Árvakur og 365 kaupa Póstmiðstöðina

Útgef­endur Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins hafa hvor um sig keypt helm­ings­hlut í Póst­mið­stöð­inni ehf.

Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins
Árvakur er útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árvakur hf., útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, og 365 miðlar hf., eig­andi útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, hafa und­ir­ritað kaup­samn­ing um kaup á 100% hluta­fjár í Póst­mið­stöð­inni hf.. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is.

Selj­endur Póst­mið­stöðv­ar­innar voru Fiski­sund ehf., Stahan II ehf. og Hannes Hann­es­son. Póst­mið­stöðin sér um mót­töku söfnun, flokkun og flutn­ing á póst­send­ingum, en fyr­ir­tækið er meðal ann­ars dreif­ing­ar­að­ili Frétta­blaðs­ins. 

Samkvæmt frétt Mbl verður eign­ar­hlut­föllum á fyr­ir­tæk­inu að kaupum loknum þannig háttað að Árvakur fer með 51% eign­ar­hlut í Póst­mið­stöð­inni, en að 365 miðlar fái 49%. Kaup­verðið er ekki gefið upp. 

Samruna hafnað fyrir áratug

Árvakur og 365 miðlar hafa áður reynt að sam­eina rekstur sinn, en árið 2008 til­kynntu félögin fyr­ir­ætlun sína að renna Frétta­blað­inu inn í Árvakur gegn því að 365 myndi eign­ast 36,5 pró­senta eign­ar­hlut. 

Sam­run­inn var rök­studdur með þeim aðstæðum sem ríktu í sam­fé­lag­inu á þeim tíma. Þar var þeim rökum meðal ann­ars beitt að Árvakur myndi ekki lifa af nema sam­run­inn yrði sam­þykktur. Fjár­hags­erf­ið­leikar félags­ins væru ein­fald­lega það miklir að þetta væri eina leiðin til þess.

[links]Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði hins vegar sam­run­anum í febr­úar 2009. Í ákvörðun sinni sagði að það væri „mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að sam­runi Árvakurs hf., Frétta­blaðs­ins ehf. og Póst­húss­ins ehf. muni skapa alvar­leg sam­keppn­is­leg vanda­mál og hindra þar með virka sam­keppni á öllum mörk­uðum máls­ins þar sem áhrifa gætir[...] Sökum þess er það mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að ógilda beri sam­run­ann.“

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu 365 og Árvakurs er haft eftir Ingi­björgu S. Pálma­dóttur, for­stjóra 365 miðla, að alþekkt sé að rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla á Íslandi hafi verið erfitt. „Þessi kaup Árvakurs og 365 miðla eru liður í því að tryggja að áfram verði gefin út öflug dag­blöð á Íslandi, og að inn­lendir aðilar, stórir og smáir, hafi aðgang að öfl­ugri dreif­ing­ar­þjón­ustu sem veitir ein­ok­un­ar­þjón­ustu rík­is­ins sam­keppni og aðhald,“ bætir hún við.

Haraldur Johanes­sen, fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, segir einnig að þró­unin hafi verið sú erlendis að dag­blöð hafi samnýtt dreifi­kerfi til að takast á við erf­iðar mark­aðs­að­stæður.

Álits Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á kaup­unum er enn beðið, en kaup­samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um sam­þykki eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár