Karolina Fund: HVAÐ barna- og ungmennatímarit

HVAÐ er hvetj­andi og efl­andi tíma­rit fyrir börn og ung­menni sem ýtir undir sjálf­stæða hugsun og heil­brigða sýn á til­ver­una og nátt­úr­una. Nú er safnað fyrir útgáfu þess á Karolina Fund.

Ágústa Margrét Arn­ar­dóttir, fimm barna móðir á Djúpa­vogi, fann fyrst fyrir vöntun á barna- og
ung­menna­tíma­riti fyrir um 6 árum síðan þegar dóttir hennar sem þá var 6 ára vildi verða
áskrif­andi af tíma­riti en fátt fannst þeim um góða drætti í þeim efnum.

Öðru hvoru síðan
hefur þetta komið upp í huga Ágústu en það var ekki fyrr en fimmta og síð­asta fæð­ing­ar­or­lofi
lauk í sept­em­ber sl. að hún ákvað að setja hug­mynd­ina í fram­kvæmd.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?
„Þegar dóttir mín bað mig um að fá að vera áskrif­andi af tíma­riti fyrir um 6 árum síðan fannst
mér það frá­bær hug­mynd til að auka lestur og fjöl­breyti­leika les­efnis sem hún hafði aðgengi
að. Hins vegar fundum við ekk­ert sem heill­aði okkur, mögu­lega var ég haldin ein­hverri
nostal­g­íu­þrá eftir ein­hverju sam­bæri­legu ABC og Æskunni eins ég man þau tíma­rit frá minni
barn­æsku.

[adspot]Spurn­ingin af hverju er ekki verið að gefa út hvetj­andi og efl­andi efni fyrir börn og
ung­menni í tíma­rita formi kom oftar og oftar upp í haus­inn á mér. Hug­myndir um efni í svona
tíma­rit juk­ust líka jafnt og þétt og trú mín á vöntun á þetta varð til þess að ég ákvað að stíga
fyrstu sporin og kanna áhuga fólks á að taka þátt í þessu með mér. Það má segja að
við­brögðin frá fólki sem ég þekki, og þekki ekki neitt, gerðu úts­lagið. Þetta tíma­rit þarf að
koma út.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?
„Þemað er hvatn­ing, efl­ing og þátt­taka barna og ung­menna. Eigandi fimm börn, sem öll hafa á
ein­hvern hátt stýrt fram­vindu verk­efn­is­ins, veit ég hversu mik­il­vægt er að efla þeirra innri
mann­eskju og tengja þau við það sem skiptir raun­veru­lega máli. Þau verða fyrir stans­lausu
áreiti í gegnum netið, bíó­myndir, aug­lýs­ingar, sam­fé­lagið og fleira. Það er lát­laust verið að
segja þeim með­vitað eða ómeð­vitað hvernig þau eiga að vera, hvað er töff, hvað er gott,
hvað gerðum við þegar við vorum yngri og fleira.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár