Áfengisneysla með öllu óholl fólki undir fertugu

Ný rann­sókn á áfeng­is­neyslu hefur leitt í ljós að hún er óholl ungu fólki óháð magni. Hins vegar geti eldra fólk haf ávinn­ing af því að drekka áfengi í litlum skömmtum.

Við rannsóknina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 milljarðar manneskja áfengis í óhóflegu magni.
Við rann­sókn­ina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 millj­arðar mann­eskja áfengis í óhóf­legu magni. Mynd: Unsplash/Alexander Popov

Vís­inda­tíma­ritið Lancet hefur birt nið­ur­stöður rann­sóknar á áfeng­is­neyslu, þar sem neyslu­mynstur í 204 löndum var skoðað og borið saman við skýrslu um sjúk­dóma­væð­ingu á heims­vísu til þess að áætla það magn áfengis sem fólk getur neytt án þess að stofna heilsu sinni í hættu.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru marg­þættar, en benda meðal ann­ars til þess að fólk 39 ára og yngra ætti að halda sig alfarið frá áfengi, en að eldra fólk geti haft gagn af því að drekka það í litlu magni. Þá benda nið­ur­stöð­urnar til þess að ráð­legt geti verið að miða ráð­legg­ingar um áfeng­is­neyslu við aldur og stað­setn­ingu.

Við rann­sókn­ina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 millj­arðar mann­eskja áfengis í óhóf­legu magni. Lík­leg­asti hóp­ur­inn til þess að gera slíkt séu karl­menn á aldr­inum 15 til 39 ára og ættu ráð­legg­ingar til þessa hóps því að vera lægri en til ann­arra, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar geta karl­menn á þessum aldri aðeins neytt eins tíunda af hefð­bundnum áfeng­is­drykk án þess að stofna heilsu­fari sínu í hættu.

Hvað eldra fólk varðar bendir nokkuð til þess að hóf­leg neysla geti haft lít­ils­háttar ávinn­ing, en ráð­lagður dags­skammtur sam­kvæmt rann­sókn­inni er þó undir tveimur áfengum drykkjum á dag.

For­svars­menn rann­sókn­ar­innar leggja því til að ráð­legg­ingar um áfeng­is­neyslu verði aðlag­aðar aldri, en gera sér þó fulla grein fyrir því að óraun­hæft sé að ætl­ast til þess að ungt fólk hætti neyslu áfengis. Hins vegar sé mik­il­vægt að koma á fram­færi nýj­ustu upp­lýs­ingum svo fólk geti tekið með­vit­aða ákvörðun um eigin áfeng­is­neyslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár