Keldur vilja vera áfram að Keldum og fá hlutdeild í söluandvirði landsins

Í upp­hafi mán­aðar lagði Til­rauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum fram þrjár kröfur til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Stofn­unin vill vera áfram að Keldum, eiga sam­ráð um skipu­lagn­ingu lands­ins og fá hlut­deild í sölu­á­góða þess.

Tilraunastöðin tók til starfa að Keldum í botni Grafarvogs árið 1948. Til stendur að selja landið og nýta ágóðann af sölunni til samgöngumála. Tilraunastöðin krefst samráðs um skipulag og hlutdeildar í ágóðanum af sölunni.
Til­rauna­stöðin tók til starfa að Keldum í botni Graf­ar­vogs árið 1948. Til stendur að selja landið og nýta ágóð­ann af söl­unni til sam­göngu­mála. Til­rauna­stöðin krefst sam­ráðs um skipu­lag og hlut­deildar í ágóð­anum af söl­unni. Mynd: Skjáskot úr myndbandi frá Háskóla Íslands

Framtíð Keldna, Til­rauna­stöðvar Háskóla Íslands í meina­fræði er í Keldna­land­inu, þar sem stofn­unin hefur verið stað­sett allt frá stofnun árið 1948. Þetta segir Sigurður Ingv­ars­son, for­stöðu­maður stofn­un­ar­innar og pró­fessor við lækna­deild HÍ, að hafi verið nið­ur­staðan úr nýlegri stefnu­mót­un­ar­vinnu sem ráð­ist var í hjá stofn­un­inni og allir starfs­menn Keldna tóku þátt í, auk ytri ráð­gjafa.

Sigurður segir einnig, í sam­tali við Kjarnann, að háskóla­stofn­unin geri kröfu um það að fá að vera aðili að öllum við­ræðum sem lúta að fram­tíð­ar­skipu­lagi á svæð­inu og að ábati af sölu lands­ins renni að hluta til upp­bygg­ing­ar­starfs að Keldum, bæði hvað varðar húsa­kost og tæki.

Ljóst er á for­stöðu­mann­inum að Keldna­fólk telur að gengið hafi verið fram hjá sér í þeim ákvörð­unum sem teknar hafa verið um landið á síð­ustu miss­erum. Í erindi sem Sigurður sendi á Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í upp­hafi þessa mán­aðar er þess­ari skoðun og kröfum háskóla­stofn­un­ar­innar komið form­lega á fram­færi.

„Óboðlegt“ samráðsleysi við stofnunina

Sigurður segir í erind­inu að honum þyki „óboð­legt“ að Til­rauna­stöð­inni hafi ekki verið gef­inn kostur á því að koma að laga­setn­ingu sem snerti fram­tíð Keldna­lands­ins og umræðu um málið í fyrra og hvetur mennta- og menn­ing­ar­mála til þess að verja hags­muni stofn­un­ar­innar.

Í sam­tali við Kjarnann útskýrir Sigurður að þegar opin­bera hluta­fé­lagið Betri sam­göngur var stofnað síð­asta sumar hafi málið fengið hálf­gerða „flýti­með­ferð“ hjá stjórn­völdum og ekki komið inn á sam­ráðs­gátt­ina. „Við höfum ekki haft neina aðkomu að þess­ari ráð­stöfun Keldna­lands­ins og þess­ari laga­setn­ingu og erum að gera athuga­semdir svona eft­irá. Það hefur verið gengið fram­hjá okkur,“ segir Sigurður.

Betri sam­göngur ohf. hefur sam­kvæmt stofn­sam­þykktum félags­ins það hlut­verk að gera eins mikil verð­mæti og hægt er úr landi rík­is­ins að Keldum og sam­kvæmt samn­ingi við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið á allur ábati af þróun þess og sölu að renna óskertur til sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta er á skjön við þær kröfur sem Til­rauna­stöðin gerir til ráð­herra.

Bréf frá 1983 um forræði og forsjá landsins

Í erindi sínu vísar Sigurður til bréfs sem Til­rauna­stöð­inni barst 26. maí 1983 frá Ingvari Gísla­syni, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ráðherra fól þá Til­rauna­stöð­inni umsjón og for­ræði með land­inu í eigu rík­is­ins að Keldum, nema því land­svæði sem er á Keldna­holti utan um rann­sókn­ar­stofn­anir atvinnu­veg­anna.

[adspot]

Það ár hafði náðst svo­kallað Keldna­sam­komu­lag um skipt­ingu lands­ins á milli rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar, eftir ára­langt þref.

Tilraunastöðin geti vel starfað í blandaðri byggð

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigurður að hann sjái ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að Til­rauna­stöðin starfi áfram að Keldum þrátt fyrir að þar bygg­ist upp ein­hvers­konar blönduð byggð, íbúa­byggð í bland við atvinnu­starf­semi, eins og talað er um að stefnt sé að. Til fram­tíðar er litið til þess að borg­ar­línu­leið gangi í gegnum svæðið.

„Við sjáum nú ekki að við þurfum að fara úr Keldna­landi út af því,“ segir Sigurður. „En við viljum að þetta sé skipu­lagt með þarfir Til­rauna­stöðv­ar­innar í huga.“

Keldur starfa í húsa­kynnum sem eru um 5.000 fer­metrar og húsa­kynnin eru mjög sér­hæfð. „Hérna er til dæmis örygg­is­rann­sókn­ar­stofa, full­komn­asta örygg­is­rann­sókn­ar­stofan á land­inu og aðrar rann­sókn­ar­stofur með sér­hæfðum útbún­aði og hérna er krufn­ings­hús og til­rauna­dýra­að­staða og svo er aðstaða fyrir dýra­hald hér bæði utan- og inn­an­dýra,“ segir Sigurður.

Sigurður segir að það sé heil­mikið pláss sem fari undir bæði hross og kindur og beit á svæð­inu og það sé einna helst það sem ekki geti þrif­ist innan bland­aðrar byggðar til fram­tíðar. „Það gæti verið að við þyrftum að hafa ann­ars staðar starfs­stöð undir dýra­hald stærri dýra,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en telur það þó ekki vand­kvæðum bundið.

Húsakosturinn að vissu leyti barn síns tíma

Hann segir að Keldur hafi þó þörf á því að upp­færa tækja­kost­inn og við­halda hent­ugu hús­næði á svæð­inu til fram­tíðar. „Elstu húsin hérna eru orðin orðin 73 ára gömul,“ en um er að ræða rann­sókn­ar­hús og „skipu­lag þeirra er kannski barn síns tíma,“ segir Sigurður og bætir við að menn myndu vilja sjá upp­bygg­ingu að Keldum til að bæta flæðið í rann­sókn­ar­um­hverf­inu.

Sigurður segir að stofn­unin hafi séð fyrir að fá ein­hvern ágóða af sölu Keldna­lands­ins til þess að þróa húsa- og tækja­kost sinn frekar og notið „afskipta­lauss vel­vilja“ af hálfu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins.

„En við erum ekki með neitt í hendi með sölu­and­virði lands­ins. Það er talað um að þetta renni til sam­gangna hérna, Borg­ar­línu og fleira, og það er það sem við höfðum viljað sjá renna eitt­hvað hérna til upp­bygg­ing­ar­starfs­ins hjá okkur. En það er ekk­ert komið á fjár­lög eða neitt, það ger­ist ekk­ert fyrr en eitt­hvað fer á fjár­lög,“ segir Sigurður.

Tæki mörg ár að skipuleggja starfið á nýjum stað

„Ég veit svo sem ekki hvenær á að fara að byggja hérna en það líða árin og það hlýtur að fara að stytt­ast í það,“ segir Sigurður. Hann segir þó að honum hafi skilist á full­trúum Reykja­vík­ur­borgar til þessa að lítið myndi ger­ast í Keldna­land­inu fram til árs­ins 2030.

„En það þarf að huga að fram­tíð­inni. Svona sér­hæfð starf­semi eins og okkar, ef það á að byggja upp frá ein­hverjum grunni þá tekur all­mörg ár að fara í gegnum allt skipu­lag í því.“

Sigurður segir aðspurður að engar nýlegar kostn­að­ar­á­ætlun liggi fyrir um hvað það gæti kostað að finna Til­rauna­stöð­inni nýjan stað. Kostn­að­ar­á­ætlun hafi verið gerð á árunum fyrir hrun um mögu­lega upp­bygg­ingu stofn­un­ar­innar á háskóla­svæð­inu í Vatns­mýri og hún hafi hljóðað upp á um það bil þrjá millj­arða króna. Það séu þó orðnar 13 ára gamlar tölur.

Kjarninn hefur beint fyr­ir­spurn til Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um málið, meðal ann­ars um hvort mögu­legt sé að ein­hver hluti ágóð­ans af fyr­ir­hug­aðri sölu og þróun lands­ins renni til upp­bygg­ingar á húsa­kosti og tækjum stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár