Jólahryllingssögur

Ingi Þór Tryggva­son hefur skrifað bóka­seríu um jóla­hryll­ing. Fyrsta sagan fjallar um strák sem horfir á Grýlu taka kær­ustu sýna og ákveður fara á eftir tröll­inu og reyna bjarga stelp­unni. Hann safnar fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Jóla­hryll­ings­sögur er ný bóka sería sem Ingi Þór Tryggva­son skrifar og heitir fyrsta sagan „Elt­ing­ar­leik­ur­inn við Grýlu". Sögurnar eru skrif­aðar í ljóðum og fjalla um huldu­fólk, jóla­sveina og tröll. Bókin hefur smá húmor og góðan boð­skap. Þórir Celin skreytir bók­ina töfr­andi myndum.

Fyrsta sagan fjallar um strák sem horfir á Grýlu taka kær­ustu sína og ákveður fara á eftir tröll­inu og reyna bjarga stelp­unni. Sagan leiðir les­and­ann inn í þann magn­að­ann ævin­týra­heim sem gömlu þjóð­sögur íslands hafa að geima.

[adspot]Jóla­hryll­ings­sögur eru bók sem öll fjöl­skyldan getur notið saman segir Ingi Þór sem var að starta Karolina Fund fyrir þetta verk­efni sem er mun meira en bara bók.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þetta byrj­aði sem grín á hljóm­sveita­ræf­ingu hjá Mosa. Ég var að hlusta á gam­alt lag sem heitir Grýlu­kvæði eftir Gunnar Þórð­ar­son sem ég kann afskap­lega vel við. Það hefur þennan gam­al­dags drunga sem gömlu sög­urnar af jóla­svein­unum höfðu áður en allt varð syk­ur­húðað.

Það kveikti í mér og ég fór að gæla við þá hug­mynd að halda Jólatón­leika með svona drunga­legum jóla­sögur og fór að leika mér á píanó og um leið kom hug­mynd. Sem þró­að­ist í texta og þá fór hug­myndin af stað en svo gerð­ist ekk­ert meira í tvö ár þangað til ég fann þetta lag sem ég byrj­aði á og tók upp þráð­inn.

Þá komu fleiri hug­myndir og þetta þró­að­ist yfir í að vera bók, en ég er einnig að semja tón­list sem er við­bót við bók­ina og ætla að vera með sýn­ingu á sviði með sögu­manni og hljóm­sveit þar sem Grýla og fleiri taka lagið. Fyrsta lagið er að koma út á næstu dögum en sýn­ingin verður ekki til­búin fyrr en á næsta ári.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað eru gam­al­dags hræðslu­sögur frá Íslandi. Enginn sykur, bara dul­ar­fullur ævin­týra­heimur sem gerð­ist fyrir löngu á þess­ari eyju sem kennd er við ís þegar tröll, huldu­fólk og fleiri goðsagnir bjuggu á meðan manna á land­inu. Þetta er fjár­sjóður sem við eigum að geta notað per­sónur eins og Grýlu og búa til ný ævin­týri um jóla­svein­ana okkar og líka alla hina 30 jóla­svein­ana sem Grýla átti með fyrsta karl­inum sínum. En næsta bók mun einmitt fjalla um það þegar Grýla rak þau trölla­börn í burtu og át föður þeirra þegar hún kynnt­ist Leppalúða og átti Stekkj­ar­staur. Það er nóg til að skrifa um.

Það stendur til að halda kynn­ingu á Jóla­hryll­ings­sögum næsta laug­ar­dag kl. 16.00 á Prikinu þar sem ég mun lesa upp ljóð úr bók­inni og kynna verk­efnið og söfn­un­ina. Smá tón­list drykkir og menn­ing í boði.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár