann sagði í við­tali að það hefði verið sér­lega ánægju­legt að geta fundið svarið við þess­ari gömlu spurn­ingu Thorvald Pedersen. „Það kann­ast allir við að til­tekin lykt vekur ákveðnar minn­ingar,“ sagði Matthew Stanley Johnson og bætti við: „Ef ég leggst til hvílu þar sem rúm­fötin hafa verið hengd til þerris í sól­inni, hugsa ég ósjálfrátt til bernsku­heim­il­is­ins í Minnesota.“

Albert Gjedde, sér­fræð­ingur í rann­sóknum á starf­semi heil­ans við Hafn­ar­há­skóla, tók ekki þátt í rann­sókn þre­menn­ing­anna en sagði það vel þekkt að lyktin af þvotti sem þornað hefur í sól veki minn­ingar. „Þessi lykt fram­kallar dópamín­skot í heil­anum og við fyll­umst vellíðan.“

Albert Gjedde bætti við að lyktin af nýbök­uðum smákökum minni marga á jólin.

Þvottaefni, kerti og sápur og ilmvötn

Malte Frydenlund, einn rann­sókn­ar­þre­menn­ing­anna, sagði að allir kann­ist við frískt loft sem fylgir rign­ing­ar­skúrum. Þessi frísk­leiki verður lík­lega til á svip­aðan hátt og nota­lega lyktin af sól­þurrk­uðum hand­klæðum. Það væri þessi nota­leg­heit sem fram­leið­endur reyni að fram­kalla í þvotta­efnum, hrein­gern­inga­vökvum, sápum, ilm­vötnum og mörgu fleiru.

Malte Frydenlund sagð­ist viss um að fram­leið­endur áður­nefndra vara og margra fleiri myndu kynna sér nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar í því skyni að kom­ast enn nær því en áður að líkja eftir „lykt nátt­úr­unnar“. Hann sagði að utan­að­kom­andi lykt gæti hins vegar yfir­gnæft hinn nátt­úru­lega ilm sól­þurrk­uðu hand­klæð­anna.

Skrifari þessa pistils getur í þessu sam­bandi rifjað upp að á bernsku­heim­ili hans, úti á landi, var þvottur ætíð hengdur út til þerris. Ef svo vildi til að búið væri að hengja út og síðan gustaði af suð­austan og verið var að bræða fiskúr­gang í bræðsl­unni (kölluð iðjan) var voð­inn vís með þvott­inn. Lausnin var að kippa þvott­inum inn og þvo síðan aftur við betra tæki­færi. Annars lykt­uðu föt, hand­klæði og allur annar þvottur af gúanó.

Þótti ekki bein­línis þægi­legur ilmur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár